Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Qupperneq 3
Guðmundur Guðjónsson (t, h.) og Ólafur Thorlacius
við kortaprentvélina.
Að lokum skal þess getið, að Alþingi og ríkis-
stjórn hefur ætíð sýnt íslenzku sjómælingun-
um hinn mesta skilning og traust, enda er hér
ekki aðeins um að ræða hið mesta nauðsynja-
mál fyrir siglingar okkar og fiskiveiðar heldur
og metnaðarmál okkar sem sjálfstæðrar þjóðar.
enn, — en hvað um það, miklum áfanga er þeg-
ar náð og takmarkið örugglega skammt undan.
Sala og afgreiðsla sjókorta.
fyrir framsýni þeirra manna,
sem upprunalega koma þess-
um málum á stað og síðast
en ekki sízt, vegna frábærrar
hjálpsemi danska sjókorta-
safnsins, forstjóra þess, Pet-
er Jensen, svo og starfsliði
hans öllu, sem með ráðum og
dáð hefur stutt þessa viðleitni
frá upphafi, og m. a. menntað
flesta þá menn, er við mæl-
ingarnar hafa starfað.
Sem sagt, íslenzku sjómæl-
ingarnar eru nú tilbúnar til
að prenta öll þau sjókort, sem
við þurfum, og er undirbún-
ingur undir það, þegar haf-
inn fyrir nokkru. Meðal ann-
ars höfum við fengið hingað
frá danska sjókortasafninu
afrit af öllum þeim sjómæl-
ingum, sem hér hafa verið gerðar frá upphafi
og sem stendur er verið að undirbúa í Dan-
mörku afrit af öllum dönsku sjókortunum af
Islandi, sem við einnig fáum til eigin notkunar.
Er þá eftir að „færa þau í íslenzkan búning“,
ef svo mætti segja, — og þá getur útgáfan haf-
izt fyrir alvöru.
En allur þessi undirbúningur er bæði mikið
og tafsamt verk, og þar sem þeir er að því vinna
eru fáir má búast við að það taki nokkurn tíma
inni vinna nú 4—5 menn allt árið og má búast
við að því starfsliði verði fjölgað á næstunni,
því framundan bíða mikil verkefni bæði til sjós
og lands. Eitt af aðalverkefnum sjómælinganna
í framtíðinni verður m. a. að mæla betur allt
landgrunn Islands, en til þessa hefur ekki ver-
ið hægt að sinna því sem skyldi, aðallega vegna
vöntunar á góðum staðsetningartækjum, þegar
komið er úr augsýn lands.
Hafa sjómælingarnar á undanförnum árum
fylgzt með öllum nýjungum á því sviði, og hafa
nú tilbúnar ákveðnar tillögur í því efni, sem
búast má við að lagðar verði fyrir alþingi í
haust. Ennfremur mun á næstu árum þurfa
nýjan bát til sjómælinga í stað þess, sem nú
er notaður, og er þegar búið að gera uppdrátt
að honum.
SJÓMANNABLAÐIÐ
VÍKINGUR
þess venjulega I heimasíma hans 9177,
ÚTGEFA'NDI: FARMANNA- OG FISKIMANNASAMBAND ÍSLANDS. — Ritstjóri og
ábyrgöarmaóur: Magnús Jensson. — Ritnefnd: Júlíus Ólafsson, Ingólfur Þóröarson, Geir
Ólafsson, Henry Hálfdansson, Hallgrímur Jónsson, Egill Jóhannsson, Blrgir Thoroddsen,
Theodór Gíslason, Páll Þorbjamarson. — Blaðið kemur út einu sinni í mánuði, og kostar
ávgangurinn 60 kr. — Ritstjóm og afgrelðsla er i Fiskhöllinni, Reykjavík. — Utanáskriít:
..Vikingur", pósthólf 425, Reykjavík. Siml 5653. — Ritstjórinn er til vlötals á skrifstofu blaðs-
ins, í Fiskhöllinni, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 9—10 f. h. Laugardaga kl. 1—4 e. h. Auk
eítir kl. 8 á kvöldin. Að ööru leyti eftir samkomulagi. — Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.í.
VÍ K I N □ U R
31