Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1961, Síða 20
HEIMAEY
★
Hún ris úr sumarsænum
í silkimjúkum blænum
með fjöll í feldi grænum,
mín fagra Heimaey.
, Við lífsins fögnuð fundum
á fyrstu bernskustundum,
er sólin hló á sundum
og sigldu himinfley.
Hér réri hann afi á árabát
og undi sér bezt á sjó,
en amma hafði á öldunni gát
og aflann úr fjörunni dró.
Er vindur lék í voðum
og vængir lyftu gnoðum,
þeir þutu beint hjá boðum
á bliðra vinafund.
Og enn þeir fiskinn fanga
við Flúðir, Svíð og Dranga,
þótt stormur strjúki vanga,
það stælir karlmanns lund.
Og allt var skini skartað
og skjól við móðurhjartað,
hér leið mín bernskan bjarta
við bjargfuglanna klið.
Er vorið lagði að landi,
var líf í fjörusandi,
þá ríkti unaðsandi
i ætt við bárunið.
Þegar í fjarskann mig báturinn ber
og boðinn úr djúpi rís.
Eyjan min kæra, ég óska hjá þér
að eigi ég faðmlögin vis.
Þótt löngum beri af leiðum
á lífsins vegi breiðum,
þá finnst í fornum eiðum
margt falið hjartamein.
En okkar æskufuna
við ættum þó að muna,
á meðan öldur una
í ást við fjörustein.
ÁSI í BÆ.
HEIMAEY OG '
TÓLF AFLAHÆSTU BATA
ÞRJÁR SfHt
1958
Afli Róðrafj.
Gullborg RE 38, 82 brl 1.020 85 Guliborg RE 38, 82 brl. '
Ófeigur IH VE 325, 66 brl 821 80 Stígandi VE 77, 73 brl.
Freyja VE 260, 51 brl 775 86 Ófeigur III VE 325, 66 'j(
Kristbjörg VE 70, 40 brl 736 82 Re.vnir VE 15, 72 brl.
Stígandi VE 77, 73 brl 715 80 Kristbjörg VE 70, 40 brl
Reynir VE 15, 72 brl 714 62 Gjafar VE 300, 51 brl. •'
Gjafar VE 300, 51 brl 670 , 85 Hannes lóðs VE 200, 59 'l>
Kap VE 272, 52 brl 657 85 Kári VE 47, 63 brl. . • • ■'
Þórunn VE 28, 51 brl 626 75 Ágústa VE 350, 65 brl. •'
Ágústa VE 350, 65 brl 42 Baldur VE 24, 55 brl. • •
ísleifur III VE 336, 59 brl 610 62 Freyja VE 260, 51 brl. •'
Sjöstjaman VE 92, 55 brl 615 74 Leo VE 294, 39 brl. . • • •'