Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 6
til skipherra varðskipanna og á- hafna þeirra, þessir menn hafa ieyst sín vandasömu og erfiðu störf af hendi á þann veg, að þeir eiga sérstakar þakkir skilið. Vonir standa til, að innan tveggja ára verðum við búnir að fá viðurkennda 200 sjómílna fiskveiðilögsögu, þá verður það okkar eigin mál hvernig við hag- nýtum þau auðæfi, sem við eig- um í sjónum. Þá reynir á fiski- fræðinga, stjórnvöld og ekki sízt fiskimenn að veiði verði hagnýtt sem bezt, en þó á þann veg að fiskistofnum fjölgi á eðlilegan hátt. Það er nú að koma í ljós að þrátt fyrir að íslenzki síldar- stofninn var svo til uppurinn þá virðist friðun undanfarinna ára hafa gefið þann árangur, að ekki muni verða langt þar til að hægt verður að hefja síldveiðar í vax- andi mæli. Því megum við þó aldrei gleyma, að fiskur er líf, sem auð- velt er að útrýma, ef óvarlega er að farið. Af því höfum við bitra reynslu. Þetta þing F.F.S.l. sem nú er að hefja störf er 26. þing samtak- anna. Þingið sitja 61 fulltrúi frá 14 félögum víðsvegar að af land- inu. Á fyrri þingum sambands- ins hafa oft verið gerðar mikil- vægar ályktanir, sem hafa gripið sterklega inn í þjóðmálin. Það þarf engan að undra, því hér sitja á rökstólum menn með mikla reynslu í flestum þeim málum, sem lúta að sjávarútvegi. Að þessu sinni leggur stjórnin fram fyrir þingið 10 málaflokka til umræðu og ályktana, auk þess sem hin ýmsu félög munu leggja inn mál, sem eru meira stað- bundin þeirra aðstæðum sérstak- lega. Ég hefi starfað að félagsmál- um í 26 ár, þar af sem forseti samtakanna í 4 ár. Ég hefi tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á mér til forsetakjörs aftur. Það er svo með félagsmálin, að þau eru mest unnin af áhuga og stundum fórnfýsi. Þau verða því þreyt- andi þegar árin líða. Það er einn- ig sjálfsagt að skipta um starfs- krafta með hæfilegu millibili. „Nýir vendir sópa bezt.“ Nokkur kveðjuorð frá FFSl til fráfarandi forseta Guðmundur Pétursson hefur þegar hann hættir sem forseti sambandsins, setið tvö kjörtíma- bil. Þetta tímabil er kannski eitt af þeim tímabilum, sem setja sér- stakan blæ yfir starf það sem unnið er af sambandsins hálfu, kjaramálin settu mjög svip sinn á þetta tímabil og fylgdist for- setinn ævinlega mjög vel með þeim málum, hann er þrautþjálf- aður félagsmálamaður og er það mikill styrkur þeim sem með honum á að vinna. Þau tvö kjör- tímabil, sem ég hef unnið undir hans stjórn, hefur mér líkað þeim mun betur samvinnan við hann eftir því sem á hefur liðið. Ég þakka Guðmundi ágæta samvinnu og óska honum far- sældar og fjölskyldu hans og þakka ánægjulegt samstarf á umræddu tímabili. Ingólfur Stefánsson ÚR ÁLYKTUNUM 26. ÞINGS FFSÍ: Skólnmál 1. 26. þing F.F.S.Í. haldið í Reykjavík 12. til 14. desember 1973, samþykkir að skora á menntamálaráðuneyti og Alþingi að veita allt það fjármagn sem nauðsynlegt er til eflingar starfs Stýrimannaskólans og Vélskóla íslands, svo þeim reynist kleift að veita nemendum skólanna sem bezta fræðslu. ekki aðeins í hefð- bundnum námsgreinum, heldur einnig í sem flestu því sem varð- ar þær fjölmörgu nýjungar sem hafa verið og eru að ryðja sér til rúms í sjávarútvegi. 2. Jafnframt skorar þingið á samgönguráðuneytið að það setji nú þegar ákveðnar reglur um meðferð og afgreiðslu undan- þágubeiðna, sem ráðuneytinu berast, til skipstjórnar- og vél- stjórnar. Vill þingið í því sambandi benda á þær alvarlegu hættur sem af því geta leitt, ef yfirmenn á skipum hafa ekki tilskilda lág- marksmenntun til þeirra starfa sem þeir eru ráðnir til. Hér eftir verði ekki í neinu til- felli veitt undanþága fyrir skip- stjóra og jafnframt verði ekki heimiluð lögskráning á neitt skip nema minnst einn vélstjóri hafi tilskilin vélstjóraréttindi. 3. 26. þing F.F.S.Í. skorar á samgönguráðuneytið að skipa nefnd til undirbúnings lagasetn- ingar um fjölda áhafna skipa. Öryggismál 26. þing F.F.S.f. skorar á sigl- ingamálastjóra að settar verði reglur um öryggisbúnað á spil- um, gálgum og öðrum þeim veiði- búnaði sem eru á fiskiskipum og notuð eru við fiskveiðar. Eftirlit á þessum búnaði sé framkvæmd- ur þegar þurfa þykir og bendir jafnframt á að þeir þrír menn sem væntanlega verða ráðnir til veiðarfæraeftirlits á vegum rík- isins gætu jafnframt fram- VÍKINGUR 6

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.