Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1961, Blaðsíða 21
1959
Xlll í VESTMABÍNAEYJUM
*XJ VERTlÐIR
Afli Róðrafj. Afli Róðrafj.
895 62 Stígandi VE 77, 73 brl 854 95
816 71 Leo VE 400, 94 brl 806 88
711 76 Gullborg RE 38, 82 brl 717 - 85
708 72 Eyjaberg VE 130, 94 brl 677 86
704 73 Reynir VE 15, 72 brl 667 90
688 78 Gjafar VE 300, 51 brl 661 89
668 67 Ófeigur II VE 324, 95 brl 646 86
650 70 Kári VE 47, 63 brl 624 79
622 55 Bergur VE 44, 77 brl 603 85
621 66 Hannes lóðs VE 200, 59 brl 555 80
601 68 Lundi VE 110, 52 brl 528 73
599 61 Huginn VE 65, 60 brl 521 79
VESTMAJÍNA-
EYJAR
★
Eyjan mín hamraháa
hrannar við rótið kannast,
brestur á þínum brjóstum
brimið með þungum ymi.
Mekkir frá öldumökkum
móðu um hrannaslóðir
dreifa í veðradrífu
drafnar um vegi skafna.
Senn kemur logn um lagnir,
leita þá allar fleytur
miðanna eins og áður.
Ýtar á jaxlinn bíta
faldandi sigluföldum.
Freyðir um brjóst á skeiðum
löður af ljósu gráði,
logar þá sól um voga.
Lögð eru net og nætur,
notaður bátaflotinn,
færunum fleygt í marinn,
fiskað á margan diskinn,
þorskurinn rígaroskinn
reittur á krókinn beittan,
bátur með hraða hlaðinn,
hroði er að rísa á boðum.
Halda svo heim að kveldi
höldar með dagsins gjöldin.
Öldur með úfna falda
austan um vaða að flausti.
Stritandi vélar streitast.
Strekkinginn hræðast ekki
rakkir sjóbarðir rekkar
rökkrinu vanir dökka.
Sveinbjörn A. Benónýsson,
HELGl BERGVINSSON, formaður m.b. STIGANDA VE 77. Aflahæstur á vertíðinni 19G0.