Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Qupperneq 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Qupperneq 26
INNtiNDAR 1/7. Níu alda biskupsdóms á Is- landi minnzt með hátíð í Skálholti, og mun biskup landsins þá leggja hornstein að nýrri Skálholtskirkju. — Átta erlendir blaðamenn í boði NATO koma hingað í kynnisferð. — Nýlega kom upp eldur í hinu nýja skipbrotsmannaskýli Slysavarnafé- lags íslands að Sléttu í Sléttuhreppi og brann það til ösku. — Lokið er við vitabyggingu á Geirfuglaskeri, einnig verða byggðir vitar í Seley og á Hólmabergi í sumar. — Mikil síld berst nú á land á Siglufirði og er saltað þar á yfir 20 stöðum. Hæstu bátarnir eru með nær 1000 tunnur. 6/7. Hinn vinsæli danski drengja- kór KFUM kominn hingað í söng- för. — Á fyrri helming yfirstand- andi árs hafa 850 bifreiðaárekstrar orðið hér í Reykjavík og næsta ná- grenni hennar. — 6 bátar stunda nú humraveiðar frá Eyrarbakka og er afli góður; 40—50 manns vinna við aflann í frystihúsinu. • 10/ 7. Lögreglan í Reykjavík hef- ir komizt að ávísanasvindli, sem átt hefir sér stað í allstórum stíl. — Níu manna æskulýðsnefnd farin af stað til Sovétríkjanna; fer nefndin á vegum Alþjóðasamvinnunefndar íslenzkrar æsku. — Sex norsk síld- veiðiskip og 1 belgískur togari hafa nýlega verið tekin fyrir landhelgis- brot hér við land. — Fimm manna sendinefnd kínverskra samvinnu- manna á ferðalagi hér á vegum SÍS. Nefndin mun kynna sér íslenzka samvinnuhreyfingu. • 15/7. Frá áramótum til júníloka var heildaraflinn á öllu landinu 240.829 smálestir; af því var báta- fiskur 146.534 smál., en togarafiskur 94.295 smál. Á sama tíma í fyrra var heildaraflinn 256.707 smál. — Gunn- laugur Rlöndal listmálari málar mynd fyrir Alþingi af Þjóðfundinuum 1851, og hefir myndin verið sett upp í Alþingishúsinu. 20/7. Þriðji „Víkingafundurinn“, fundur vísindamanna frá Bretlands- eyjum og Norðurlöndum, sem rann- saka menningu víkingaaldarinnar, hefst hér í Reykjavík bráðlega. — Rússneska knattspyrnuliðið Loko- motiv væntanlegt hingað, er það fyrsta rússneska knattspyrnuliðið, sem kemur til íslands. — Viðskifta- málaráðherra Tékkóslóvakíu, Fran- tisek Iírajvir, kemur í heimsókn vil Islands bráðlega og mun dveljast hér á landi um vikutíma til að kynn- ast hér fiskveiðum og framleiðslu- aðferðum. — Mikill húsbruni varð á Raufarhöfn, þegar eitt helzta og stærsta timburhús kauptúnsins brann til kaldra kola á skammri stundu. 50—60 manns munu hafa búið í húsinu, en komust allir út, en geysimikið af innbúi og eigum fólksins brann. 25/7. 10 ísl. skógræktarmönnum hefir verið boðið í kynnisferð til Vesturfylkja Noregs. — Jarðfræði- deild Náttúrugripasafnsins hefir ný- lega borizt að gjöf dýrmætt safn skrautsteina frá Brazilíu. — Siglu- fjarðarskarð varð ófært öllum bif- reiðum sökum fannkomu og skafla, og mun slíkt algert einsdæmi í júlí- mánuði. • 1/8. Tíunda mót norrænna presta hefst hér í Reykjavík, og er það í fyrsta skifti, sem slíkt mót er hald- ið hér á landi. — Forseti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson, tekur í annað sinn við embætti forseta Is- lands. — Tvö hundruð og sjötíu hvalir hafa nú borizt til hvalveiði- stöðvarinnar í Hvalfirði. — Eitt stærsta gróðurhús heims rís af grunni í Hveragerði, en það er Garð- yrkjuskóli ríkisins að Reykjum, sem byggir húsið, og er það 2000 fer- metrar að stærð. — Flugvallargerð í Norðfirði mun hefjast bráðlega, og er ætlunin að fullgera í sumar 250—300 metra langa og 30 metra breiða braut fyrir sjúkraflugvélina. 5/8. Fisksala Islendinga til USA hefur aukist verulega í ár; fyrra misseri þ. á. voru fluttar þangað 7600 lestir af fiski, en 6600 á sama tíma í fyrra. — Tekizt hefur að klífa flraundranga í Öxnadal, en það hefur aldrei verið gert áður svo vitað sé til. • 8/8. Eldur kom upp í íbúðarhús- inu Yztabæ í Hrísey, og brann húsið til kaldra kola á skömmum tíma, á- samt fjósi, er áfast var við bæinn. — Ný gerð innsiglingavita, sem auð- veldar Iendingu báta og skapar ör- yggi í ofviðrum, settur upp í Grinda- vík, en tækin eru flutt inn fyrir forgöngu Slysavarnafélags Islands. • 10/8. Margt þykir nú benda til að síldarvertiðinni norðanlands sé að Ijúka, er nú búið að salta í 260 þús. tunnur, og ríkisverksmiðjurnar hafa brætt um 170 þús. mál. — Skipverji af bátnum Þórunni frá Vestmanna- eyjum, Jóhann Pétur Sigurðsson, féll fyrir borð og drukknaði. — Fimm fulltrúar finnskra síldarinn- flytjenda í heimsókn hér; komu þeir til að kynna sér framleiðsluhætti okkar varðandi síldina. 12/8. Rúmensk verkalýðssendi- nefnd komin til landsins og dvelst hún hér um það bil vikutíma á veg- um Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Ileykjavík.. — Um síðustu helgi höfðu veiðzt hér 320 hvalir, en veiði hefur að undanförnu verið mun tregari en í fyrrasumar. • 15/8. Meðallendingar heiðraðir fyrir björgun skipverja af brezka togaranum St. Crispin. Fulltrúar eigenda togarans og vátrygginga- 1 B6 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.