Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Side 15
M.s. AKRABORG
Enn hefur íslenzka skipastólnum bætzt nýr
og glæsilegur farkostur með komu m.s. Akra-
borgar hingað til lands 26. marz s.l.
TJtgerðarfélagið Skallagrímur hefur hér náð
nýjum áfanga í starfsemi sinni. Frá því 1952
hefur félagið orðið að notast við m.s. Eldborgu
á leiðinni Borgnarnes-Akranes-Reykjavík, en
þrátt fyrir breytingu, sem á skipinu var gerð,
var augljóst, að aðeins gat verið um bráða-
birgðalausn að ræða.
Þegar eftir missi m.s. Laxfoss leitaði útgerð-
arfélagið eftir að fá keypt hingað skip, sem
hentaði til þessara flutninga, en þegar það tókst
ekki, var þeim Gísla Jónssyni alþm. og Erlingi
Þorkelssyni vélfræðingi falið að gera teikning-
ar að nýju skipi og leita tilboða í smíði þess.
Tekið var tilboði frá skipasmíðastöð H. C.
Christensen í Marstal í Danmörku, og voru
smíðasamningar undiri’itaðir í apríl 1954.
Akraborg er smíðuð úr stáli eftir ströngustu
kröfum Lloyds, *í<100A 1, og styrkt sérstaklega
til þess að sigla í lagís, 135 fet á lengd, 26 fet
á breidd, 357,77 rúmlestir, útbúin sem farþega-,
vöru- og olíuflutningaskip, getur flutt 250 far-
þega, 95 tonn af vörum í tveim farmrúmum,
76 tonn af olíu og auk þess 5 bifreiðir á þilfari.
Tveir salir eru fyrir farþega. Efri salur á
þilfari með borðum og sætum fyrir 34 farþega
og salur niðri í skipinu með borðum og sætum
fyrir 50 farþega. Þá eru fjögur farþegaher-
bergi, þrjú 2ja manna og eitt 4ra manna. Sæt-
unum má breyta í hvílur þannig, að 38 svefn-
hvílur verða fyrir farþega. Einnig er sérstakur
sjúkraklefi, sem gengið er í frá aðalþilfari.
Akraborg er tveggja skrúfu skip, með tvær
6 strokka fjórgengis Ruston-Hornsby Diesel að-
alvélum. Hjálparvélarnar eru þrjár, einnig af
Ruston-Hornsby gerð, og framleiða 55 Kw hver
við 220 V-spennu. Ganghraðinn er 13 mílur.
Vistarverur skipsins, bæði áhafnar og far-
þega, eru þiljaðar ýmist með póleruðu birki eða
mahogny. Áklæði allt er mjög smekklegt og úr
vönduðu efni.
Skipið er útbúið 25 mílna Decca ratsjá, M. P.
Pedersen talsendir, móttöku- og miðunartækjum
og hátalarakerfi um allt skipið. Dýptarmælir
er Kelvin Hughes af nýjustu gerð.
nórður Guðmunds-
son, skipstióri
á Akraborg.
Fullkomið loftræstingarkerfi er í íbúðum
skipverja og í farrýmum. Kostnaðarverð skips-
ins mun vera um 6 millj. ísl. kr.
Skipstjóri á Akraborg er Þórður Guðmunds-
son, 1. stýrimaður Gunnar Magnússon, 2. stýri-
maður Guðjón Vigfússon, 1. vélstjóri Óskar
Valdemarsson, 2. vélstjóri Haraldur Lúðvíks-
son, 3. vélstjóri Halldór Guðbjartsson. Bryti er
Halldór Pétursson. Framkvæmdastjóri skipsins
er Friðrik Þorvaldsson.
Yfirleitt virðist hvergi hafa verið til sparað
að gera Akraborg sem bezt og haganlegast úr
garði og er ástæða til að óska þeim Gísla Jóns-
syni og Erlingi Þorkelssyni ti) hamingju með
vel unnið starf, en á þeim hefur hvílt umsjón
með smíði skipsins og útbúnaði. Þá hefur stjórn
h.f. Skallagríms haft fullan hug á því að Akra-
borg geti gegnt hlutverki sínu um langa fram-
tíð sem mikilsverður liður í samgöngukerfi
landsmanna. — G. J.
SIMRAD
DYPTARMÆLAR
ASDIC-ÚTBÚNAÐUR
DÝPTARMÆLAPAPPÍR
TALSTDÐVAR
S □□ 40. 5 OG 70 WATT
FRIÐRIK A.JONSSDN
GARÐASTRÆTI 11
SÍMI 4135
V I K I N □ U R
71