Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Qupperneq 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Qupperneq 5
veðurfar og sjólag og hjálpaði allt þetta til þess að auka aflasæld hans. Aðeins fáir Islendingar hafa stjórnað skipi til fiskveiða hér við land í 35 ár samfellt, enda er það ekki á hvers manns færi. Til þess þarf þrek og jafnvægi, sem aðeins fáum mönnum er gefið. Ekki settist Aðalsteinn í helgan stein eftir það afrek, heldur tók hann sér fyrir hendur að annast rekstur skips síns í landi og var í því öðrum til fyrirmyndar. Engin klukkustund í sólarhringnum var honum svo heilög, að hann væri ekki á samri stundu niður á bryggju eða á hverjum öðrum stað, sem útgerðin þarfnaðist nærvistar hans. Hann krafðist reglusemi í út- gerð sinni, en í þeim efnum sem öðrum var hann strangastur sjálfum sér. Með Aðalsteini á þjóðin á bak að sjá hetju og höfðingja úr sjómannastéttinni. Einn þrótt- mesti kappinn úr forustuliði landsmanna í at- hafnalífinu á þessari öld er fallinn. Aðalsteinn var hár og glæsilegur í vallarsýn, þrekinn í bezta lagi og vörpulegur. Hann var rammur að afli svo orð fór af. Andlitið var sterklegt og frítt, augun snör og þó brá fyrir í þeim kímni og mildi ef svo bar undir. Skapið var mikið, en undir góðri stjórn og vel agað og lundin afburða trygg, enda rétti hann fjölda manna hjálparhönd á langri starfsæfi. Vonir þær, sem bundnar voru við hinn 14 ára formann vestur á Hnífsdal, rættust vegna þess- ara kosta hans á glæsilegan hátt þjóðinni allri til farsældar. Fyrri kona Aðalsteins var frændkona hans, Sigríður Pálsdóttir frá Hnífsdal. Lézt hún eftir 15 ára sambúð þeirra, þau eignuðust 6 börn og eru 5 þeirra á lífi, þau Páll togai'askipstjóri, bú- settur í Englandi, Sigríður lyfjafræðingur, össur starfsmaður Olíuverzlunar Islands, Guð- björg kona Ólafs Finsen framkvæmdastjóra og Elín, ógift. Árið 1932 giftist Aðalsteinn aftur Elísabetu Jónsdóttur frá Hnífsdal. Eignuðust þau einn son, Jónas Aðalstein, sem nú nemur lögfræði. Sjómannastéttin blessar minningu Aðalsteins Pálssonar. Vinur. — Smœlki — Reiður farþegi við járnbrautarþjóninn: — Hvað á það að þýða, að klukkan á pöllunum sýnir annan tíma en á stöðvarbyggingunni? — Ja, hvað eigum við að gera með tvær klukkur, sem báðar sýna sama tíma? V í K I N □ U R Nýtt tímarit, „VEÐRIÐ" Félag íslenzkra veðurfræðinga hefur nýlega hafið útgáfu á tímaritinu „Veðrið“, en það er alþýðlegt tímarit um veðurfræði. Telja má víst, að alþýðlegur fróðleikur um veðurfar sé kær- kominn mörgum íslendingum, einkum sjómönn- um, útgerðarmönnum og bændum, svo og öðr- um, sem áhuga hafa á slíkum málum, en þeir eru margir, því að svo mjög er öll afkoma Is- lendinga háð veðurfari. I 1. tölublaði, 1. árgangs, sem út kom í byrjun febrúar þ. á., má m. a. nefna eftirtaldar grein- ar: Hitastig yfir Keflavík, eftir Jónas Jakobs- son. Langviðrasumarið 1955, eftir Pál Berg- þórsson. Mannskaðaveður á Halamiðum, eftir Borgþór H. Jónsson. Vorhretið 1955, eftir Ólaf Einar Ólafsson. Veðurspár hófust fyrir 100 ár- um, eftir Jón Eyþórsson. Hafa kjarnorku- sprengjur áhrif á veðrið, eftir Jón Eyþórsson. Elztu veðurathuganir, eftir Jón Eyþórsson. Urð- armáni og vígahnettir, eftir Jón Eyþórsson. Þrumuveðrið mikla 21. júní 1933, eftir J. Sig- finnsson. Og m. fl. Útgefendur gera ráð fyrir að tvö hefti komi út á ári og er verð hvers heftis kr. 10,00 eða kr. 20,00 árgangurinn. Afgreiðslumaður er Geir Ólafsson, Drápuhlíð 27, Reykjavík. Leiðrétting 1 greinni „Brot úr sögu“ í síðasta tölublaði Víkings (1. og 2. tbl.) urðu þau leiðinlegu mis- tök, að efnið brenglaðist mjög á tveimur stöðum. í fjórðu málsgrein stendur: — „Sú þjóð, sem ekki trúir á það skipulag, er hún býr við, er í hættu stödd. Þeir menn, hvort heldur á Alþingi íslendinga eða í hinum ýmsu atvinnugi'einum þjóðarinnar og ýmist beygja sig um of fyrir kröfum peninganna, eða eru með því — “ o. s. frv. Á að vera: — sem ýmist beygja sig fyrir kröfuþunganum um of e'öa eru meö þessu —. 1 fimmtu málsgrein stendur: — „ — Þá má gera ráð fyrir að kröfurnar á hendur atvinnu- vegunum ríði þeim að fullu — “. Á að vera: — ríöi þeim eigi aö fullu. Greinai’höfundur (Á. S.) og lesendur blaðs- ins eru vinsamlega beðnir að afsaka þessar meinlegu villur. — Ritstj. 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.