Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Qupperneq 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Qupperneq 4
Hin dularfulla saga af Stanvac Calcutta ■ S/s Stanvac Calcutta var byggt af Betlehem Shipbuilding Corp. U.S.A. 1941, var 500 fet á lengd og 16,625 Dw Iestir að stærð. Sagan af Stanvac Calcutta hófst svipað og þegar ósýnilegt blek kemur smátt og smátt í ljós á hvítum pappír. Að síðustu upp- lýstist allt og við blasir hetju- dáð hraustra manna, sem mun verða minnst meðan siglt verð- ur á úthöfunum. Stanvac Calcutta lagði upp frá Monte Video 29. maí 1952 barlest og var ferðinni heitið til Cari- pitio. Vegna þess að skipið var hraðskreitt og mest af leiðinni lá um óherjuð hafsvæði var það látið sigla einsamalt. Skipið var vopnað aftan og framan og voru skotliðar 9 menn, sá yngsti 17 ára og liðsforinginn aðeins 23ja ára. Áhöfnin, ásamt skipstjór- anum G. 0. Karlsson, var 51 tals- ins. Menn urðu kvíðafullir, þegar skipið kom ekki í höfn á áætlun- ardegi 19. júní, og óttinn óx þeg- ar dagarnir liðu og urðu að vik- um og mánuðum og sama þögnin ríkti yfir afdrifum Stanvac Cal- cutta. Hinn 20. nóvember 1942 var opinberlega lýst yfir því að Stanvac Calcutta hefði farist með allri áhöfn. Hermálaráðu- neytið gaf út dánarvottorð og vátryggingarféð var greitt að- standendum hinna horfnu sjó- manna, og hinar margvíslegu ráðstafanir voru gerðar sem fylgja því, þegar eitt skip hverf- ur af yfirborði sjávar. Svo var það hinn 19. marz ár- ið eftir, tíu mánuðum eftir hið sporlausa hvarf Stanvac Cálcutta að Socony-Vaccum olíufélaginu barst í hendur svohljóðandi bréf frá hinu hernumda Frakklandi: „Kæri herra. Yður tilkynnist hérmeð að ég (Saedie Hassan) er sem stend- ur á sjúkrahúsinu Val de Grace vegna sára; er með illa brotinn vinstri fót og nokkur skotsár. Mér mundi þykja vænt um, ef þér gætuð komið því við að senda mér skó núrner 6og einhvern fatnað, einnig sígarettur, fyrir milligöngu Rauðakrossins, eða á einhvern hátt sem yður þykir beztur. Mér er hjúkrað mjög vel hér. Ég á enga ættingja á lífi og læt hér staðar numið. Ég er yðar einlægur Saedie Hassan“. Bréf þetta vakti meiri áhuga og æsingu en búast hefði mátt við. Suurningin, hver er Saedie Hassan, vaknaði þegar. Við athugun á skipshafna- skránum kom í ljós að hann hafði verið um borð í Stanvac Calcutta sem fullgildur háseti, þegar skip- ið lagði út frá Montevideo í sína síðustu ferð. Sígarettur og um- beðin stærð af skóm var sent til Val de Gras sjúkrahússins fyrir milligöngu Rauðakrossins og í hjálögðu bréfi fylgdu óbeinar spurningar um, hvernig hann hefði særzt svona illa og hvar allir hinir væru. En nú kom ritskoðun nazista til skjalanna. í svarbréfi Hass- ans var bókstaflega allt máð burt nema upphaf og undirskrift. En þessi lítilfjörlega vísbending varð upphaf þess að þetta leynd- ardómsfulla atvik tók smám saman að skýrast. Hernaðarátök á hinu fjarlæga Indlandshafi leiddu til mikils- verðra upplýsinga. Það var þýzka birgðaskipið Ramses, sem var á leið frá Japan til Þýzka- iands með fjölda af stríðsföng- um frá skipum Bandamanna, sem þýzk víkingaskip höfðu sökkt. Á 23° suðl. br. og 99° austl. lengd- ar, eða um 5 daga siglingu suður af Java var Ramses umkringt af áströlskum og hollenzkum her-. skipum, sem fylgdu skipalest. Þjóðverjarnir sökktu skipi sínu og fóru í bátana ásamt föngun- um. Ástralskur tundurspillir bjarg- aði þeim og fór með þá inn til Freemantle. Hinir herteknu sjó- menn skráðu sig á önnur skip og hópurinn dreifðist í allar áttir. Einn stríðsfanganna, grannur, brosleitur ungur Norðmaður, David Knudsen að nafni, skýrði frá því að á einu hinna þýzku skipa, sem hann var fangi, hefði hann séð stóran hóp af amerísk- um sjómönnum, sem hann taldi víst að hefðu verið af Stanvac Calcutta, um 30 talsins. Hann gaf upp nafn á öðrum Norð- mönnum, sem voru fangar með honum og einn þeirra, Jens Florenes, fyrsti vélstjóri var minnugur á nöfn. Hann mundi nöfnin á Mont, Walker og Willi- ams. Þeir voru allir vélst.jórar, sagði hann. Þessir menn höfðu skýrt honum frá sjóorustu við víkingaskip, og margir menn VÍKINGUR 212

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.