Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Qupperneq 3
Guðmundur
Kjærnested,
skipherra,
kjörinn forseti FFSl
mælikvarða og landmaðurinn í
alla 12 mánuði ársins.
Þarna er sýnilega um marg-
háttaðan skilsmun að ræða.
Nú er mönnum í landi heimilt
að drýgja tekjur sínar, án þess,
að til skatts komi, þ. á m. með
vinnu til eigin íbúðarbyggingar.
Ekki ná þessi hlunnindi til sjó-
mannsins. Þau eru aðeins fyrir
þá, sem í landi vinna og sjómað-
urinn því afskiptur.
Eitt dæmi enn: Ekki drýgir
sjómaðurinn tekjur sínar með
því, að vinna óteljandi handarvik
fyrir heimili sitt.
Það þarf ekki mikið útaf að
bera hjá sjómannskonunni, svo
að hún þurfi ekki að kaupa rán-
dýra hjálp til þess að gera við
það, sem aflaga fer í íbúðinni, en
sem landmaðurinn sjálfur getur
annazt, eða fengið lagað með
ódýrara hætti.
Svona mætti lengi telja og rök-
styðja, þó ekki væri nema það
mikilsverða atriði; hversu sjó-
maðurinn og öll fjölskylda hans
fer mikils á mis við að vera fjar-
vistum við ástvini sína, venzla-
fólk og vini og slitinn úr þeim
tengslum svo vikum og mánuðum
skiptir.
í því lífi, sem hann úti á sjón-
um lifir og stai’far, er hann af-
skorinn frá flestum lystisemdum
cg unaði. Hann er innibyrgður í
þessari litlu skel, skipinu; eins-
konar vinnufangelsi þjóðfélags-
ins.
Islenzkir sjómenn eru einna
aðdráttardrýgstir í þjóðarbúið, á
heimsmælikvarða.
Sem betur fer hefur þeim tek-
izt með áralangri baráttu og oft
lofsverðri samheldni, að bæta
kjör sín allverulega. En oft hefir
það kostað töluverðar fórnir og
enn í dag stendur yfir hin eilífa
togstreita um kjörin.
Vonandi lyktar henni svo að
viðunandi verði og mörg eru þess
merki að nú sé verulega að rofa
til í íslenzkum sjávarútvegi. En
það er nú sérstakur kapítuli.
M
Viðtal við
nýkjörinn
forseta
Á 26. þingi FFSl var Guð-
mundur Kjærnested, skipherra á
varðskipinu Ægi kjörinn forseti
FFSÍ til næstu tveggja ára. Var
Guðmundur einróma kjörinn til
starfans.
Að þessu tilefni átti sjómanna-
blaðið stutt viðtal við hinn nýja
forseta, en þess er að geta, að
Guðmundur hefur ekki starfað
innan sambandsstjórnarinnar, en
hann er formaður Skipstjórafé-
lags íslands og hefur verið það
undanfarin tvö ár, eða frá 1971
og er þar að byrja annað kjör-
tímabil sitt. Hann hefur oft setið
þing FFSl og er því samtökun-
um ekki ókunnur. Sagðist Guð-
mundi frá á þessa leið:
— Áttu nokkuð von á að það
geti orðið erfitt fyrir þig að
gegna forsetastarfi hjá FFSl,
þar eð þú ert í starfi, sem skip-
herra á varðskipi og því oft úti
á sjó, þegar kannske verst á
stendur?
— Það verða allavega ein-
hverjir erfiðleikar á því, þar sem
mikilvæg mál geta borið að, þeg-
ar ég er kannski víðsfjarri, en
þá eru tveir varaforsetar, sem
geta gripið inn í starfið og innt
það af hendi. Ég stakk nú upp á
því sjálfur, að það yrði landmað-
ur í þessu starfi, en það virtist
vera meiri hljómgrunnur fyrir
Guðmundur Ivjærnested, skipherra,
nýkjörinn forseti FFSI.
því hjá sjómönnum, að hafa
starfandi sjómann í þessu starfi.
— Hvers vegna gafstu kost á
þér í þetta?
— Það er ekki auðvelt að svara
því. Það er einu sinni svo, að
þegar maður á annað borð er
byrjaður að fást við félagsmál,
þá virðist þetta hlaðast utan á
mann.
Ég var nú upphaflega í Sjó-
mannafélaginu (1940) svo í
Stýrimannafélaginu, var þar í
samninganefndum og í trúnaðar-
mannaráði. Síðan var ég ritari
Skipstjórafélags íslands um
VlKINGUR
3