Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 10
MINNING KARL B. STEFÁNSSON vélstjóri Þótt nokkuð sé um liðið síðan Karl B. Stefánsson kvaddi okkur samferðamenn sína hinztu kveðju, finnst mér ekki annað hlýða en hans sé minnzt á síðum Sjómannablaðsins Víkings. Og mér er vissulega Ijúft að rifja upp minningar um þennan ágæt- ismann. Það var í Reykjavík haustið 1938, á hinu minna mótornám- skeiði Fiskifélags Islands, að við Karl kynntumst. Hann átti þá heima hjá foreldrum sínum að Hrísum í Fróðárhreppi á Snæ- ellsnesi. Samgöngur voru þá treg- ari en nú er, og þess vegna komst Karl ekki á námskeiðið fyrr en vika- var liðin af því. Samt fékk hann eina af beztu einkunnunum í lokin, en jafnframt námskeiðinu stundaði hann nám í bókhaldi og lauk prófi í því með ágætum. Þetta er með öðru til marks um námfýsi hans og skilning. Á þessum tíma var ekki auð- sótt að komast í vélfræðinám, hvað þá ef efnalitlir menn utan af landsbyggðinni áttu í hlut. Járn- smiðjurnar voru eins konar for- skóli Vélstjóraskólans, þannig að menn fengu ekki inngöngu í hann nema þeir hefðu lokið iðnnámi í vélsmíði, en galiinn var sá, að smiðjurnar voru í reynd að heita mátti lokaðar iðnnemum (langur biðlisti). Námskeið Fiskifélags Islands bættu því úr brýnni þörf. Karl B. Stefánsson var einn þeirra, sem skildu til hlítar þörf sjávarplássanna, útgerðarinnar og þjóðarbúsins alls fyrir menn með hina fyllstu vélfræði- og tæknimenntun. Og jafnframt var honum ljós þörfin á því, að unnt væri að veita þá menntun á sem hagkvæmastan og notadrýgstan hátt, enda var það eitt af baráttu- málum hans, að fá lögg.jöf um þessi efni breytt. Svo að vikið sé lítillega að hús- næðismálum og peningaráðum á þessum árum, þá má geta þess, að meðan Karl var við nám, dvaldist hann í herbergi sem föðurbróðir hans (einhleypur togarasjómað- ur) hafði á ieigu og bjó í. Að námi loknu réðumst við Karl sem vélstjórar á báta frá Akranesi og tókum þar eitt herbergi á leigu í félagi. Karl átti dívan með háum haus, en ég átti sæng, kodda og koffort. Við þetta bjuggum við út vertíðina, en þá jukum við bú- slóðina um dívan og lítið borð, og var þar við látið sitja út árið. Að sjálfsögðu lét Karl sér ekki nægja hið minna vélstjórapróf. Árið 1941 lauk hann með ágætis- einkunn hinu meira vélstjóra- prófi frá námskeiði Fiskifélags íslands. Tveimur árum síðar var hann ráðinn til þess að veita for- stöðu hinu minna námskeiði fé- lagsins á Akranesi, og gegndi hann því starfi með prýði, enda var hann fræðari góður. Að nám- skeiðinu loknu færðu nemendurn- ir honum áletrað gullúr í þakk- lætisskyni. Árið 1945 sá Karl á sama hátt um vélstjóranámskeið í Stykkishólmi. Karl stundaði vélstjórn á fiski- bátum frá Akranesi og víðar. Hann var fyrsti vélstjóri á m/s Búðakl'etti frá Hafnarfirði og m/s íslendingi frá Reykjavík, sem sigldu með afla til Englands á stríðsárunum. Hann var far- sæll í starfi og fórst honum það vel úr hendi. Árið 1947 var Karl beðinn um að takast á hendur framkvæmda- stjórn Hraðfrystihúss Grundar- fjarðar, en rekstur þess var þá ekki vel á vegi staddur. Karl varð við þessari beiðni og fluttist bú- ferlum frá Reykjavík til Grund- arfjarðar. Ekki leið á löngu áður en hann varð þess vísari hvar skórinn kreppti hjá fyrirtækinu. Karl var jafnan fljótur að ná valdi á nýjum viðfangsefnum og gekk að þeim með djörfung og framsýni, enda tókst honum að koma rekstri frystihússins í gott horf. Ekki virtist menntunar- skortur há honum í hinu nýja og framandi starfi, enda þótt skóla- nám hans hefði aðeins verið í barnaskóla hjá farandkennara, auk vélstjórnar- og bókhalds- náms, sem áður var minnzt á. Karl veitti Hraðfrystihúsi Grund- arfjarðar forstöðu allttil 1963, er hann fluttist aftur til Reykjavík- ur og gerðist yfirvélstjóri á fiski- bátum og stundaði fleiri störf, unz hann varð skrifstofustjóri hjá Bátalóni í Hafnarfirði. Þar lauk hann starfsævi sinni með hinni mestu prýði, að mér er tjáð. Karl B. Stefánsson var félags- lyndur maður, öruggur á fund- ur um málefni vélstjórastéttar- innar, einn af stofnendum Mótor- vélstjórafélags Islands 13. janú- \im, góður og djarfur málflvti- andi. Hann var mikill áhugamað ar 1942, fyrsti ritari þess og ann- ar formaður 1946—47. Meðal þess fjölmarga, sem Karl vann að innan MFÍ, var bar- áttan fyrir breyttri löggjöf um vélstjóramenntun, svo og barátt- an fyrir sameiningu vélstjóra- stéttarinnar í eitt félag, sem mundi á allan hátt styrkja að- stöðu hennar. Meðan Karl var framkvæmdastjóri í Grundar- firði, var hann ekki virkur félagi vélstjórastéttarinnar, en hann fyígdist þó alltaf með því sem fram fór og tók þráðinn óðara upp á ný, þegar hann kom aftur til starfa sem vélstjóri. Hann var VlKINGUR 10

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.