Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Blaðsíða 10
útgerðarstjóri. Jens hafði verið skipstjóri á Hólmaborg allan tímann frá því skipið kom til landsins. Á Hólmaborg voru fjórir menn. M.b. Hólmaborg. Skipstjórinn hét fullu nafni Jens Pétur Thor- berg. Hann var fæddur í Reykjarfirði 23. sept. 1908, sonur Þórunnar Markúsdóttur og Vilhelms Péturs Jensen, er þá rak verzlun á Reykjar- firði. Skömmu eftir að Jens fæddist, fluttust foreldrar hans til Eskifjarðar, en þar rak faðir hans verzlun og útgerð um árabil. Þórunn er látin fyrir nokkrum árum, en Vilhelm Jensen rekur heildsölu í Reykjavík. Árið 1934 kvænt- ist Jens eftirlifandi konu sinni önnu Finnboga- dóttur skipstjóra Jónssonar á Fáskrúðsfirði. Þeim varð sex barna auðið, tvö börn misstu þau ung, en þrjú eru á lífi, fjórtán, níu og f jögra ára. Jens Jensen, eins og hann var oftast nefndur, gerðist snemma formaður, tók þá smáskipapróf, en síðar, árið 1946, tók hann fiskiskipapróf við Stýrimannaskólann. — Jens var hversdagslega hlédrægur og dulur í skapi, en hafði þó næmt auga og eyra fyrir því, sem broslegt var. Hann var gæddur ríkri listhneigð. Á bernsku- og unglingsárum fékkst hann talsvert við að mála, en hætti því, er hann varð fulltíða maður. Hann hafði óvenju fallega söngrödd, en beitti henni ekki hversdagslega. Listhneigðin gat verið kyn- fylgja úr báðum ættum. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund. Herbert Þóröarson, er var stýrimaður á Hólmaborg þessa ferð, var fæddur í Norðfirði (síðar Neskaupstað) 8. sept. árið 1913. Sonur Stefaníu Ármannsdóttur og Þórðar Björnsson- ar skipstjór^ þar. Stefanía er látin fyrir nokkr- um árum, en Þórðar er búsettur í Neskaupstað. Herbert kvæntist árið 1938 Sigríði Sigurðar- dóttur skipstjóra Jónssonar í Neskaupstað. Læt- ur eftir sig konu og eitt kjörbarn, 13 ára dreng. Hann lauk fiskimannaprófi úr Stýrimannaskól- anum árið 1938. Hertbert hefur starfað í Neskaupstað eða á bátum þaðan mestallan sinn starfsdag. Hann flutti ísvarinn fisk til Englands öll stríðsárin. Sigldu þeir oftast á sama skipi, hann og Þórður faðir hans. Það var því engin nýjung fyrir Her- bert að koma til Englands, enda ætlaði hann heim aftur með fyrstu flugferð. Herbert fékkst meðal annars talsvert við kennslu í siglingafræði. Veitti forstöðu nokkur undanfarin ár námskeiði í siglingafræði á veg- um Stýrimannaskólans. Herbert var mesta ljúfmenni í umgengni, glaðlyndur og góður félagi. Efalaust finna margir sveitungar hans og reyndar fleiri, að þeir eiga nú á bak að sjá traustum manni og góðum vini. Vilhelm Pétur Jensen, vélstjóri, var fæddur á Eskifirði 7. sept. árið 1935, sonur skipstjór- ans og önnu konu hans. Hann var kvæntur Margréti Gunnarsdóttur vélstjóra Hallgríms- sonar á Eskifirði. — Vilhelm þekkti ég minnst þeirra manna, er voru á Hólmaborg, en mér er tjáð, að hann hafi verið mesti efnismaður. Hann lætur eftir sig unga konu og tvö korn- ung börn. Sigurðwr Jónsson var fjórði maðurinn á Hólmaborg. Hann var fæddur á Eskifirði 28. sept. 1909, sonur Margrétar Pálsdóttur og Jón- asar Jónssonar, er lengi var rafstöðvarstjóri á Eskifirði og er nýlega látinn. — Sigurður er fimmta barnið uppkomið, sem Margrét sér á bak, en nú hefur hún misst sjö börn sín af ellefu, en mér er sagt, að enn hafi hún reynzt sama hetjan og áður undir svipuðum kringum- stæðum. Þá má geta þess, að Margrét, ekkja Vilhelms vélstjóra, er dótturdóttir hennar og uppeldisdóttir og býr hjá ömmu sinni með bæði ungu börnin sín. Árið 1933 kvæntist Sigurður Ingigerði Bene- diktsdóttur, ættaðri úr Húnavatnssýslu. Lifir hún mann sinn, ásamt sex börnum þeirra, þar af tvö innan 10 ára aldurs. Sigurður var hættur sjómennsku fyrir 9 ár- um. Ætlaði aðeins að bregða sér til Skotlands þessa ferð og hafði pantað far heim aftur með fyrstu flugferð. Á síðustu árum vann hann við vegagerð ríkisins, stjórnaði jarðýtu. Þegar ég var á ferð á Austurlandi á síðasta sumri og fór um nýlagða vegi, heyrði ég borið á hann mikið lof fyrir dugnað og hagsýni í starfi. Þau hrósyrði komu mér engan veginn á óvart eftir þau kynni, er ég hafði haft af Sigurði fyrr á árum. Þeir Jens og Sigurður voru báðir með mér VÍKINGUR 66

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.