Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Qupperneq 35
I allt sumar hefur verið unn-
ið að því að safna þangi aus.tur
á Eyrarbakka og það síðan mal-
að í beinamjölsverksmiðjunni
þar. Hafa í sumar verið möluð
200 tonn af þangmjöli. Erlend-
ur sérfræðingur er kom austur
og skoðaði fjörurnar austur þar
hefur látið svo um mælt, að þarna
muni vera lengstu þangfjörur í
Evrópu.
Vigfús Jónsson, oddviti á Eyr-
arbakka, skýrði blaðinu svo frá,
að þegar fyrir nokkrum árum
hefðu verið hafnar athuganir á
hvort ekki mundi unnt að vinna
þang í beinamjölsverksmiðjunni
svo unnt væri að nýta verksmiðj-
una betur. Verkfræðingur frá
raforkumálaskrifstofunni rann-
sakaði þangbreiðurnar svo og er-
lendur sérfræðingur og sagði sá
síðarnefndi að þangfjörurnar við
Eyrarbakka og Stokkseyri og þar
í kring mundu vera hinar lengstu
í Evrópu.
Vinnsla hafin.
I sumar hófst svo vinnslan af
fullum krafti, sagði Vigfús. Er
það Óskar Sveinbjörnsson for-
stjóri Korkiðjunnar, sem tekur
að sér vinnsluna til að byrja með
en ætlunin mun að stofna sér-
stakt fyrirtæki um þangvinnsl-
una, ef vel gengur. Beinamjöls-
verksmiðjan, Fiskimjöl Eyi--
byggja, er eign frystihúsanna á
Stokkseyri og Eyrarbakka.
I allt sumar hafa 15 menn
haft atvinnu við að skera og
vinna þangið, 9 menn skera dag-
lega, 4 vinna við mölun og 2
bílstjórar aka þanginu frá fjöru
að beinamjölsverksmiðjunni, sem
staðsett er mitt á milli Eyrar-
bakka og Stokkseyrar.
200 kg. í hverju neti.
Þangið er skorið með stórum
sveðjum niður við grjót á skerj-
unum og brúskarnir settir í
venjulegt net, sem síðan flýtur.
Að skurðinum vinna tveir menn
saman, sem hafa tvo báta við
verkið, trillu og minni árabát.
Þeir skera á fjöru, safna þang-
inu í net og hafa fyllt allt að 53
netum á dag, en venjulega hafa
þeir 36 net til að skera í. Eftir
að netin hafa verið fyllt, eru þau
hnýtt hvert aftan í annað, og á
háflóði eru þau dregin í einni
trossu upp í fjöru. í hverju neti
er nálægt 200 kíló af þangi, en
reynslan sýnir, að mjölið verður
rúmlega fjórðungur þyngdar-
innar. Munu nú hafa verið unn-
in 200 tonn af þangmjöli, og all-
ar nærliggjandi geymslur troð-
fullar.
Nóg í U ár.
Þó að þessi þangskurður hafi
verið stundaður heilt sumar, sér
lítið á Bakkafjörunni. Öll fjaran
frá Eyrarbakka, hjá Stokkseyri
og austur að Baugstaðavita er
þakin þangi og öll sker kafloðin,
og fullyrða menn austur þar, að
þótt miklu meiri mannskapur
gengi að þangskurðinum, mundi
þangið endast í það minnsta f jög-
ur ár, en á þeim tíma er talið,
að nýtt þang hafi fullvaxið á ný.
I sumar hefur þangið verið aðal-
lega tekið framan við Stokks-
eyri frá Hraunsá austur móts við
Jaðar eða um það bil á 4 km.
svæði, en strandlengjan, þar sem
þangið er mest, er ekki minna en
10 km. löng. Hyggja Stokkseyr-
ingar og Eyrbekkingar gott til
þessarar nýju atvinnugreinar, og
vænta þess, að ef nægur mark-
aður fæst fyrir mjölið, verði á
næsta sumri unnið nótt með degi
í mjölverksmiðjunni að þang-
mjölinu og afköstin með því auk-
in verulega, en í sumar hefur
verksmiðjan malað níu stundir
á dag. Fullyrt er að beinamjöls-
verksmiðjan verði á komandi
vertíð jafngóð við mölun bein-
anna eftir sem áður, þótt hún sé
notuð við þangið að sumrinu til,
þegar hún ella stæði hljóð og
ónotuð.
VÍKINGUR
243