Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Blaðsíða 6
í gegnum hergirðingu banda-
manna. Skipið var þungvopnað.
Stier rakst á Stanvac Calcutta
500 sjómílum útaf ströndum
Brasilíu, átta daga siglingu frá
Montevideo.
Af þeim, sem eftir lifðu og var
bjargað af áhöfn Stiers voru 12
illa særðir af sprengjubrotum,
og daginn eftir orustuna, 7. júní
1942, dó hásetinn Martin W.
Hyde af sárum sínum og var líki
hans, að aflokinni stuttri bæn,
sökkt í hafið, sveipað ameríska
fánanum. Aðrir af áhöfn Stanvac
Calcutta, særðir og ósærðir,
dvöldust um borð í Stier í sex
daga. 12. júní hafði Stier sam-
band við þýzkt birgðaskip og
fékk hjá því eldsneyti. 24 ósærð-
ir af áhöfn Calcutta voru fluttir
yfir í þýzka birgðaskipið, sem
hét Doggerbank, og fluttir beina
leið til Japan. Menn þessir lentu
svo í fangabúðum í Fuknoka.
Hinir særðu, nú 11 talsins,
voru um kyrrt um borð í Stier
til 27. júlí. Þá voru þeir allir, að
undanteknum Saedie Hassan,
settir um borð í birgðaskipið,
sem komið var til baka með
meira eldsneyti. Doggerbank
sneri svo aftur til Japans með
um 180 hertekna sjómenn frá
sökktum skipum, voru þeir settir
á land í Osaka og settir í fanga-
búðir. Hassan varð áfram um
borð í Stier, vegna sára sinna.
Hann varð vitni að ótal spenn-
andi atvikum, þegar Stier réðst
á og sökkti skipum bandamanna,
sem gáfu þessum harðsnúna
náunga margar mikilvægar upp-
lýsingar.
Hinn 27. september skeði sá
óvænti atburður, að sjálfu hinu
vel vopnaða víkingaskipi Stier,
var sökkt af bandaríska liberty-
skipinu Stephen Hopkins.
Snemma um morguninn átti
Stier stefnumót við þýzka verzl-
unarskipið Tannenfels með birgð-
ir, og meðan bæði þýzku skipin
lágu hlið við hlið, rakst Stephan
Hopkins á þau til mikillar undr-
unar fyrir báða aðila.
Skipin sökktu svo hvort öðru
með æðisgenginni skothríð og
Tannenfels hirti upp sjómenn þá,
sem eftir lifðu — þar á meðal
Saedie Hassan!
Þannig orsakaðist það, að
Hassan hafnaði í fangabúðum í
Þýzkalandi en ekki í Japan.
Tannenfels slapp í gegn til Bor-
deaux og Hassan lá um hríð á
frönskum herspítala áður en
hann var sendur í fangabúðirn-
ar í Marlag und Milag — og þar
hitti hann Bendik Lande. Hassan
losnaði ekki úr fangabúðunum
fyrr en 28. apríl 1945, þegar
bandamenn sóttu fram á megin-
landinu. Allir hinir af Stanvac
Calcutta, sem voru í japönskum
fangabúðum hlutu frelsi í sept-
ember sama ár, voru fluttir loft-
leiðis til San Francisco og með
járnbraut til New York að und-
anteknum Arthur W. Mont,
fyrsta aðstoðarvélstjóra. Hann
dó og var jarðsettur í Fuknoka
fangabúðunum í marz 1944.
Það var minnisverður dagur,
þegar skipverjar af Stanvac Cal-
cutta hittust í New York frjáls-
ir menn eftir áralanga fanga-
búðavist.
Yfirvélstjórinn á Stanvac lýsti
orrustunni við Stier á þessa leið:
Ég sat í messanum kl. 10 ár-
degis 6. júní 1942 og drakk kaffi
með Karlsson skipstjóra. Allt í
einu heyrðum við skothríð og
hlupum báðir upp á stjórnpall
Við komum þegar auga á árás-
arskipið og greindum í kíki þýzka
gunnfánann við hún á forsigl-
unni, ásamt flaggamerkjum um
að stöðva vélar skipsins tafar-
laust.
Við höfðum slegið á hæga ferð,
en þegar Karlsson sá þjóðerni
sikpsins setti hann á fulla ferð
og stýrið hart í borð með það
fyrir augum að sleppa frá óvina-
skipinu. Síðan gaf hann skipun
um að hefja skothríð úr hinum
fáu og smáu fallbyssum skipsins.
Þýzka skipið hóf þegar breið-
síðu skothríð og kúlurnar hæfðu
skip okkar bókstaflega alls stað-
ar. Þrátt fyrir ofureflið héldum
við bardaganum áfram. Brátt tók
Stanvac Calcutta að hallast og
ég reyndi að rétta skipið með
því að skipta á ballasttönkunum,
en fann brátt að það var tilgangs-
laust. Skipið var stjórnlaust og
engin hreyfing á stjórnpalli.
Þegar ég kom þangað upp sá ég
hvar Karlsson skipstjóri lá ör-
endur í dyrum stýrishússins
stjórnborðsmegin. Rórmaðurinn,
Nelson Okander, var einnig lát-
inn á verðinum.
Ég staulaðist inn í kortaklef-
ann en þar var allt sundurskot-
ið, og þegar ég leit í áttina til
loftskeytaklefans sá ég líkama
loftskeytamannsins., Philips A.
Heath, liggja fyrir utan klefa-
dyrnar. Orustunni var lokið.
Stanvac Calcutta var að sökkva,
og við yfirgáfum skipið. Þegar
Knudsen yfirvélstjóri, ásamt fé-
lögum hans, komu um borð í Sti-
er var þeim sagt, að Þjóðverj-
arnir hefðu þegar sökkt 19 verzl-
unarskipum og að enginn hefði
fallið vegna þess að engin þeirra
hafði snúizt til vamar.
Skipverjar á Stanvac Calcutta
voru sæmdir heiðursmerkjum
fyrir sérstaka hetjudáð og í sjó-
mannaskólanum í Kings Point
hangir bronzetafla með upp-
hleyptu letri: TIL MINNINGAR
UM C/C STANVAC CAL-
CUTTA: Þegar skipið var 500
mílur útaf ströndum Brasilíu
varð það fyrir árás þungvopnaðs
víkingaskips, sem koms.t að því
í dimmviðri. Aðeins vopnað fjög-
urra þumlunga fallbyssu afturá
og þrem loftvarnabyssum reyndi
skipið að komast undan, um leið
og það hóf skothríð. I fimmtu
umferð tókst Stanvac Calcutta að
ónýta 15 sm fallbyssu óvinarins,
en þá tókst óvininum að skjóta
í sundur skotturn skipsins. Skip-
verjar héldu samt vörninni uppi
þar til skotfærageymslan varð
sprengd í loft upp og skipið tók
að sökkva. Margir féllu og særð-
ust áður en skipverjar neyddust
til að yfirgefa skipið og voru
teknir til fanga. Vegna hinnar
hetjulegu varnar gegn ofurefl-
inu, verður nafn Stanvac Cal-
cutta varðveitt sem hetjuskip.
Lausl. þýtt úr The Compass.
Gvðm. Jensson.
214
VÍKINGUK