Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Síða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Síða 18
75 ára: Hinn 10. marz s.l. varð Gísli J. Johnsen, stórkaupmaður, 75 ára. — Þess er varla kostur í fáum línum að stikla nema á því helzta, sem þessi landskunni athafna- og hug- sjónamaður hefur afrekað á langri ævi, og svo er gott til að vita, að hann virðist ennþá í fullu fjöri og líklegur til þess að halda uppi sínu merki enn um nokkurt skeið. Gísli J. Johnsen er fæddur í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp. Aðeins 16 ára að aldri hóf hann útgerð með því að eignazt hlut í áttæringi, og varð það upphafið að löngu og heillaríku starfi hans í útgerðarmál- um í Vestmannaeyjum. Mun óhætt að fullyrða, að saga Vestmannaeyja hefði Orðið með nokkuð öðrum hætti hefði Gísli ekki orkað þar á atburð- anna rás. Árið 1904 lét Gisli smíða bát, þar sem ráð var gert fyrir vél. Var það frumsmíð hér á landi, og leið ekki á löngu áður en allur bátafloti Vest- mannaeyinga var orðinn vélknúinn. Þá var Gísli aðal hvatamaður þess að byggt var frystihús í Vestmanna- eyjum árið 1908, en það var hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Þótti þar djarflega að verið og ekki trútt um, að sumum þætti ganga glapræði næst. En afstaða manna breyttist fljótt, þegar í ljós kom hvílíkt hag- ræði slíkt hús var til geymslu á beitu o. fl. Gísli J. Johnsen átti einnig sinn drjúga þátt í því, að byggð var fiskimjöls- verksmiðja í Vestmannaeyjum, hin fyrsta hér á landi. Var þar um mjög þýðingarmikið fram- faraspor að ræða, þar sem öllum beinum og hausum, sem nú var malað og flutt út, vai- áður hent. Enda þykir nú sjálfsagt, að fiski- mjölsverksmiðjur séu í öllum verstöðvum, og fiskimjölið drjúgur liður í útflutningsverðmæt- um landsmanna. Lýsisbræðslu lét Gísli einnig reisa og starfrækti hana með útlendum kunn- áttumönnum. Enda þótt aðallífsstarf Gísla hafi verið tengt GÍSLI J. JOHNSEN stórkaupmaður 74

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.