Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Blaðsíða 5
gerir maður stundum á svona stöðum. En nú var ég að ná í egg, og þá fæ ég mig ekki til að gjöra nokkrum fugli mein. Svo stóð ég upp, voru þá um 100 fuglar eftir á kleifinni, sem ýmist höfðu leitað inn eftir skút- anum, eða hugðust verja afkvæmi sín. Ég leit nú niður til félaga míns. Hann sat þarna í bátnum, horfði upp í bjargið og virtist fylgjast vel með þvi, sem þar var að gerast. Fuglinn hentist- í sjóinn alla vegu við hann, því þegar fugl ryðst svona skyndilega fram úr sillu, nær hann ekki fluginu strax, heldur fellur fyrst, en svo nær han fluginu að lokum, ef nógu hátt er fyrir neðan. í þessum svifum ruddust nokkrir fuglar fram hjá mér, ég ætlaði að stöðva þá, eða réttara paert eggin sem þeir veltu á undan sér. Afleiðingin varð sú, að fuglarnir fóru með enn meiri asa fram af brúninni, svo ég taldi víst að einhverjir lentu í bátnum. En það var aðeins einn. Ég sá Birgi bregða handleggjunum fyrir andlitið, þegar súpan allt í einu virtist óumflýjanlega lenda á honum, við það kom fát á einn fuglinn, svo hann bagsaðist niður í bátinn við fætur hans. Birgir var fljótur að grípa fuglinn og taldi ég þar með þann fugl úr sög- unni. En Birgir fór mjúkum höndum um fugjinn, gældi við hann eins og hann væri að þakka honum fyrir egg- ið hans, sem ég myndi bráðlega færa honum, svo strauk hann honum mjúklega um bakið og lét hann fljúga úr hendi sér. „Þarna lýsti Birgir sjálfum sér rétt“, varð mér að orði. Ég sneri mér nú að eggjatínslunni, fyllti fyrsta kass- ann, en tíndi svo í hinn. Mörg egg voru brotin eftir hamfarir fuglsins. Ég skreið lengra inn í skútann, sem lækkaði eftir því sem innar kom, síðast skreið ég flatur í fugladritinu, lyktin var að vísu vond og ó- þrifaleg urðu fötin, en þvo mætti þau seinna. En þarna voru egg, það var aðalatriðið. Alls fékk ég þarna 300 egg. __ Ég gaf Birgi merki um að koma nær, svo fleygði ég til hans færinu, sem honum tókst fljótlega að ná. Er hann hafi aftur fært bátinn, hæfilega frá berginu, batt ég hinn enda færisins í kassann, rakti svo niður hitt færið og batt öðrum enda þess einnig í kassann og gaf hann á því niður, en Birgir dró til sín um leið. Er kassinn var kominn niður í bát, var hann losaður og dreginn upp aftur. Er hann kom niður í síðara skiftið, leysti Birgir úr honum færið, sem ég hafði og dró ég það upp, því vissara var að hafa stuðning af bandi á leiðinni niður. Svo hófst ferðin niður. Ég gat hvergi fest bandi á sillubrúninni, svo ég gæti haft stuðning af því niður í hvosina, ég varð að komast það bandlaust. Er niður í hvosina kom, hélt ég eftir ávalanum yfir á klett- mn. Þar gat ég brugðið bugt úr færinu um snös, svo öruggt var. Gekk svo ferðin niður vel. Svo sló ég til íærinu og hrökk það þá af snösinni. Er ég hafði gert Það upp, gaf ég Birgi merki um að koma uppað. Sjór fóll út meðan ég var uppi, svo nú var mun betra við hergfótinn. Birgir renndi liðlega uppað, ég henti mér ó stafninn og ýtti frá um leið. Bjargferðinni var lokið. Við höfðum 300 egg og ánægjuna, en brotið 2 árar. Það var vel sloppið. Við vorum ánægðir, ákváðum að fá okkur nestisbita áður en við hæfum leitina að steinbítnum og lúðunni. vTkin e u r Ennþá var hörku norðurfall á röstinni, en