Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 12
Asgrímur St. Björnsson: MJÓR ER MIKILS VÍSIR Ekki getur það talizt ný bóla að minnzt sé á þörf fyrir skóla- skip. Það eru mörg ár síðan ég sá fyrst skrifað um þetta í blaði og þar var hvatt til þess að eitt- hvað yrði gert í málinu og það strax. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og tilraunir verið gerðar með báta, varðskip og nú síðast innskot fyrir Stýri- mannaskólann á skipum Haf- rannsóknai’stofnunarinnar. Ein- hverra hluta vegna hafa þessar tilraunir alltaf runnið út í sand- inn, eða ekki komið að nægjan- legum notum svo þær gætu opnað augu áhrifamanna fyrir nauðsyn sérstaks skips, sem eingöngu yrði gert út í þessu augnamiði. Nægi- leg rök er hægt að færa fyrir þörfinni á skipi til þessara nota og oft hefur það verið gert, en það dugar bara ekki. Þeir, sem með völdin hafa farið í landinu, virðast alltaf vera þeirrar skoð- unar að of mikill kostnaður sé þessu samfara, en eftirtekjan aftur á móti lítil. Sem betur fer eru ekki allir sammála þessum herrum, því tveir ábúðarfullir ágætisdrengir á Alþingi þjóðar- innar fluttu tillögu fyrir nokkr- um árum um stofnun sjóvinnu- skóla fyrir unglinga og að mig minnir átti bátur að fljóta þar með. Því miður sofnaði þetta í nefnd og blessaðir drengirnii’ hafa ekki viljað vekja afkvæmi sitt aftur til lífsins. Hafa sjálf- sagt nógu mörgum öðrum hnöpp- um að hneppa, en alltaf er von meðan ekki er tilkynnt um and- látið. Til að fá fullkonma nýtingu á skólaskijn yrði að huga vandlega að stærð þess og útbúnaði áður en lengra yrði haldið og miða við að það yrði notað á vetrum til þjálfunar nemenda allra sjó- mannaskólanna. Hve langan tíma hver og einn þyrfti að vera um borð, yrði tíminn og reynslan að segja til um, en einnig mætti taka mið af reynslu t. d. Norð- manna í þessum efnum. Ekki kæmi mér það á óvart að menn vildu heldur fá fleiri daga en færri í þessum hluta námsins, til þess benda umsagnir þeirra nem- enda Stýi'imannaskólans, sem farið hafa út með hafrannsókn- arskipum. Á sumrin þyrfti svo að gefa unglingum, sem sjómennskustörf vilja læra, tækifæri á að spreyta sig, ekki mun skorta áhugann þar. Vandinn er annar eins og áður segir, og efalaust er það skilningsleysi ráðamanna á þörf- inni, sem erfiðast verður að sigr- ast á. Það er ekkert samræmi í skoðunum þessara manna, þegar þeir láta í ljós í öðru orðinu að öll framtíð þjóðarinnar hvíli á sjósókn og siglingum, en þegar minnzt er á fjármagn til að betr- umbæta menntun sjómanna yfir- leitt, þá heyrist í hinu orðinu, að þetta sé allt gott og blessað eins og það sé. Svona hafi þetta geng- ið áður og reynzt vel. Þessu fylgja svo tilheyrandi vangavelt- Reykvíkingur IÍE 76, skólaskip Reykjavíkurborgar, sem gerður verður út af Æskulýðsráði. Þarna á að vera unnt að kenna vinnubrögð við fiskveiðar og fleira. VÍKINGUR 12

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.