Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Side 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Side 2
Júlíus Havsteen, sýslumaður: Betur mú, ef duga skul Frá því að grein mín „Rýmkun landhelginnar er lífs- shilyrði fyrir íslenzku þjóðina“ birtist í sjómannablað- inu „Vikingur" í apríl og maí 1953 og í dagblaðinu „íslending" um sama leyti, hafa gerst stór tíðindi og merkileg. Englendingar, sem við okkur hatast útaf rýmkun íslenzku landhelginnar, fengu með sér í maí 1954 full- trúa Belgíu, Frakklands og Hollands í Evrópuráðinu svonefnda til þess, að krefjast þess, að fiskveiðaland- helgin íslenzka, eða friðun hinna íslenzku fiskimiða, yrði rædd í þessu ráði. Með tilliti til þess, að hinn almenni þjóðarréttur hefir aldrei sett ákveðnar reglur um stærð landhelgi, og að hvert ríki má sjálft ákveða víðáttu fiskiveiðalög- sögu sinnar með hliðsjón af lagalegum, sögulegum og siðferðilegum rétti til þess, hefði máske verið réttast af hálfu íslenzkra stjórnarvalda, að neita þessu og það myndi stórveldi hafa gert, sem gat sýnt Bretum í tvo heimana, en íslenzka þjóðin er hin fámenna og fátæka, sem óhætt er að níðast á að dómi „veldisins" og því það ráð upp tekið af hálfu íslenzku ríkisstjórnarinnar, að láta rökin tala fyrir gjörðum okkar í landhelgismálinu og þetta er gjört í svonefndri „hvítbók" í september 1954. Og sannarlega hefir vel tekist, enda málstaðurinn 5S góður. I þessari hvítbók eru færð hin sterkustu rök fyrir því, að við höfum skýlausan, lagalegan og sögu- legan rétt til þess að rýmka landhelgi okkar Islendinga eins og gert er jneð friðunarlínunni í reglugerð þeirri, sem í gildi gekk 15. mai 1952. Og sömuleiðis er þar allvel rökstuddur hinn siðferðilegi og fjárhagslegi rétt- ur okkar og nauðsyn til þessarar víkkunar, þó líklega megi þetta atriði, sem á svo miklu veltur, enn betur sanna, sem ég síðar í þessari ritgerð vík að. Eins og við mátti búast, gátu Englendingar ekki tekið þessari vel sömdu hvítbók með stillingu eða sanngirni, heldur sendu Evrópuráðinu „memorandum", sem þeir nefndu „The dispute with Iceland", full af feimu- lausum staðhæfingum og purkunarlausum ósannindum um landhelgismálið og ber þetta rit ensku stjórnarinn- ar sorglega mikinn keim af óhróðri þeim og ósannind- um, sem breskir togaraeigendur létu sér sæma að setja saman og auglýsa í heimsblöðunum um landhelgismálið og meðferð á enskum togurum við íslandsstrendur, en hraktar voru lið fyrir lið af herra Huntley Woodcock, fiskiveiðaráðunaut íslenzka sendiráðsins í London sbr. þýðingu í Morgunblaðinu 1. sept. s.l. á grein hans. Aftur lét ríkisstjórn Islands á þessu ári semja hvít- bók, en með henni má segja, að orði til orðs og lið fyrir lið séu hraktar staðhæfingar, ósannindi og útúrsnúning- arnir í hinu enska plaggi, en það er sá galli, og hann vissulega stór, á þessum hvítbókum, að þær virðast aðeins ritaðar á tungu þeirrar þjóðar, sem mest hefir ofsótt okkur og óvirt í landhelgismálinu, en ekki á sínu móðurmáli, a. m. k. hafa þær ekki birst almenningi á íslenzku og það er þó fyrst og fremst íslenzka þjóðin sem vita á allt það sem gert er og sagt l þessu stærsta velferðarmáli hennar. Nú eru þessi mistök auðvitað ekki gerð þjóðinni til lítilsvirðingar, heldur aðeins af því að hinir útlendu aðilar skilja ekki íslenzku og því verður að nota enskuna, en engu að síður má ekki við svo bú- ið standa, því leyfi ég mér að fara þess eindregið á leit við hlutaðeigandi stjórnarvöld, að sem allra fyrst verði hvítbækurnar gefnar út á íslenzku og dreift út til fiskideildanna um land allt og til útgerðarmanna. Rétt er og að þýðing af enska ritinu sé látið fylgja. I upphafi um hvítbækurnar tók ég það fram, að mér fyndist enn betur mega en í þeim er gert, rökstyðja og sanna svo ekki verði á nokkum hátt um deilt, nauðsyn þá, sem beinlínis knúði Alþingi og ríkisstjórn til þess fyrir þjóðarinnar hönd að fara þá leið, sem valin var til þess að friða fiskimiðin, sem voru svo uppurin orðin V í K I N □ U R J

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.