Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Síða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Síða 12
Matthías Þórðarson, fyrrv- ritstj.: Asgeir Pétursson Skýrt frd undirbúningi hans að stofnun íslenzkrar nýlendu (útbú fra Akureyri) við Scoresby-sund d Grænlandi, veturinn 1917—18. SelveiZar. í 7. og 8. tölublaði Víkings er skýrt frá Scores- bysund og umhverfi, aðallega byggt á rannsókn- um þeim, er skipsforingi C. Ryder, framkvæmdi þar á árunum 1891—92. Þrátt fyrir hina mjög svo hugðnæmu lýsingu C. Ryders, er sagan þó ekki nema hálf sögð. Það er önnur hlið á málinu sem í raun og veru er aðalatriðið og eru það hinir góðu möguleikar rneð selveiðarnar, sem fremur öllu öðru kvettu og alveg ókleift mönnum að eiga þar björgun við land. Svo er þá hinzta sagan, sagan um Helgu lok. Það enginn um kann segja, það var aftaka sjór og rok. Hver leysti þá landfestar Helgu, er lagð’ún í hinztu för? Hver stóð þá við stjórnvöl á fleyi og stýrði þeim feiga knör? Er hinzti brotsjórinn hrundi á hrjáð og mannlaust fley. Var þá ei vaktin fullstaðin hjá hinni vökulu fögru mey? Hvort á hún nú hvílu í knerri, eða komst hún á æðra stig? Það er mér óráðin gáta, þar ályktar hver fyrir sig. Þótt að sjálfsögðu enginn syrgi, syrgi né felli tár, þá varði hún skipið voða, voða í rúm sjötíu ár. Ragnar S. Helgason, Hlíð, Álftafirði, N.-ís. Asgeir Pétursson til þeirra framtaka að gera tilraun til stofnunnar nýlendu við Scoresby- sund. Selveiðar höfðu verið stundaðar þar og í ná- grenni um langan aldur af mörgum skipum frá Norvegi með allgóðum árangri, sem þó höfðu iniklu lengri veg að sækja en Islendingar og að ýmsu leyti örðugi'i aðstöðu. Á ísnum austur og út af Scoresbysundi og í nánd við eyjuna Jan Mayen safnaðist venjulega seinni hluta vetrar og á vorin svo þúsundum skipti af sel til að kæpa. Það voru Þjóðverjar, sem byrjuðu þar sel- veiðar á fyrsta tug nítjándu aldarinnar, og skömmu síðar Englendingar, er stunduðu þær í nokkra áratugi. Loks árið 1876 byrjuðu Norð- menn þar veiðar undir forustu hins alkunna dugnaðarmanns Sven Foyn með selveiðaskipinu „ísbjörnen" og síðar hafa Norðmenn með stærri og minni skipastól rekið þar veiðar árlega. Pró- fessor Friðþjófur Nansen lætur þess getið, að á síðari hluta aldarinnar hafi á þessu svæði verið veitt alls hérumbil 150—200.000 ungselir árlega, fyrir utan tugi þúsunda af fullvöxnum sel er hafðist við á ísröndinni milli Austur- Grænlands og Vestfjarða á Islandi. Árið 1892 var afli 23 skipa 33.000 stórselir ívöðuselir) 1893 veiddu 15 skip 55.000 seli og '897 var afli 13 skipa 35.000 selir eða sem svar- ar 2500 selir á hvert skip. Næstu árin eftir aldamótin var veiðin ennþá meiri. T. d. veiddu 5 skip 25.500 stórseli. En smátt og smátt fór lýsisverðið lækkandi, sem liafði þau áhrif að smáskipin hættu útgerð, en hin stærri gengu úr sér og ný skip voru ekki byggð í staðinn. En þrátt fyrir misjafnt verð hefur selveiðunum verið haldið áfram allt til þessa dags, með fleiri eða færri skipum og meiri VÍKINGUR 172

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.