Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1954, Qupperneq 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1954, Qupperneq 23
Ferfætti öpallinn Eftir Aleto Lillius Það síðasta, sem konan mín bað mig, áður en hún lagði af stað til Mexikó, var að koma með rauðan, ljómandi ópal heim handa sér. Hún hafði alla ævi óskað ákaft að eignast slíkan stein. Þegar ég við heimkomuna gaf henni ljósrauð- an, mexíkanskan hund, hárlausan, en með svört- um blettum, varð hún ekki lítið móðguð. Henni fannst aldrei vænt um dýrið. Og hún vildi ekki heyra það, þegar ég sagði henni, að ópalar hefðu ætíð ógæfu í för með sér. ,,Þú skalt ekki telja mér trú um, að mexi- kanskir hundar, sem ekki hafa eitt hár á skrokknum, hafi einhverja gæfu í för með sér“, sagði hún önug. „Ég er ekki vitund smeyk við þá ógæfu, sem fylgir ópölum“. Þetta skeði fyrir tveim árum. Ég fór til Mexikó til að skrifa um einn af þessum árlegu viðburðum: Einn eða annar þarna suður frá hafði kálað forsetanum og vildi sjálfur verða eftirmaður hans. Ég þorði auðvitað ekki að taka konuna mína með, þó hún vildi æf fá að sjá Mexikó. Hún lét mig fara einan, með því skilyrði, að ég kæmi með fyrrnefndan ljómandi rauða ópal heim. Sunnan landamæranna fékk ég bækistöð í aðalstöðvum gamals, herskás hershöfðingja. Hann hét Engenio Martinesz, og hann hafði aðstoðarforingja, sem hann ekki gat liðið. Að- stoðarforinginn hét Don José og var ofursti og rauður í andliti. Ennfremur var hann sköll- óttur sem egg. Dag einn, þegar við höfðum smá hlé frá bar- dögum, var ég á gangi gegnum brennt þorp — ég held það hafi heitið Soledad — og nam stað- ar úti fyrir yfirgefnum reyrkofa. Ekki var sála heima, að yndanskildum öldungis nöktum og soltnum og þyrstum hvolpi. Hann stóð bund- inn við pálmatré með digrum kaðli. Indíánadrengur, sem ráfaði um þorpið, taldi sig vera í ætt við eiganda hundsins, og seldi mér hann fyrir einn peso. Þetta var vingjarnlegur hvolpur, sem hvorki urraði né gelti, en tók mér með hrifningu og V í K I N □ U R gaf frá sér undarlegt hljóð, það kom langt neð- an úr hálsinum. Það var eins oog mannsrödd. A-a-a, sagði hvolpurinn. „Hundurinn vill fá eitthvað að drekka", sagði indíánadrengurinn. „Þessi hundur kann að tala“. Ég sagði honum, að hann hlyti að vera galinn, en gaf hundinum vatn, og hann drakk og drakk, þangað til belgurinn á honum var orðinn eins og útblásinn fótbolti. Ekki hafði hann nokkurt hár á kroppnum. en ofan á hausnum var eins og ofurlítill gras- toppur, morandi af lús. Skinnið var ljósrautt eins og nýbarinn barnsrass, og hann hafði tvo svarta bletti á bakhlutanum. Hann var skítugur og þefillur, en augun voru skær og góðleg. Þegar ég kom aftur í aðalstöðvarnar, og hers- höfðinginn kom auga á snoðna ljóshærða hvolp- inn minn, spurði hann samstundis, hvað hann héti. Þegar ég sagði honum, að hann héti ekki neitt ennþá, glotti hann af meinfýsni. „Hann er álíka rauður og sköllóttur og Don José“, hlakkaði í honum. „Því ekki að kalla hann Don José de Soledad? Flott nafn. í daglegu tali má kalla hann Pepp. Ágætt — sá gamli verður alveg óður. Ha-ha!“ Allt foringjaliðið rak upp hlátur. Ofurstinn var í eftirlitsferð um skotgrafirnar, og þegar hann kom aftur, fann hann alla skellihlægjandi á sinn kostnað. Þegar hann heyrði nafngiftina, greip hann til skammbyssunnar og ætlaði að skjóta hvolpinn. En hershöfðinginn tók í taumana. „Þér gætuð allt að einu skotið mig. Þetta var mín hugmynd. Og svo mynduð þér valda milli- ríkjadeilum. Þetta göfuga dýr, sem er eitt af þeim fáu eftirlifandi af gömlu, fínu hunda- kyni, sem getur talað, tilheyrir vorum ameríska vini“, þrumaði gamla stríðshetjan og benti á mig. „Þér ætlið þó víst ekki að koma Mexikó í stríð við Bandaríkin?“ Ofurstinn starði á mig. Ég var dauðskelkaður um, að hann myndi skjóta mig í bræði sinni. Nú fékk Pepp fyrsta baðið á sinni ungu ævi. Hann gelti ekki, en barmaði sér með aumkunar- B9

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.