Skinfaxi - 01.10.2003, Qupperneq 23
Forystumenn UMPí á ferð um landiö
Forystumenn UMFÍ ætla að gera sér ferð um landið
á næstu vikum og mánuðum til að komast í snert-
ingu við og fylgjast með innra starfi héraðssam-
banda og félaga innan UMFÍ. Ferðin byrjaði um mið-
jan september þegar Björn B. Jónsson formaður
UMFÍ, Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri
UMFÍ og Páll Guðmundsson kynningarfulltrúi UMFÍ
fóru norður í land og hittu þar forsvarsmenn nokk-
urra héraðssambanda og félaga innan UMFÍ. Þá er
hugmyndin einnig að hitta sveitarstjórnarmenn í
ferðinni og fara yfir stöðu mála. Valdimar Tryggvi
Kristófersson ræddi við Pál Guðmundsson á skrif-
stofu hreyfingarinnar í Fellsmúla stuttu eftir að þeir
komu úr fyrstu ferðinni og spurði hann m.a. hver
væri tilgangurinn með þessari fyrirhuguðu hring-
ferð um landið?
Ungmennafélag
íslands
Erum að einbeita okkur meira að
innra starfi hreyfingarinnar
segir Páll Guðmundsson kynningarfulltrúi UMFÍ sem er á ferð um landið ásamt
forystumönnum UMFÍ
Vilja auka tengslin
„Við erum um þessar mundir að einbeita
okkur meira að innra starfi hreyfingarinnar
m.a. með því að heimsækja héraðssam-
böndin og félögin úti á landi, heyra hvað
þau eru að gera og fræðast um starfið hjá
hverju fyrir sig. Við erum sömuleiðs að
miðla því mikla starfi sem er í gangi innan
UMFÍ. Þetta er því almennt spjall um starfið
yfir höfuð. Þetta er liður í því að auka
tengslin á milli þjónustumiðstöðvarinnar
hérna í Reykjavík og héraðssambandanna
úti á landi. Bæði til að fá hugmyndir og líka
til að sjá hvernig við getum bætt starfið og
tengslin enn betur. við erum búnir að heim-
sækja héraðssambönd fyrir norðan nú í
september."
Hvar kviknaði hugmyndin að þessum
heimsóknum?
„Það er búið að tala um þetta á þingum og
formannafundum þ.e.a.s. að auka tengslin
á milli þjónustumiðstöðva og héraðssam-
banda og miðla reynslunni á milli héraðs-
sambanda því það eru misjafnar áherslur í
starfinu hjá þeim.“
Hvernig hefur ykkur verið tekið?
„Okkur hefur verið vel tekið og menn hafa
verið ánægðir að fá þessa heimsókn þótt
tilefnið hafi ekki verið neitt sérstakt því við
erum eingöngu að fara í þessar ferðir til að
spjalla og heyra hljóðið í mönnum. Þetta
hafa verið ánægjulegir og gagnlegir fundir.
Við höfum fengið margar góðar hugmyndir
frá fólkinu um hvaða áherslur á að leggja á
í starfi UMFÍ. Við höfum einnig greint frá
þeim viðfangsefnum sem stjórn UMFÍ er að
fást við þessa dagana."
Funda með fulltrúum sveitarfélaga
Hvernig fara þessar heimsóknir fram?
„Við hittum fólkið og ræðum við það f dá-
góðan tíma. Þá er einnig hugmyndin að
nota þessar ferðir til að ræða við fulltrúa
sveitarstjórna byggðarlaganna, sem við
heimsækjum ásamt formönnum héraðs-
samband eða félaga og ræða starfið al-
mennt. Á Akureyri fundaði t.d. formaður
UMFÍ og framkvæmdastjóri, ásamt forystu
UMSE með íþrótta og tómstundaráði
Akureyrar.“
Hver er tilgangurinn með því að funda
með forystumönnum sveitarfélaga?
„Við viljum hitta þá til að leggja áherslu á
það mikla starf innan hreyfingarinnar UMFí
og fara yfir aðkomu sveitarfélaga að rekstri
íþrótta- og ungmennafélaga í viðkomandi
sveitarfélagi. Einnig leggjum við áherslu á
mikilvægi þess að haldið sé áfram þessu
mikla og góða starfi. Við erum því að leggja
inn gott orð. Það hefur ákveðið vægi að
formaður UMFÍ ræði þetta mikilvæga starf
beint við fulltrúa sveitarstjórna. Við erum
með þessu að sýna sveitarstjórnum víðs-
vegar um landið hversu mikilvægu málefni
þær eru að leggja lið með ýmsum hætti. Þá
er líka tilgangurinn með þessu að benda á
hvað sé hægt að gera betur og hvernig
megi auka samstarfið þarna á milli."
Hefur það komið ykkur á óvart hversu
fjölbreytt starf er unnið innan félag-
anna?
„Það kemur manni alltaf jafn ánægjulega á
óvart hvað það er mikið og fjölbreytt starf í
gangi. Maður er alltaf að heyra af ein-
hverjum nýjum og skemmtilegum verkefn-
um sem maður vissi ekki af. Starfsemin í
hreyfingunni er mjög frjó.“
Hvernig er síðan ferð ykkar háttað í
framhaldinu? „Þessum heimsóknum og
kynningarstarfi verður haldið áfram í vetur
og er ætlunin að hitta flesta ef ekki alla
forystumenn héraðssambanda auk fulltrúa
sveitarfélaga. Stefnan er að klára þetta
ferðalag fyrir vorið. Ferðinni er næst heitið
til Hornafjarðar og í Skaftafellssýslur,“ segir
Páll og er greinilega í miklum ferðahug."