Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1959, Page 3
ára, ókvæntur, en fyrirvinna
móður sinnar.
Kristján Ólafsson, 1. mat-
sveinn, Efstasundi 85, Reykjavík,
24 ára. Kvæntur og lætur eftir
sig þrjú börn, 4 ára, li/2 árs og
6 mánaða. Átti foreldra á lífi.
Viðar Axelsson, 2. matsveinn,
Njarðargötu 29, Reykjavík, 23
ára. Kvæntur og átti 1 barn 3 ára.
Átti foreldra á lífi.
Svanur Pálmar Þorvarðarson,
kyndari, Laugarnesbúðum 31,
Reykjavík, 19 ára. Ókvæntur.
Hann var fyrirvinna móður
sinnar.
Skúli Benediktsson, kyndari,
Ránargötu 6, Reykjavík, 24 ára.
Kvæntur og lætur eftir sig 6 ung
börn, hið elzta 5 ára. Átti fóstur-
foreldra og foreldra á lífi.
Ragnar Guðjón Karlsson, neta-
maður, Höfðaborg 21, 39 ára.
Kvæntur og lætur eftir sig þrjú
börn, 13, 11 og 7 ára. Átti fóstur-
móður á lífi.
Ólafur Ólafsson, netamaður,
Nýlendugötu 7, Reykjavík. Ókv.
Sigmundur Finnsson, netamað-
ur, Tripolíbúðum 25, Reykjavík,
25 ára. ókvæntur, en lætur eftir
sig tvö börn.
Magnús Guðmundsson, háseti,
Tripolíbúðum 25, Reykjavík, 44
ára. Kvæntur. Hann var stjúp-
faðir Sigmundar og lætur eftir
sig 4 stjúpbörn, uppkomin. Móð-
ir hans er á Súgandafirði.
Benedikt Sveinsson, netamað-
ur, Njálsgötu 77, Reykjavík, 27
ára. Ókvæntur. Bjó með móður
sinni.
Jóhann Sigurðsson, netamað-
ur, Laugavegi 53B, Reykjavík,
44 ára. Kvæntur og lætur eftir
sig fjögur börn, 15, 14, 11 og 4ra
ára.
Ólafur Snorrason, háseti, Njáls-
götu 87, Reykjavík, 34 ára. Fóst-
urforeldra átti hann á Patreks-
firði og móður á lífi.
Bjöm Heiðar Þorsteinsson, há-
seti, Ránargötu 24, Akureyri, 31
árs. ókvæntur og bjó hjá foreldr-
um sínum á Akureyri.
Jón Geirsson, háseti, Borgar-
nesi, 21 árs. Ókvæntur, í f«reldra-
húsum.
Magnús Gíslason, háseti, Lækj-
arkinn 2, Hafnarfirði, 31 árs.
Ókvæntur og eru foreldrar hans
á Elliheimilinu Grund hér í Rvík.
Magnús Sveinsson, háseti,
Rauðarárstíg 40, Reykjavík, 21
árs. í heimili fósturmóður sinnar.
Jón Haraldsson, háseti, Hlíðar-
vegi 11, Kópavogi, 16 ára. Hann
var einkabarn foreldra sinna.
Þorkell Árnason, háseti, Sörla-
skjóli 20, Reykjavík, 38 ára. Læt-
ur hann eftir sig unnustu og ungt
barn. Foreldrar eru norður á
Þórshöfn.
Guðmundur Elíasson, háseti,
Vitateig 5, Akranesi, 30 ára.
Kvæntur og átti fjögur börn á
aldrinum 10, 7, 5 og 2ja ára. For-
eldrar hans búa á Akranesi.
Benedikt Þorbjörnsson, háseti,
Lokastíg 28, Reykjavík, 27 ára.
Ókvæntur. Faðir á lífi.
Aðalsteinn Júlíusson, háseti,
Hítarnesi, Hnappadalssýslu, þar
sem faðir hans nú býr. Hann var
27 ára og ókvæntur.
Björgvin Jóhannsson, háseti,
(stud. med.), Höfðaborg 12,
Reykjavík, 29 ára og lætur eftir
sig tvö mjög ung börn. Móðir
á lífi.
Sigurður Guðnason, háseti,
Kirkjubraut 28, Akranesi, 44 ára.
Kvæntur, en barnlaus. Foreldrar
hans búa á Suðureyri.
*
Togarinn Júlí fór á veiðar frá
Hafnarfirði 31. janúar sl. Byrj-
aði hann veiðar á svokölluðum
Ritubanka á Nýfundnalandsmið-
um 6. febrúar. Daginn eftir, laug-
ardaginn, brást á ofviðri á Ný-
fundnalandsmiðum.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
fékk fyrst vitneskju um það kl.
10 á mánudagskvöld, í skeyti frá
togaranum Júní, að ekki væri
með vissu vitað að heyrzt hefði
til Júlí frá því á laugardagskvöld,
en þó teldi einn togari sig hafa
heyrt til hans kl. 7,30 á sunnu-
dagskvöldið. Eftir að útgerðin
hafði haft frekara samband við
skipstjórann á Júní snéri hún sér
til Slysavarnafélagsins, eftir mið-
nætti á mánudagskvöldið, og gerði
þá þegar um nóttina ráðstafanir
til þess að leit yrði hafin að Júlí
strax og veður leyfði.
Leit að Júlí hófst að morgni
þriðjudagsins 10. febrúar, og síð-
ar þann dag fékkst það staðfest,
að heyrzt hefði til togarans Júlí
kl. 7,50 á sunnudagsmorguninn,
og að því talið var einnig kl. 7,30
á sunnudagskvöld.
Leit var síðan haldið áfram
viðstöðulaust þrátt fyrir mjög
slæmt veður oftast, og hafa bæði
flugvélar og skip tekið þátt í leit-
inni.
Á meira en 70.000 fermílna
svæði hefur verið gerð ítarleg leit
að bv. Júlí úr lofti, bæði með
radarflugi og sjónflugi.
Mikill fjöldi flugvéla tók þátt
í leitinni. Björgunarflugvélar frá
Kanada, Nýfundnalandi og Is-
landi tóku þátt í henni, og auk
þess bandarískar flotaflugvélar.
Jafnframt hafa mörg skip tek-
ið þátt í leitinni, þar á meðal
veðurskip og stórir rússneskir
verksmiðjutogarar, sem enn
halda sig á þessum slóðum.
Leitarsvæðið var þó miklu
stærra en að framan greinir, þar
sem jafnframt var leitað á stóru
aðliggjandi svæði sunnar. En þar
var leitað að kanadiskum skip-
um, sem talið er að hafi farizt í
sama óveðrinu. En nokkurir dag-
ar eru liðnir síðan leit þeirri var
hætt.
Þar sem leitin hafði enn eng-
an árangur borið 23. febrúar var
talið með öllu vonlaust að frekari
leit gæti borið árangur, og leit-
inni hætt.
*
Þriðjudaginn 17. febrúar var
skipshafnarinnar á Júlí minnzt
í Ríkisútvarpinu. Flutti biskup*
íslands, hr. Ásmundur Guð-
mundsson, ávarp og bæn. Felld
var niður dagskrá útvarpsins að
fréttum undanskildum, en þess í
stað leikin sorgarlög og sígild tón-
list.
Forsíðumyndin er af bandaríska
veðurathuganaskipinu ,,Bravo“ í
ofsaveðri á Norður-Atlantshafi.
VÍKINGUR
35