Skinfaxi - 01.02.2004, Blaðsíða 9
ACþingismenn um UMFÍ
Gengur Hornstrandirnar
- segir KrLstitui H. Gunnarssou FramsóknarfCokki
1. Er félagi í UMFB Ungmennafélagi Bolungavíkur( frá 1974) og
UMF Vesturhlíð í Reykjavík, var félagi í UMF
Stjörnunni í Garðahreppi frá 1968 til 1973
og Huginn Seyðisfirði og fyrir ævalöngu
félagi í UMF Dagsbrún í Austur Landeyja-
hreppi( líklega frá 1964 til 1968)
2. Var keppandi í knattspyrnu og hand-
knattleik, frjálsum íþróttum, þjálfari við flest
félögin og formaður stjórnar knattspyrnu-
deildar UMFB í mörg ár á 9. áratugnum og í
stjórn félagsins.
3. Gönguferðir bæði innanbæjar og um óbyggðir einkum á
Hornströndum en er afar virkur um þessra mundir í líkamsrækt
innanhúss.
4. Ánægður með starf UMFÍ og tel rétt hjá stjórnendum
hreyfingarinnar að standa fyrir starfsemi á sem flestum sviðum
til orðs og æðis, hugar og handar.
Landsmótin eru ógleymanleg
- sctjir Guiutar Öm Örtytjssou Frjáísfyntíum
1. Ég er skráður félagi í UMFN.
2. Spilaði körfuknattleik, knattspyrnu og
handknattleik upp alla yngri flokkana. í lokin
valdi ég körfuboltann og hampaði nokkrum
titlum með okkar sigursæla félagi UMFN.
3. Ég fer annað slagið í körfubolta og spila
þá jafnan „einn og einn“ við Kára nokkurn
Stefánsson. Kári er mikið efni og gæti í raun
ógnað stöðu Friðriks Stefánssonar miðherja
hjá UMFN ef hann gæfi sér tíma í það. Þá er
hann aðeins of gamall fyrir unglingaflokkinn. Þess utan reyni ég
að fara að 3-4 sinnum í ræktina í viku hverri.
4. UMFÍ er með frábært starf. T.a.m. eru Landsmótin þeirra
ógleymanleg þeim sem þau sækja. Ég fór á mitt fyrsta landsmót
fyrir 20 árum eða í Njarðvík árið 1984. Landsmótið á Húsavík
árið 1987 var einnig ógleymanlegt, veðurguðirnir dekruðu við
mótsgesti og mótið fór að öllum hætti frábærlega fram.
Krafturinn sem fylgir slíkum mótum er mikill, andrúmsloftið er
smitað kappsemi og vináttu. Allir einstaklingar verða að kynnast
sönnum ungmennafélagsanda, hann er sannarlega hollur
sálartetrinu og hvetur fólk til dáða á öllum aldri.
Fólkið í landinu þarf á þessari
hugsjón og lífsstefnu að halda
- segir Guðni Ágústsson Framsórtuar|Tofifii
1. Baldur í Hraungerðishreppi frá 1965.
2. Tók þátt í öllu.
3. Sund og ganga.
4. Mikilvægt starf í gegnum tíðina og á
stærra og mikilvægara hlutverki að gegna í
framtíðinni. Fólkið í landinu þarf á þessari
hugsjón og lífsstefnu að halda.
Nauðsynlegt starf
- segir HjáCnmr Árrmson
rrainsólinarjlohlii
1. Já, Keflavík.
2. Fyrsti formaður stjórnar ÍRB. Formaður
fyrstu þrjú árin.
3. Trimma óreglulega.
4. Frábært og nauðsynlegt fyrir alla
heilbrigða félagsstarfssemi í landinu.
Er formaður Fjölnis
- GuðCaugur Þór Þórðarson
SjáCJs lceð isfCoíihi
Ég er formaður Fjölnis og einnig var ég í
Skallgrími og spilaði í öllum deildum nema
efstu deild með meistaraflokki í knatt-
spyrnu. Einnig spilaði ég í yngri flokkum í
fótbolta, handbolta, körfubolta, og frjálsum.
Ánægð með unglingalandsmótin
- sctjir Atina Kristín Gunnarsifóttir SamjyCkingunni
1. Ég hef verið ungmennafélagi frá 1999 í
UMF Tindastóli, Skagafirði.
2. Ég var sjálfboðaliði (foreldri) frá 1995 og í
stjórn sunddeildar Tindastóls 2002-2003.
3. Tilfallandi gönguferðir, allt of sjaldan.
4. Mér líst frekar vel á starf UMFÍ og mjög
vel á það starf þar sem eldri unglinga eru
efldir til þátttöku, t.d. umglingalandsmótum
UMFÍ. Það starf þarf að efla og vinna í
samráði við unglingana sjálfa.
Að mörgu leyti til fyrirmyndar
- seijir Ámi Maijtuisson Frattusólmarflofiíu
1. Ég er í Ungmennafélaginu Vesturhlíð,
trúlega frá 1999. Var, ef ég veit
rétt, bæði í UMSK og í HSK í gamla daga.
2. Sem krakki í gegnum íþróttaiðkun en í
síðari tíð sem almennur félagsmaður.
3. Já, göngur og hjólreiðar.
4. Mér finnst það algjörlega nauðsynlegt
og að mörgu leyti til fyrirmyndar.
Keppir í bridge á landsmótum
- sctjir Birkir J. Jóttsson
FramsóknarJCokki
Hef verið í tveimur ungmennafélögum; umf.
Glóa á Siglufirði og umf. Hjalta í Skagafirði.
Hef keppt reglulega fyrir umf. Hjalta í bridge
á landsmótum. Keppti á Laugarvatni og á
Egilsstöðum að mig minnir. Komst því
miður af persónulegum ástæðum ekki á
Landsmótið sem var haldið í millitíðinni.