Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1942, Síða 20
með hærri þrýstingi. Er hann þá venjulega
dreginn frá einhverju þiðholi aðalvélar.
Hagkvæmasta aðferðin er, að veita af-
streymiseim frá aðalvél inn í veitivatnshit-
arann móti veitivatninu. Hitamagn hans
nýtist þá nálega til fullnustu. Með hitun veiti-
vatnsins minnkar hitafallið og hitaeyðslan
það síðara þó hlutfallslega meira, og nota-
gildi vélarinnar eykst.
Bezt er að taka eim frá nokkrum stöðum á
aðalvél til eimvatnshitunar. Þess fleiri, sem
afrásarstaðirnir eru, og því mair sem vatnið
hitnar, því hærra er notagildi vélarinnar.
Við rannsóknir á ástandi eimsins á mism.
þenslustígi í þrígengisvél með 14 Atm. innst.
þrýstingi og 3% raka, kom í ljós. að hita-
magn eimsins breytist þannig:
Hitamagn eimsins við vélina:
653 k. cal./kg.
I M. þ. biðholi 618 do.
- L. þ. do. 583 do.
- Innst. opi eimsv. 548 do.
í hlutfalli við hitamagnið við vélina, er
hitamagn eimsins þannig í %
M. þ. biðhol 94,5 %
L. þ. do. 89,0 %
Við eimsvala 84,0 %
Við veitivatnshitun með eimi, sem dreginn
er frá aðalvél vinnst það, að eimingarhiti
hans, er endursendur til katlanna og eykur
hann notagildi þeirra
Af framansögðu er auðsætt, að hagkvæm-
ast er að nota þanorku eimsins í sem flestum
strokkum, og nýta síðan sem mest af honum
til hitunar. Þá er og bezt, að eimvatns hitun-
in fari fram í stigum.
Sparnaður sem hægt er að ná með eimv.
hitun og eimi frá aðalvél, er sýndur með
línuritunum I., II. og III.
Með afstreymi (bleeding) frá aðalvél til
eimv. hitunar, útheimtist að sjálfsögðu meiri
eimnotkun frá kötlunum til þess að halda
vissum hestorkufjölda í vélinni. — Eimeyðsla
vélarinnar á hverja hestorkustund (H.O.st.)
evkst. En á sama tíma minkar þó meira hita-
notkun, eða eldsneytisnotkun vélarinnar á
hverja II. O. st., vegna aukins hita í veiti-
vatninu.
Kostir veitivatnshitunar
Þó að veitivatns hitun hafi verið þekkt í
rnörg ár, er það einkum síðustu árin, sem hún
hefir verið metin að verðleikum. Nú leggja
bæði véísmiðir og skipaeigendur mikið kapp
á, að hagnýta sem bezt þessa tiltöiulega ó-
dýru aðferð, við að minka tapið í eimsval-
anum.
Eimvatnshitarar eru oftast tvístiga eða
meir, og næst með því mikil sparnaður.
Kostnaðarverð þessara tækja er tiltölu-
lega lítið miðað við kolasparnað, og borga
þau sig fljótlega — jafnvel á einu ári.
Kostir nýtísku eimvats hitara eru þessir:
I. Eldsneytissparnaður við notkun glat-
eyms vikavéla.
II. Eldsn. sparnaður við notkun afrásar-
eims frá aðalvél. þar sem hann nýtist
betur en við áframhaldandi þenslu í
aðalvél.
VIKINGUR
20