Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Page 2
Islenzk kortagerð
Eitt nauðsynlegasta tækið til skipstjórnar
hvar sem er í veröldinni er sjókortið, og það
er því engin furða þótt allar þær þjóðir, sem
mikið eiga undir siglingum og sjósókn komið,
vilji gjarnan hafa þá hluti í sem beztu lagi.
Grundvöllur allra góðra sjókorta er sjálf sjó-
mælingin, þ. e. a. s. mæling á dýpi sjávarins,
straumum, eyjum, skerjum og boðum o. s. frv.
Að þessum upplýsingum fengnum hefst svo
annar þáttur sjókortagerðarinnar, nefnilega að
teikna og prenta hið eiginlega kort, þannig að
öll fyrrnefnd atriði komi þar skýrt og greini-
lega í Ijós.
Kaunverulegar sjómælingar hefjast fyrst hér
við land 1776, er danski skipstjórinn Minor
hóf mælingar í Faxaflóa að tilhlutun dönsku
stjórnarinnar. Frá þeim tíma og allt fram til
1930 sáu svo Danir nær eingöngu um allar
sjómælingar hér en þá hefjast þáttaskil, því
á þeim árum tökum við mælingarnar algjörlega
í okkar hendur. Fyrsti Islendingurinn til að
leggja stund á þau fræði var Friðrik V. Ölafs-
son, skólastjóri Stýrimannaskólans og hóf hann
fyrstu mælingarnar hér sumarið 1931 að af-
loknu námi hjá danska sjókortasafninu. Frá
þeim tima og til þessa dags höfum við svo sjálfir
annast allar okkar sjómælingar.
Fyrsta eiginlega sjókortið, sem gefið var út
af íslandi var gert eftir fyrstu sjómælingunni
af Faxaflóa og gefið út af danska sjókortasafn-
inu árið 1788. Var það jafnframt fyrsta kortið
sem safnið gaf út. Ennfremur hóf safnið út-
gáfu á vandaðri leiðsögubók fyrir sjómenn við
ísland á sama ári. Frá þeim tíma og til þessa
dags hefur svo danska sjókortasafnið gefið út
öll þau sjókort, sem mest eru notuð hér við land.
En eftir því sem innlendu sjómælingunum
óx fiskur um hrygg þá kom í ljós nauðsyn þess
að hafa hér aðgang að æfðum sjókortateikn-
urum og helzt möguleika á að geta prentað eigin
kort hér á landi. Var því fyrir allmörgum ár-
um síðan ákveðið að stefna að þessu marki
og undirbúningur hafinn í þá átt. M. a. var
Guðmundur Guðjónsson fenginn til þess að
leggja stund á þessa iðngrein hjá danska sjó-
kortasafninu. Lauk hann námi þar fyrir um
það bil ári síðan og kom þá strax hingað heim
til þess að setja í gang sjókortagerð hér, og
koma fyrir þeim tækjum sem höfðu verið út-
veguð til þess.
Árangur þessa undirbún-
ings er nú að koma í Ijós, þar
eð fyrsta stóra sjókortið, sem
bæði er teiknað og prentað
hér á landi, sjókort af Norð-
urlandi, frá Horni að Gríms-
ey, er nú tilbúið til notkunar.
Raunar hafa sjómælingarnar
áður gefið út nokkur sjókort,
sem hafa verið bæði prentuð
og teiknuð hér, en þetta er
fyrsta eiginlega sjókortið í
fullri stærð.
Þetta er því mjög merkur
áfangi í starfsemi íslenzku
sjómælinganna, því nú erum
við raunverulega færir um að
standa á eigin fótum í þess-
um efnum. Má segja að þetta
hafi fyrst og fremst náðst
VÍKINGUR
J