Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Síða 27
 ERLENDAR FRÉTTIR. 7/10. Lagt hefur verið fram í finnska þinginu frumvarp um að Finnland gerðist aðili að Norður- landaráðinu, en það hefur verið utan þess. 12/10. Verkamannaflokkur Japans, sem hefur verið klofinn í tvennt í 4 ár, ætlar að sameinast á ný. Verð- ur hann stærsti flokkur landsins með 255 þingsæti. • 14/10. Talið er að um 1200 manns hafi farizt í hinum miklu flóðum, sem nú geysa í Norð-vesturhluta Indlands. • 16/10. Kveðinn hefur verið upp dómur í Þórshöfn yfir 31 Færeyingi vegna átakanna út af læknamálinu í Klaltksvík. 18/10. Brezkum vísindamönnum hefur tekizt að fletta húðinni af bakteríum og segjast þar hafa stigið skref í áttina til þess að búa til líf með efnafræðilegum aðferðum. • 19/10. Búizt er við að í náinni framtíð muni fyrsta kjarnorkuknúna flugvélin hefja sig til flugs, annað hvort í Sovétríkjunum eða Banda- ríkjunum. • 21/10. Sænskur lífefnafræðingur, Hugo Theorell, forstöðumaður líf- efnafræðistofnunar Nóbels í Stokk- hólmi, var sæmdur Nóbelsverðlaun- unum í lífeðlis- og læknisfræði. • 23/10. Hæstiréttur Bandarikjanna hefur nú ákveðið, að rannsókn skuli fara fram á tengslum General Motors-fyrirtækisins og Du Pont- ættarinnar. 25/10. Einstæður fornleifafundur var nýlega gerður í Danmörku, þeg- ar skartgripir úr gulli fundust í gröfum frá bronsöld. • 27/10. Utanríkisráðherrar Banda- ríkjanna, Bretlands og Sovétríkjanna koma saman til fundar, sem haldinn er í Genf í Sviss. 29/10. Danska stjórnin hefur á- kveðið að reisa nýtízkulega 24 kw. útvarpsstöð á Grænlandi. Verður hún reist á eyju í mynni Godthaab- fjarðar. • 31/10. Ben Moulay Arafa Marokko- soldán hefur lagt niður völd, og beðið þjóðina að sameinast um Sidi Mohammed Ben Youssef, fyrrver- andi soldán sem þjóðarleiðtoga. 1/1. Bardagar hafa brotizt út milli ísraelskra herflokka og egypzkra fyr- ir sunnan afvopnaða svæðið nálægt Gaza. • 3/11. Norska stórþingið hefur á- kveðið að veita yfirmanni flótta- mannastofnunar S. þ., Hollendingn- um dr. van Heuven Goedhart friðar- verðlaun Nóbels fyrir árið 1954. • 5/11. Mikil flóð eru nú í British Columbia í Kanada og Washington- fylki í Bandaríkjunum, og hafa mörg hundruð fjölskyldur orðið að flýja heimili sín. • 7/11. Mikil ólga ríkir nú í lönd- unum Afganistan og Pakistan vegna þess að þau hafa slitið stjórnmála- sambandi hvort við annað. 9/11. Undirbúningur er hafinn að byggingu stlflugarðs í Níl í Egypta- landi, sem verður sá mesti í heimi. Búizt er við að það muni taka 10.000 menn í 10 ár að byggja stífluna. • 11/11. Ameríska verkalýðssam- bandið CID hefur nýlega gefið am- eríska Rauða krossinum 187 þúsund dollara til styrktar þeim, er illa urðu úti í flóðunum í Bandaríkjun- um í sumar. 13/11. Jarðfræðirannsóknir í Nor- egi hafa leitt í ljós, að talsvert magn úraníums er í jörðu á svæðinu við Modum skammt frá Osló. Er þetta mesti úraníumfundur þar í landi til þessa. • 14/11. Bylting gerð i Brazilíu og stendur herinn að henni. Forsetan- um Luz hefur verið vikið frá. — Um 100 fangar á eynni Kýpur gerðu uppþot og reyndu að brjótast út úr kastalafangelsi þar á eynni. • 16/11. Tuttugu og þriggja ára gamall Bandaríkjamaður hefur játað að hafa komið fyrir vítisvél í flug- vél, sem fórst fyrir skömmu með öllum innanborðs, 44 mönnum. • 18/11. Til óeirða kom í Klakks- vík, þegar dómar í máli Klakksvik- urmanna voru gengnir. Var rafmagn rofið, vegir tepptir og grjótkast gert að lögreglumönnum. 20/11. Bandarískur leiðangur, er var að leita að týndum fjársjóði, hefur fundið heilan skipsfarm af gulli og silfurpeningum á botni Vigo- flóa á VesturstrÖnd Spánar. 22/11. 10 manns voru drepnir og 24 særðir í óeirðum, sem urðu í Bombay á Indlandi nýlega. Eru þetta mestu óspektir, sem orðið hafa þar árum saman. 24/11. Fimm fyrrverandi opinber- ir starfsmenn í Grúsíu hafa verið skotnir fyrir föðurlandssvik, og tveir aðrir dæmdir til langrar fangelsis- vistar. VIKINGUR 55

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.