Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Síða 10
útgerðarstjóri. Jens hafði verið skipstjóri á
Hólmaborg allan tímann frá því skipið kom til
landsins. Á Hólmaborg voru fjórir menn.
M.b. Hólmaborg.
Skipstjórinn hét fullu nafni Jens Pétur Thor-
berg. Hann var fæddur í Reykjarfirði 23. sept.
1908, sonur Þórunnar Markúsdóttur og Vilhelms
Péturs Jensen, er þá rak verzlun á Reykjar-
firði. Skömmu eftir að Jens fæddist, fluttust
foreldrar hans til Eskifjarðar, en þar rak faðir
hans verzlun og útgerð um árabil. Þórunn er
látin fyrir nokkrum árum, en Vilhelm Jensen
rekur heildsölu í Reykjavík. Árið 1934 kvænt-
ist Jens eftirlifandi konu sinni önnu Finnboga-
dóttur skipstjóra Jónssonar á Fáskrúðsfirði.
Þeim varð sex barna auðið, tvö börn misstu þau
ung, en þrjú eru á lífi, fjórtán, níu og f jögra ára.
Jens Jensen, eins og hann var oftast nefndur,
gerðist snemma formaður, tók þá smáskipapróf,
en síðar, árið 1946, tók hann fiskiskipapróf við
Stýrimannaskólann. — Jens var hversdagslega
hlédrægur og dulur í skapi, en hafði þó næmt
auga og eyra fyrir því, sem broslegt var. Hann
var gæddur ríkri listhneigð. Á bernsku- og
unglingsárum fékkst hann talsvert við að mála,
en hætti því, er hann varð fulltíða maður. Hann
hafði óvenju fallega söngrödd, en beitti henni
ekki hversdagslega. Listhneigðin gat verið kyn-
fylgja úr báðum ættum. Hann var þéttur á velli
og þéttur í lund.
Herbert Þóröarson, er var stýrimaður á
Hólmaborg þessa ferð, var fæddur í Norðfirði
(síðar Neskaupstað) 8. sept. árið 1913. Sonur
Stefaníu Ármannsdóttur og Þórðar Björnsson-
ar skipstjór^ þar. Stefanía er látin fyrir nokkr-
um árum, en Þórðar er búsettur í Neskaupstað.
Herbert kvæntist árið 1938 Sigríði Sigurðar-
dóttur skipstjóra Jónssonar í Neskaupstað. Læt-
ur eftir sig konu og eitt kjörbarn, 13 ára dreng.
Hann lauk fiskimannaprófi úr Stýrimannaskól-
anum árið 1938.
Hertbert hefur starfað í Neskaupstað eða á
bátum þaðan mestallan sinn starfsdag. Hann
flutti ísvarinn fisk til Englands öll stríðsárin.
Sigldu þeir oftast á sama skipi, hann og Þórður
faðir hans. Það var því engin nýjung fyrir Her-
bert að koma til Englands, enda ætlaði hann
heim aftur með fyrstu flugferð.
Herbert fékkst meðal annars talsvert við
kennslu í siglingafræði. Veitti forstöðu nokkur
undanfarin ár námskeiði í siglingafræði á veg-
um Stýrimannaskólans.
Herbert var mesta ljúfmenni í umgengni,
glaðlyndur og góður félagi. Efalaust finna
margir sveitungar hans og reyndar fleiri, að
þeir eiga nú á bak að sjá traustum manni og
góðum vini.
Vilhelm Pétur Jensen, vélstjóri, var fæddur
á Eskifirði 7. sept. árið 1935, sonur skipstjór-
ans og önnu konu hans. Hann var kvæntur
Margréti Gunnarsdóttur vélstjóra Hallgríms-
sonar á Eskifirði. — Vilhelm þekkti ég minnst
þeirra manna, er voru á Hólmaborg, en mér er
tjáð, að hann hafi verið mesti efnismaður.
Hann lætur eftir sig unga konu og tvö korn-
ung börn.
Sigurðwr Jónsson var fjórði maðurinn á
Hólmaborg. Hann var fæddur á Eskifirði 28.
sept. 1909, sonur Margrétar Pálsdóttur og Jón-
asar Jónssonar, er lengi var rafstöðvarstjóri á
Eskifirði og er nýlega látinn. — Sigurður er
fimmta barnið uppkomið, sem Margrét sér á
bak, en nú hefur hún misst sjö börn sín af
ellefu, en mér er sagt, að enn hafi hún reynzt
sama hetjan og áður undir svipuðum kringum-
stæðum. Þá má geta þess, að Margrét, ekkja
Vilhelms vélstjóra, er dótturdóttir hennar og
uppeldisdóttir og býr hjá ömmu sinni með bæði
ungu börnin sín.
Árið 1933 kvæntist Sigurður Ingigerði Bene-
diktsdóttur, ættaðri úr Húnavatnssýslu. Lifir
hún mann sinn, ásamt sex börnum þeirra, þar
af tvö innan 10 ára aldurs.
Sigurður var hættur sjómennsku fyrir 9 ár-
um. Ætlaði aðeins að bregða sér til Skotlands
þessa ferð og hafði pantað far heim aftur með
fyrstu flugferð. Á síðustu árum vann hann við
vegagerð ríkisins, stjórnaði jarðýtu. Þegar ég
var á ferð á Austurlandi á síðasta sumri og
fór um nýlagða vegi, heyrði ég borið á hann
mikið lof fyrir dugnað og hagsýni í starfi. Þau
hrósyrði komu mér engan veginn á óvart eftir
þau kynni, er ég hafði haft af Sigurði fyrr á
árum.
Þeir Jens og Sigurður voru báðir með mér
VÍKINGUR
66