Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Blaðsíða 18
Björgun brezka togarans “S.T. CRISPIN” Framh. af bls. 175. var skrúfan klár. Báðir voru þrekaðir er verk- inu var lokið. Kl. 16.30 var vélin sett í gang og landfestum sleppt, nema forvír. Kl. 17.45 var hringt á fulla ferð afturá. Mér þótti Bill keyra lítið og bað ég capt. Bandwood að skreppa niður í vél til hans og segja honum að keyra eins og hann gæti. Það var eins og Bill hresstist við að sjá fram- an í hina gömlu stríðshetju og keyrði nú ótrauð- ur fulla ferð. Skipið tók nú að mjakast út, en þá gerðist Þór helzt til sterkur og tók það mikið í dráttarvírinn að skrúfan sat föst í sandbakk- anum og þar með skipið. Varð því að slaka á vírum Þórs og hífa skipið til baka þar til skrúf- an fór að vinna aftur, eftir það tókst að halda jafnvægi milli átaka Þórs og skrúfunnar, þar til skipið var komið á flot kl. 19.00. Stöðugt sam- band var haft við Þór gegnum talstöð og var það til ómetanlegs hagræðis. Nú héldu menn, að allir erfiðleikar væru bún- ir og allt í lagi.. Eiríkur skipherra bauðst til að senda menn frá sér um borð og taka okkur um borð í Þór, til þess að við gætum haft það gott á leiðinni til Reykjavíkur, en það varð öðru að sinna. Er skipið var komið á flot, hallaðist það nokk- uð til bb. og eiginlega áður en maður áttaði sig, var bb. lunning að aftan komin í kaf, 2 dælur, er stóðu á háum palli í bb. gangi, fóru á kaf í sjó og þar með mest öll okkar verkfæri og tæki. Það var erfitt að kafa þarna, því þótt veðrið væri gott, vildi sjórinn aldrei kyrrast til fulls. Hann er orðinn skemmtilega réttur þaraa. Það var leiðinlegt að sjá hann, þegar hann var með brúar- hornið i kafi og brotin gengu yfir hann allan. Sjór fossaði inn um opnar dyr á ganginum og var ekki hægt að komast að þeim utanfrá, en steypt hafði verið fyrir dyrnar stb. megin og boltað fyrir dyr á bátaþilfari, svo óhægt var um að komast inn til að loka dyrunum. Óli og Ragnar, sem áður eru nefndir voru einhversstaðar niður í skipsbotni við að hag- ræða slöngum. Ég öskraði nú til þeirra og bað þá að loka dyrunum. óla tókst að loka og þar með að afstýra bráðri hættu í bili.. Líklega hefi ég reynt heldur mikið á raddböndin, því ég var hás í nokkra daga á eftir. Strax var farið að at- huga aðstæður og kom í ljós að mikill sjór var kominn í káetuna, sem orsakaðist af því að sementsteypan sem þétt var með, hafði gefið sig á leiðinni út úr brimgarðinum og lak nú sínu meira en áður. Brátt barst hjálp frá Þór, bæði dælur og menn. Var strax sett öflug dæla í káetuna, en 'iengi vel tókst aðeins að halda við þar, vegna þess hve mikið rusl kom í sigtið á slöngunni. Skipið lagði sig nú ekki meira og fór brátt, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, að rétta sig við aftur. Smátt og smátt fór að vinnast á í káetunni og að lokum tókst að tæma hana, al- veg. Áður en farið var af stað út úr brimgarð- Ínum, var 1 dæla sett niður á vélarist og hélt hún að nokkru í við lekann í vélarúminu, sem þá hafði heldur aukist, en samt kom það mikill siór í það að sloknaði undir katlinum. Svo tókst að koma í gang annarri dælunni, er farið hafði í sjó í ganginum og tæmdu þeir fljótlega véla- rúmið. Skipið var nú orðið svo að segja alveg rétt. Orsök þess að skipið fór á hliðina mun hafa verið sú að dælt hafði verið olíu úr stb. hliðar- tank, en verið lokað fyrir hina og ekkert runnið á milli, svo ekki hefur það verið að ástæðulausu þegar mr. Eden var að fárast yfir tönkunum, i7a VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.