Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Blaðsíða 21
býzka orustuskipið Bismarck. venjulegum sjónauka, en í hinu stóra f jarlægð- armælitæki kom fram dauf mynd af skipinu. Brezkt beitiskip af Londongerðinni! Klukku stund síðar kemur skip- ið aftur í ljós. Sama mynd. Bismarck skýtur af stærstu fallbyssunum og beitiskipið skýzt á ný inn í þokuna. B r e z k a beitiskipið Suffolk hafði lónað á Grænlandshafi í þrjá daga, og er nú komið í tæri við Þjóðverjana. — Allt í einu sjást þýzku herskipin aftur og Suf- folk stingur sér inn í þokuna og sendir um út loftskeytamerki um að óvinurinn sé fundinn. Norfolk nær tilkynningunni og stefnir með fullri ferð þangað sem þýzku herskipin sáust. Kl. 2030 siglir Norfolk útúr þokubakkanum og er nú andspænis óvinunum, sem þegar hefja skothríð. Tvær 38 sm. sprengikúlur strjúkast við beiti- skipið og sú þriðja fellur í kjöifar þess, en Nor- folk flýr inn í þokuna. Vestur í hafi fer veður óðum versnandi. Rign- ing og þokusúld myrkva dvínandi skímu norð- lægrar vornætur. Hinar daufu myndir hverfa af myndflötum ratsjánna, og um tveggja stunda skeið eru Þjóðverjarnir horfnir sjónum. Forustuskip Hollands varaaðmiráls, orustu- skipið Hood hafði nú móttekið fréttirnar um að Þj óðverj arnir væru fundnir, en af óskýrðum or- sökum náðist hin fyrsta tilkynning Suffolk ekki, og við það fór dýrmætur tími forgörðum, en nú siglir Hood með 28 mílna hraða í áttina að þýzku herskipunum. I dögun batnar skyggnið og sjóinn lægir. Kl. 0510 eru brezku herskipin búin til orustu og kl. 0535 koma þýzku herskipin í ljós í mikilli fjarlægð. Bretarnir hefja skothríðina í 21 km. fjarlægð, og þeim er svarað samstundis. Bismarck er aðal- skotmarkið, en kúlurnar falla í sjóinn allt að því 100 m. frá honum. Skot frá Prinz Eugen hæfir Hood og eldur brýzt út á afturþilfari hans. Á sömu mínútu fær svo Hood „breiðsíðu” frá Bis- marck. Eldsúla rís mörg hundruð metra í loft upp og hræðileg sprenging skekur orustuskipið. 38 sm. sprengikúla hefir hæft aftari skotfæra- geymsluna og Hood brotnar í tvennt. Stolt brezka flotans, stærsta orustuskip heimsins hverfur af yfirborði hafsins. Af 1300 manna áhöfn er 3 bjargað. Eftir örskamma stund kemur blágrár skip- skrokkur fram á myndfleti fjarlægðamæla þýzku orustuskipanna. Það er nýjasta og bezt útbúna orustuskip Breta Prince of Wales og þýzku herskipin hefja æðisgengna skothríð. Mörg skot hæfa Prince of Wales og eldur brýzt út miðskipa. Orustuskipið beygir fyrst í bak og síðan í stjórn- borða og Þjóðverjarnir sjá að það dregur sig út úr orustunni, sem geysað hafði nákvæmlega í 24 mínútur. Á Prince of Wales fá menn nóg um að hugsa, 10. hverja sekúndu rignir þýzkri „breiðsíðu” niður yfir orustuskipið. Sprengikúla hæfir or- ustuturn skipsins og springur á stjórnpalli að- mirálsins. Allir yfirmennirnir, sem þar höfðu stöðu, eru drepnir eða hættulega særðir, að und- anskildum Leach foringja skipsins og fyrsta merkjamanni. í stjórnklefanum undir stjórn- palli foringjans drýpur blóð á sjókortin. í or- ustuklefanum nokkra metra í bui'tu heyrðu menn ekki hvað gerzt hafði fyrir orustugnýnum, sem stendur látlaust, en sambandið við stjórn- klefann var rofið. Tveir af stærstu orustuturn- um Prince of Wales verða óvirkir vegna tækni- legra mistaka. Gegnum skotgöt undir sjólínunni hafa streymt inn um 400 tonn af sjó, og margt hefir farið úr skorðum. Leach aðmiráll ákveður að hopa af hólmi. „Hood hefir sprungið í loft upp”. Þessari ægi- legu frétt lýstur eins og sprengju niður í bygg- ingu brezku flotastjórnarinnar, og nú komst að- VÍKIN □ U R 77

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.