Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Page 20
Norskir linuveiiíarar flýja miðin
viö Bjarnarey
í norska blaðinu ,,Fiskaren“ hinn 17. júní sl.
segir, að línuveiðarinn „Breisund" hafi komið
til Álasunds og sagt sínar farir ekki sléttar.
Skipstjórinn, Karl Gudmundseth, segist hafa
misst línu fyrir um það bil 10.000 krónur vegna
ágangs erlendra togara á miðunum við Bjárnar-
ey, en þar var óvenju mikil fiskgengd í sumar,
sérstaklega vestan við éyna. „Verstir voru þó
rússnesku togararnir“, segir Karl skipstjóri,
„því að þeir tóku ekkert tillit til merkja og
baujufána".
Togararnir fengu um 6 til 7 lestir á 20 mínút-
um, en línuveiðararnir sáralítinn og sumir eng-
an afla vegna veiðarfæratjóns og svo voru tog-
ararnir oftast í veginum, þegar leggja átti lín-
una. T. d. fékk „Breisund“ aðeins 38 lestir á
einum mánuði. Einn línuveiðaranna varð að
snúa strax við heim, því að hann tapaði allri
línunni í byrjun veiðanna.
Hinir norsku sjómenn hafa nú sent kæru til
eftirlitsmannsins yfir Möre og Romsdal.
„Fiskaren".
í vélarúminu, og er umgengni öll þar til fyrir-
myndar, eftirlit og viðhald eftir því, sem tími
og efni standa til með ágætum. Alveg er óhætt
að fullyrða, að þar er allt í eins góðu ástandi og
hægt er. Það má og geta þess, að álag er mjög
mikið á strandferðaþjónustunni, og reynir því
mjög á vélar og öll hjálpartæki. Þá er gott að
hafa góðan og samvizkusaman yfirvélstjóra,
sem gætir alls eins og sjáaldur auga síns, og
með honum góða menn.
Við höfum átt því láni að fagna á þessum
skipum, og gott er að minnast þess við þessi
tímamót á ævi Aðalsteins vélstjóra. Nota ég nú
tækifærið að þakka það í Sjómannablaðinu og
mafgra ára gott samstarf. Árna ég honum allra
heilla í nútíð og framtíð. Okkar samsigling hef-
ur verið góð.
Ásg. Sigurðsson.
Flotaheimsóknir
í danska sjómannablaðinu „Vikingen“ 1. ágúst
sl. er rætt um hinar stóru upphæðir í erlendum
gjaldeyri, sem eytt er árlega í Kaupmannahöfn
af erlendum sjóliðum. Talið er, að á ári hverju
komi 10.000 erlendir sjóliðar í land í Höfn, og
reiknað er með að hver þeirra eyði um 15 doll-
urum á viku. Nú er það þó svo, að skipin standa
ekki ætíð við í heila viku, en sem dæmi má nefna
heimsókn flugvélamóðurskipsins „Iowa“ og
fylgdarskipa þess, er höfðu alls um borð um
4.000 manns, er eyddu um 60.000 dollurum eða
420.000 dönskum krónum. Til viðbótar við þessa
upphæð koma svo ýmis gjöld, er skipin greiða
fyrir alls konar þjónustu, en hafnargjöld greiða
þau ekki. Má til dæmis geta þess, að brezka flug-
vélamóðurskipið „Bulwark“ greiddi stórar upp-
hæðir fyrir aðstoð leiðsögumanns og dráttar-
báta o. s. frv.
Blað nokkurt gaf eftirfarandi skilgreiningu á Tító
marskálki:
Fyrst blésu þeir bann upp eins og fótbolta, síðan
spörkuðu þeir í hann og nú hlaupa þeir allir á eftir
honum.
8 íAM A NN A RT A vtgefandi: farmanna- og fiskimannasamband íslands. — Ritstjíri oe
J IVl /Vll D LTJ ábyrgöarmaður: Magnús Jensson. — Rltnefnd: Júllus Ólafsson, Ingólfur Þórðarson, Gelr
Ólafsson, Henry Hálfdansson, Hallgrímur Jónsson, Egill Jóhannsson, Blrglr Thoroddsen,
■« T-ff 7" T m T TTT» Theodór Glslason, Páll Þorbjamarson. — Biaðlð kemur út elnu slnnl I mánuðl, og kostar
\/ I 1% I ■ I I í árgangurinn 60 kr. — Rltstíóm og afgrelðsla er I Fiskhölltnnl, Reykjavík. — Utanáskrift:
▼ i H 11 " VJ 11 ..Viklngur", pósthólf 425, Reykjavik. Siml 5653. — Ritstjórlnn er tll vlötals á skrifstofu blaðs-
ins, I Fiskhölllnnl, þrlðjudaga og flmmtudaga kl. 9—1Q f. h. Laugardaga kl. 1—4 e. h. Auk
þess venjulega I helmssima hans 9177, eftir kl. 8 á kvöldln. Að öðru leyti eftir samkomulagl. — Prentað i ísafoldarprentsmlðju h.f.
1BD
V í K I N □ U R