Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1942, Page 15
sjóðs. Ætti það að ýta undir um skjótar fram-
kvæmdir, enda er líklegt að myndarlegt útræði
skapist frá Vattai’nesi strax og lendingarbæt-
urnar eru fengnar.
Úr Norðlendingafjórðungi er einkum hugsað
til framhaldandi hafnarbóta á Hvítserk og rann-
sókn á hafnarbótum í Hrísey á Eyjafirði. 1 Húsa-
vík er þegar komin fyrir nokkru myndarleg haf-
skipabryggja, en hennar nýtur ekki sem skyldi
fyrr en búið er að byggja þarna hafnargarð,
sem lokar höfninni fyrir norðan- og norð-vest-
anátt. Húsavík er nú annar stærsti þorskútgerð-
arstaður á Norðurlandi (Óþifsfjörður stærst-
ur) og bráð nauðsyn myndai’legra hafnarbóta.
1 Hrísey eru nú margar hafskipabryggjur, en
þar sem þær eru allar einkaeign og hreppsnefnd-
inni hefir verið neitað að leggja hafnargjöld á
skip af því að hreppurinn eigi engin hafnar-
mannvirki, er það almenn ósk Hríseyinga að
rannsakað verða á hvern hátt bezt megi koma
upp hafnarmannvirkjum í Hrísey, sem verði al-
menningseign.
Bolvíkingar biðja um dýpkun innanvert við
öldubrjótinn þar. Aðallendingin, svonefnd Brim-
brjótsvör, hefir grynnkað svo síðustu árin, að
sæta verður sjávarföllum til lendingar. Er þarna
um bráðnauðsynlega endurbót að ræða.
Siglingahættan (rekduflin). Frá því síðari
hluta árs 1941 hefir rekduflafaraldrið fyrir
Austfjörðum færzt stöðugt í aukana, og aldrei
verið meira en það sem af er þessu ári, og þó
hafa engin skip verið við eyðingu tundurdufla
fyrir Austfjörðum frá því 1. desember síðastl.
Var málið afgreitt með svolátandi samþykki:
Fiskiþingið skorar á Alþingi og ríkisstjórn,
að gera nú þegar ráðstafanir til að skip sé stöð-
ugt til taks til að eyðileggja tundurdufl (rek-
dufl) við strendur landsins, þar sem þörfin er
brýnust. Bendir þingið í því sambandi á, að
skip, sem framkvæma þetta, verði að stunda það
sem aðalstarf, en megi ekki vera bundin við önn-
ur störf samtímis.
Á. fundi fiskiþingsins 7. marz mætti Pétur
Benediktsson sendiherra. Var rætt við hann um
horfur væntanlegra brezk-íslenzkra verzlunar-
samninga, að því er snertir sjávarafurðir.
Nýir heiðursfélagar kjörnir. Geir Sigurðsson
skipstjóri og Sveinbjörn Egilsson fyrrv. rit-
stjóri Ægis. Hafa báðir þessir menn unnið mik-
ið mikið og gott starf í þágu Fiskifélagsins og
s j ómannastéttarinnar.
Sjómannastofa í Fleetwood. Eitt af þeim mál-
um, sem Fiskiþingið afgreiddi, var starfræksla
sjómannastofu í Fleetwood í Bretlandi, þar sem
íslenzkir sjómenn gætu leitað sér hvíldar og
hressingar og ættu kost íslenzkra bóka og blaða.
Guðjón Jónsson sjómaðnr
frá Ökrum á Miðnesi, nú til heimilis á Þórs-
götu 20 hér í bæ, varð sextugur 12. þ. m.
Guðjón er hreinn afkomandi hins norræna
kynstofns, bæði í sjón og reynd. Hann hefir
verið víkingur á hafinu í meir en 40 ár, fyrst
á opnum skipum á Miðnesinu, og á skútum,
en fjöldamörg síðustu ár á mótorskipum og
hefir helst ekki skift um skiprúm.
Guðjón „er af gamla skólanum", eins og
kallað er, hann hefir aldrei kunnað að svíkj-
ast um neitt, sem honum hefir verið trúað
fyrir, betri félaga og liðsmann er ekki hægt
að fá, t. d. er hann enn allt af fyrstur til dekks
þegar kallað er til vinnu.
í vetur er Guðjón ekki til sjós, en vinnur
við að endurbyggja togarann íslending, en
hann mun fastlega hugsa sér að fara til sjós
aftur, þegar ,,Islendingur“ fer á flot.
Heill og hamingja fylgi þér Guðjón, öll
ófarin æfiár.
S.
Hafði Pétur Benediktsson sendiherra í London
fyrst hreyft nauðsyn þessarar sjömannastofu
og Fiskiþingsfulltrúar lýst stuðningi sínum við
málið. I framhaldi af samþykkt Fiskiþingsins
um sjómannastofu í Fleetwood skutu Fiski-
þingsfulltrúar og stjórn Fiskifélags saman um
2 þús. kr., sem fyrstu krónunum til sjómanna-
stofu í Fleetwood. Mun svo stjórn Fiskifélags-
ins hafa forgöngu um frekari fjársöfnun í þessu
skyni, en Pétur Benediktsson sendiherra vinna
að framkvæmd málsins í Bretlandi.
Fyrir dyrum standa breytingar á skipulagi
fiskveiðamálanna. Kaus Fiskiþingið til aðstoðar
og samstarfs við stjórn Fiskifélagsins um þau
mál þá Arngr. Fr. Bjarnason, Benedikt Sveins-
son og Friðrik Steinsson.
15
VÍKINGUR