Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1941, Síða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1941, Síða 31
Það er ekki minnkun að beygja sig viljugur, en það er minnkun að láta aðra beygja sig nauðugan. 'Á' Haustkálfar (íhlaup) í september og október boða gott haust og vetur til jóla. Klárt veður á Galli-dag (16. okt.) halda sumir góðs vetrar teikn. ★ Klárt veður á Marteinsmessu (11. nóv.) rrferkir frostavetur, þykkmikið snjóavetur. Rauð jól: hvítir páskar. Hvít jól: rauðir páskar. Kvöldroðinn bætir. Morgunroðinn vætir. Sjaldan er gill fyrir góðu, nema úlfur á eftir renni. ★ Vaninn heldur manni í hlekkjum, en þörfin í bönd- um. H é r að avísur : Vísa um Grímsey. Hún er öll til enda strengd, átján hundruð faðma á lengd; til helftar breið, á þverveg þrengd, — þessu valda björgin sprengd. Drangey. (Eftir Ólaf Sigurðsson Drangeyjar-sigmann) um 1750: Ur hörðu grjóti og linum leir með list og framan. Það var mönnum gagn og gaman, að guð hefir hnoðað Di-angey saman. Aratog frá Eyrarbakka og út í Selvog. Af Eyrarbakka og út í Vog. er svo mældur vegur: Átján þúsund áratog áttatiu og fjögur. Um Bjarnarfjörð á Ströndum. (Eftir Leirulækjar-Fúsa). Bjarnarfjörður er suddasveit, — sízt má ég þeirri hæla; Óðinn valdi í þann reit alla landsins þræla. Landsgagn á Reykhólum. (Eftir Eirík Sveinsson, nálægt 1885). Söl, hrogn-kelsi, kræklingur, hvönn, egg, dúnn, reyr, melur, kál, ber, lundi, kalviður, kofa, rjúpa, selur. Vísur Látra-Bjargar. Á Látrum. Látra aldrei brennur bær, — bleytan slíku veldur, — allt þar til að Kristur kær kemur, og dóminn heldur. Brim. Grundir, elfur, salt og sandur, sjós með dunum, undir skelfur allt af fjandans ólátunum. Brimið sti-anga óra er, ymja drangar stórir hér, á fimbulvanga glórir gler, glymja ranga jórarnir. Óveður. Æðir fjúk á Ýmisbúk, ekki er sjúkra veður. Klæðir hnjúka hríð ómjúk, hvítum dúki meður. Langanes. Langanes er ljótur tangi, lygin er þar oft á gangi, Margir bera fisk í fangi, en fæstir að honum búa; samt vil ég til sveitar minnar snúa Áttavísur. (Sunnlenzkar, um 1870). Landsynningurinn veitir oftast vætui', þíðir hann bæði þer og snjó þann, sem vetur jörðu bjó. Búmönnunum býsna þykir hann mætur. Útsynningurinn er svo mikill glanni, ber hann í sig býsna él, birtir aftur næsta vel. Mjög er hann líkur mislyndum manni. Landnyrðingurinn liggur niðri á nóttum, klár er hann og kaldur mest; kindur margar lerkar verst, mæðir þær í megurð og sóttum. Útnyrðingurinn oftast er mjög kaldur, færir hann snjó og fjúkin löng, fyllir með þeim sunda-göng; svalbrjóstaður sá er um allan aldur. ★ Ár 1827: Jón Vídalín stýrimaður (stundum kallaður Indía- fari), bróðir Geirs biskups, gekkst fyrir stofnun samskotasjóðs til styrktar uppgefnum íslenzkum sjófarendum. Var áskorun hans vel.tekið, einkum hér sunnanlands. (Árbók Reykjavíkur). 'k Fyrirlitningarbros særir oft meira en hvössustu orð eða eggjárn. Tnilofunarhríngar, Borðbúnaður, Tækifærisgjafir i góðu úrvali. Guðm. Andrésson, gullsmiSur Lautraveg 50,’. Sími 3769 81 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.