Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1941, Blaðsíða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1941, Blaðsíða 16
2./9. Uppgripa síldveiði síð- ustu daga á Grímseyjarsundi. — 8000 mál og rúmlega 7400 tunn- ur bárust til Siglufjarðar á tveim dögum. * Óttast um leiguskip Eimskipa- félagsins 2200 smál. að stærð. * Til húsnæðisnefndar hafa leit- að 664 fjölskyldur, sem í eru 2532 einstaklingar, þar af 927 börn, og 35 gamalmenni og auk þess 207 einhleypingar, sem allt vantar húsnæði. * 5. /9. Bæjarstjórn Rvíkur sam- þykkir að beita sér fyrir bygg- ingu 100 bráðabirgða íbúða nú þegar, og voru borgarstjóra faldar framkvæmdir í málinu ásamt bæjarráði. * Ríkisstjórnin samþykkir að banna allar áfengisveitingar á Hóte! Borg. * Síldveiðin að fjara út sam- kvæmt fregnum að norðan, alls hafa verið saltaðar 36,402 tunn- ur. * Garðvrkiusvning Garðyrkju- félags íslands opnuð fyrir al- menning. * 6. /9. Vélbáturinn ,,Svanur“ frá Keflavík kemur inn með þakið af stýrishúsi l.v. „Pétursey", er sökkt var í marzmánuði. Fann það á reki 18 sjómílur út af Garð- skaga. Rannsókn leiddi í ljós að kúlnahríð hefir dunið á brú skips- ins, að því er virðist hörðust á bakborðshlið stýrishússins. Víða voru brot úr sprengikúlum 1 þak- inu. Meðal annars fannst botn úr sprengikúlu, eru á honum stafir, sem hægt mun vera að sjá af hvaðan kúlan er. Guðmundur Jó- hannsson vélstjóri, sem var á skipinu þar til það fór þessa síð- ustu för, skoðaði brakið og stað- festi að það sé af Pétursey. * 8./9. Fundur smáútgerðar- manna og sjómanna haldinn í kaupþingssalnum til þess að ræða ifisksölusamninginn. Samningur- inn lesinn upp í heild. — Ólafur Thors atvinnumálaráðh. svarar 27 fyrirspurnum. Miklar umræð- VÍKINGUR ur. Og að lokum samþykktar nokkrar ályktanir fundarins. * Bráðabirgðalög útgefin, sem ó- gilda uppsagnir húsnæðis. Gilda lögin jafnt fyrir Reykjavík, sem aðra staði á landinu. * 9./9. Þremur skipverjum af leiguskipi Eimskips, „Sessa“ bjargað, eftir að hafa hrakist 19 daga á fleka. Voru þeir mjög að- framkomnir. * 12. /9. Flugvjelin „Haförnin" var 134 klst. að síldarleit í sum- ar. Samtals voru farnar 41 síld- ai'leitarferð og flogið sem svarar 24 þús. km. vegalengd. * 13. /9. Síldveiðum norðanlands er nú lokið. Sveinn Benediktsson telur í blaðaviðtali þetta með lé- legustu síldarsumrum. Ástæðan fyrst og fremst hin óstöðuga og slrema veðrátta. Veiði hófst 20. júlí og hélzt alla góðviðrisdaga til fyrstu daga sept. fjöldinn af síldveiðiskipunum fór heim um 24.—28. ágúst. Þ. 29. ágúst gerði gott veður og kom mikil síld upp á Grímseyjarsundi, hélzt veiði þar 2 til 3 daga. Næstu daga var svo síld út af skaga og Siglufirði. Mörg þeirra skipa, sem eftir voru, öfluðu þessa daga 20—25 þús. kr. verðmæti. Þ. 4. sept. voru öll skip nema 4 hætt veiðum; fengu þau dágóðan afla 7. og 8. sept. í fyrra hélzt nær óslitin síld- veiði frá 3. júlí til 6. sept., enda frátafir vegna veðurs aldrei nema 1—2 daga í einu. En í sum- ar aldrei gott veður nema 1—2 daga samfleytt. — Síldargegnd virðist þó hafa verið óvenju mik- il nema á austanverðu svæðinu, minni en 7 undanfarin sumur. — Mesta síld, sem nokkurn tíma hefir sést úr flugvélmni sást 7. ágúst út af Skaga. * 14./9. Grafhella var afhjúpuð í fyrradag á leiði Einars Bene- diktssonar skálds í grafreitnum á Þingvöllum. Steypt úr hvítu steinlími og íslenzku kvarzi og járnbent, vegur um 1% smál. 33 cm. á þykkt og þekur gröfina. * Haustverðið á kindakjöti á- kveðið í fyrsta verðflokki kr. 3,20 pr. kg.; öðrum verðflokki kr. 3,05 pr. kg.; þriðja verðflokki kr. 2,90 pr. kg. Venjulegt brytjað súpu- kjöt má selja mest á 3,65 í smá- sölu. Heimilt er að selja einstaka kroppa í sláturstíð með 5 aura framfærslu pr. kg. frá heildsölu- verði. * Seðlaveltan fer stöðugt vax- andi í lok júlí nam hún 36,5 millj. kr. * 16. /9. Iðnþing íslendinga sett að viðstöddum 31 fulltrúa. * Minkur drepinn í Thorvald- sensstræti í Reykjavík, eftir nokkurn eltingarleik fjölda manns, náði unglings piltur hon- um og drap hann. * 17. /9. Kauplagsnefnd hefir reiknað út vísitölu húsaleigunn- ar og er hún 111 frá 1. okt. * Vísitala framfærslukostnaðar fyrir septembermánuð er 166. >1: Þrjátíu pólskir embættismenn eru í Reykjavík um þessar mund- ir, þ. á. m. herforingjar og stjórn- málalegir embættismenn pólsku stjórnarinnar í London. * 16

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.