Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Page 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Page 34
Ályktanir nm átvegsmál Almennur útvegsmannafundur, sem boðaður var af stjórn Fjórð- ungssambands fiskideilda Aust- fjarða um landhelgis- og sjávarút- vegsmál, var haldinn að Félags- lundi á Reyðarfirði miðvikudaginn 7. sept. 1960, voru eftirfarandi til- lögur og ályktanir samþykktar. Landhelgismál: 1. „Almennur fundur útvegsmanna á Austurlandi, haldinn á Reyðar- firði miðvikudaginn 7. sept. mót- mælir því að teknir verði upp samningar við Breta um fiskveiði- landhelgi íslands. Fundurinn telur, að fastmótuð hafi verið sú stefna í landhelgis- málinu, að samningar við einstak- ar þjóðir um málið komi ekki til greina og frávik frá tólf mílna fiskveiðilandhelgi umhverfis land- ið allt, komi ekki heldur til greina. 2. „Almennur fundur útvegsmanna á Austurlandi, haldinn á Reyðar- firði miðvikudaginn 7. sept., tel- ur, að reynslan af tólf mílna fiskveiðilandhelginni við ísland hafi þegar leitt í ljós, að báta- floti landsmanna hafi með stækk- un hennar notið stórbættrar að- stöðu frá því sem áður var. Fundurinn telur einnig, að reynslan hafi sannað, að óheppi- legt sé að heimila íslenzkum skip- um togveiðar innan tólf mílna markanna, og skorar á ríkis- stjómina að breyta reglugerð nr. 87 frá 20. ágúst 1958 þannig, að slíkar veiðar verði ekki leyfðar". Afstaða til L.l.Ú. „Almennur fundur útvegsmanna á Austurlandi 7. sept. 1960 álítur nauðsynlegt að stofnaðar verði út- vegsmannadeildir í L.Í.Ú. á sem flestum stöðum austanlands. Trggingamál: 1. „Almennur fundur útgerðar- manna á Austurlandi, haldinn á Reyðarfirði 7. sept. 1960, telur, að rekstursgrundvöllur bátaút- vegsins, sem lagður var snemma á þessu ári, hafi ekki reynzt eins traustur og opinberir aðilar gáfu í skyn og lofuðu. Telur fundurinn, að afkoma sé ekki slík, að þeir geti staðið und- ir greiðslu tryggingargjalda og skorar á ríkisstjórnina að hlutast um, að tryggingargjöld báta árið 1960 verði greidd á svipaðan hátt og undanfarin ár“. 2. „Fundurinn skorar á stjórn Fjórð- ungssambands fiskideilda Austur- lands að láta athuga, hvort ekki er hægt á næsta sumri að koma á samtryggingu á Austfjörðum fyrir herpinætur og herpinótabáta og lækka stórum útgjöld vegna þessara trygginga". Verðlagsmál: 1. „Fundurinn telur, að reksturs- grundvöllur bátaútvegsins sé orð- inn óviðunandi og hafi versnað til mikilla muna við síðustu ráðstaf- anir í efnahagsmálunum. Fundurinn álítur, að stórfelld mistök hafi átt sér stað um s.l. áramót, þegar útgerðin var látin hef ja veiðar án þess að frir lægju ákveðnir samningar um reksturs- grundvöllinn, og að sú reynsla, sem þá fékkst, hafi sannað út- vegsmönnum áþreifanlega, að ekki geti komið til mála, að veið- ar bátanna hef jist um næstu ára- mót, án þess að fullnaðarsamn- ingar við ríkisstjórnina um rekst- ursgrundvöllinn liggi þá fyrir. Þar sem rekstursgrundvöllur á síldveiðum í sumar var stórum verri en árið áður og afkoma bát- anna einnig óhagstæðari á s.l. vetrarvertíð og loforð ríkisstjórn- arinnar um eigi lakari reksturs- grundvöll á þessu ári, en áður var, hefur þannig verið vanefnt, telur fundurinn einnig óhjá- kvæmilegt að gerðar verði sér- stakar ráðstafanir vegna rekst- urs bátanna á þessu ári“. 2. „Þar sem í ljós hefur komið að verulega mikill munur er á síld- ar- og fiskverði hér á landi og í Noregi, vill fundurinn skora á Fiskifélag íslands að láta fram fara ítarlega rannsókn á þessum verðmun og birta opinbera grein- argerð um rannsóknina". Síldariðnaður: 1. „Almennur fundur útvegsmanna á Austurlandi, haldinn á Reyðar- firði 7. sept. 1960, skorar á rík- isstjórn íslands, að hún taki til- lit til reynslu undangenginna ára, þar sem glöggt hefur komið í ljós, að móttökuskilyrði á síld austan Langaness eru algjörlega ófull- nægjandi og beiti áhrifum sínum til hins ýtrasta til þess að sUd- arbræðslum þeim, sem nú eru á Austurlandi, verði séð fyrir því fjármagni, sem með þarf, til að koma þeim í það horf, að rekstur þeirra verði eins hagkvæmur og unnt er og afkastageta þeirra verði aukin. Þar sem ekki er tiltækilegt að salta síld á þeim stöðum, sem ekki hafa möguleika til að nýta úrganginn, skorar fundurinn enn- fremur á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því, að síldarbræðslur verði byggðar á öllum þeim stöð- . um, sem hagkvæmt getur verið að salta síld á“. 3. „Almennur fundur útvegsmanna á Austurlandi, haldinn á Reyðar- firði 7. sept. 1960, skorar á ríkis- stjórnina að hefjast nú þegar handa um að láta fara fram at- huganir og tilraunir með full- komnari nýtingu síldar og annars sjávarafla, að minnsta kosti á einum stað á Austurlandi, svo sem niðursuðu, niðurlagningu o. fl. Telur fundurinn, að slíkar framkvæmdir mundu auka verð- mæti aflans mjög mikið, jafn- framt því, að það skapaði mjög mikla atvinnu í landi". 3. „Almennur fundur útvegsmanna á Austurlandi, haldinn á Reyðar- firði 7. sept. 1960, skorar á Síld- arútvegsnefnd að greiða fyrir aukinni síldarsöltun austan lands, eins og í hennar valdi stendur, meðal annars með ríflegum tunnu- og saltbirgðum á Austur- landi“. 242 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.