þar skyldi leita fiskjar. Er við höfðum snætt af nestinu, fórum við að hugsa til hreyfings. Birgir fussaði og sveiaði af mér lyktinni, kvað hana myndi fæla hverja fisk- bröndu frá bátnum. Ég bauð þá upp á að fleyja fata- ræflunum og láta eggin fylgja með, og gerði mig lík- legan til að framkvæma það, en hann kaus þá heldur að hafa hvortveggja og minnast ekki á lyktina. Svo keyrð- um við út á fiskislóð. Við hugðum að færum okkar meðan „Vonin" rann í rólegheitum út á röstina. Við stöðvuðum bátinn og færum var rennt í sjó. Sá guli tók heldur vel við okkur svona fyrst í stað, enda var að líða að straumaskiftum. Einn og einn steinbítur slæddist með. Goggum þeim er honum voru ætlaðir var óspart beitt við aflífgun hans, kannske af hálfgerðri vonzku, því satt að segja var okkur ekkert um að draga svona fiska, vildum heldur þann gula. Leifar norður- fallsins tók okkur hægt og rólega „frá og norður“, eins og það er kallað. Svo kom suðurfallið, með allri sinni hörku. Fór þá sá guli að missa lystina, einn og einn lét þó enn glepjast af hinu girnilega steinbítsroði á krókum okkar og hlaut dauða af. Okkur var farið að leiðast. Ræddum um allt og ekkert, en að lokum um pólitík. Birgir var jafnaðarmaður en ég sjálfstæðis- maður. Umræðurnar voru hógværar í fyrstu, en hörðn- uðu smám saman, þar til þær voru orðnar það heitar að báðir voru orðnir ösku vondir. Ég sá Birgi, sem var í skutnum, setja færið fast, ég ætlaði að gera slíkt hið sama, því ég þóttist vita, að nú væri komið að úr- skurði hnefanna. En nú var kippt svo harkalega í færið mitt að ég nærri féll við. Tók ég að tosa í færið, þung- inn var mikill, en skepna var það, það gaf titringurinn á færinu til kynna. „Spraka“, æpti nú Birgir, og greip til ífæru. Þar með vorum við sáttir. En ekki höfum við minnst á pólitík síðan. Nú tók skepnan sem á færinu var að ókyrrast, hún setti geysilegan rykk á, ég gaf eftir á færinu, en nú gerðist alvarlegur hlutur. Skepnan Stóð það á endum, að Birgir hafði hnýtt saman færin gera venjulega, heldur tók skepnan út í sjó, aðeins nokkrir faðmar eftir af færinu, sem var hent út. Ég æpti því til Birgis: „Stikkaðu öðru færi við“. Það voru fljótar og fumlausar hendur, sem hnýttu færin saman. Stóð það á endanum, að Birgir hafði hnýtt saman færin og hnúturinn fór i gegnum hendur mínar. Hélt ég þá við færið svo sem ég þorði, gætti þess þó að hafa átakið sem jafnast. Svo stoppaði skepnan skyndilega. Ég tók að draga inn færið með jöfnum og ákveðnum handföngum, tilbúinn að gefa eftir, ef rykkur kæmi. Færið var þrinnað og þoldi varla meira. Húfa mín hafðifarið niður fyrir annað augað, er skepnan rykkti fyrst í, bað ég Birgi að lagfæra hana, eða taka burt, ekkert augnablik mátti ég sleppa hendi af færinu núna. Hann tók húfuna og kastaði fram í barka. Ég var með hnútinn milli handanna, þegar skepnan setti óskaplegan rykk á, og tók á rás. Það kvein í færinu sem þaut út með ofsa hraða. „Hún slítur", tautaði ég í örvæntingu, en við Birgir sagði ég: „Þetta er ekki spraka Birgir minn. Ég hef oft dregið sprökur og þú líka, en það líkist ekki þessu. Þetta er einhver bölvuð ófreskja. Kannske skrímsli". „En við verðum að ná þessari bölvuðu ófreskju, hver 165

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.