Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1959, Síða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1959, Síða 4
Vitaskipið HERMÓÐDR íerst HWBHB A ðfaranótt 18. febrúar s.l. varð íslenzka þjóðin fyrir öðru stóráfallinu á sjó á skömmum tíma, er vitaskipið Hermóður fórst með allri áhöfn, 12 mönn- um, undan Reykjanesi. Landhelgisgæzlan sendi út svohljóðandi fréttatilkynningu um þennan hörmulega atburð: „Talið er víst, að vitaskipið Hermóður hafi farizt með allri áhöfn í stórsjó og ofviðri undan Reykjanesi í nótt. Var síðast haft samband við það frá öðru skipi um kl. 4 í nótt. Var Hermóður þá staddur við Reykjanes, en síðan hefur ekkert heyrzt eða sézt til skips- ins. Hermóður var á leið frá Vestmannaeyjum, þar sem hann hafði verið við bátagæzlu á vegum Landhelgisgæzlunnar undanfarinn hálfan mánuð, og var væntanlegur til Reykjavíkur í morgun. Strax þegar ekki heyrðist til skipsins í morgun, sendi Landhelgisgæzlan gæzluflugvélina Rán til þess að leita að því og nokkru síðar var Slysavarnafélagið beðið um að láta leita meðfram strönd- inni frá Grindavík og vestur og norður fyrir Reykjanes allt að Garðskaga. Brugðu slysavarnadeild- irnar í Grindavík og Höfnum, svo og þrír leitarflokkar frá Reykjavík skjótt við og fundu skömmu fyrir hádegi brak úr skipinu rekið undan Kalmannstjörn sunnan við Hafnir. Leitað var allt til dimmu, en mun verða haldið áfram strax í birtingu í morgun“. Á Hermóði var 12 manna áhöfn og voru það þessir menn: Úlafur G. Jóhannesson skip- stjóri, Skaftahlíð 10, Rvík, 41 árs. Hann var kvæntur og auk konu lætur hann eftir sig sjö börn á aldrinum 10, 8, 7, 5, 4 og tvö :/eggja ára. Sveinbjörn Finnsson, 1. stýri- maður, Útgerði við Breiðholts- veg, Rvík, 24 ára. Hann lætur eftir sig konu og eitt barn árs- gamalt. Foreldrar hans búa vest- ur í Grundarfirði. Eyjólfur Hafstein, 2. stýrimað- ur, Bústaðavegi 65, 47 ára. Hann lætur eftir sig konu og 4 börn, 12, 9, 7 ára og 8 mánaða. Móðir hans öldruð er á lífi. Guðjón Sigurjónsson, 1. vél- stjóri, Kópavogsbraut 43, Kópa- vogi, 40 ára. Kvæntur og auk konu lætur hann eftir sig 5 börn á aldrinum 5—14 ára. Guðjón Sigurðsson, 2. vélstjóri, Freyjugötu 24, 65 ára. Lætur eft- ir sig konu og uppkomin börn. Birgir Gunnarsson, matsveinn, Nökkvavogi 31, 20 ára. Ókvænt- ur. Var í foreldrahúsum. Magnús Ragnar Pétursson, há- seti, Hávallagötu 13, 46 ára. Ókv. Jónbjöm Sigurðsson, háseti, Gnoðarvogi 32, 19 ára. Var hjá foreldrum sínum og er elztur 10 systkina. Kristján Friðbjörnsson, háseti, 27 ára, til heimilis austur á Vopnafirði. Davíð Sigurðsson, háseti, Sam- túni 32, 23 ára. Elztur 5 systkina. Einar Björnsson, aðstoðarmað- ur, frá Vopnafirði, 30 ára. Helgi Vattnes Kristjánsson, aðstoðarmaður í vél, Þinghóls- braut 23, Kópavogi, 16 ára. Var hann á heimili foreldra sinna. * Skip það, sem minnzt er' á í til- kynningu Landhelgisgæzlunnar að Hermóður hafi haft samband við um kl. 4 um nóttina, er flutn- ingaskipið Vatnajökull, en hann VÍKINGUR 36

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.