Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Blaðsíða 11
einn af fulltrúum vélstjóra á síð- asta (25.) þingi FFSl í desember 1971. Þingfulltrúar muna eflaust eftir virkri þátttöku hans í störf- um þingsins og trausti því, sem hann naut þar. Karl átti sæti í ritnefnd Sjómannablaðsins Vík- ings. Karl B. Stefánsson fæddist að Hrísum í Fróðárhreppi 25. nóv- ember 1918, sonur hjónanna Kristínar Sigurðardóttur og Stef- áns Jónssonar, sem þar bjuggu lengi. Karl var næstelztur 11 systkina. Það gefur auga leið, að hann hefur snemma þurft að taka til hendi og hjálpa foreldrunum við að koma á legg svo stórum hópi barna, enda vann hann þar ötull að fram til tvítugs. Stefán bóndi gerði út trillu og sóttu drengirnir sjó með honum. Karl komst því snemma í kynni við sjóinn og meðferð véla. Undir lok síðari heimsstyrjald- ar hóf Karl búskap í Reykjavík með fyrri konu sinni, Jenny Ás- mundsdóttur frá Neskaupstað, en lengst af voru þau búsett í Grund- arfirði. Þau eignuðust sex börn, fjórar stúlkur og tvo drengi. Áð- ur hafði Karl eignazt einn son. Árið 1963 slitu þau hjónin sam- vistum og fluttist Karl þá til Reykjavíkur. Hann kvæntist öðru sinni Álfheiði Jónsdóttur frá Isa- firði og eignuðust þau tvo diængi. Karl átti við vanheilsu að stríða síðustu árin og sáu flestir kunningjar hans að hverju stefndi. Hann hafði fengið tvö mjög slæm hjartaáföll og þurfti að gangast undir stranga læknis- meðferð vegna þeirra. Hann hvarf þó jafnan að störfum sín- um aftur unz yfir lauk hinn 1. júní síðastliðinn. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast svo góðum dreng og eignast svo kæran vin og félaga sem Karl var. Ég þakka honum margar samverustundir við störf og leiki og ég þakka honum baráttu hans fyrir málum vélstjóra, þeim og þjóðfélaginu til heilla. Guð leiði hann á vegum nýrrar tilveru. Daníel B. Guömundsson SÖLUSAMBAND ÍSLENZKRA FISKFRAMLEIÐENDA stofnað í júlímánuði 1932, með samtökum fiskframleið- enda, til þess að ná eðlilegu verði á útfluítan fisk landsmanna. Skrifstofa Sölusambandsins er í Aðalstræti 6. Símnefni; FISKSÖLUNEFNDIIM Sími: 11480 (7 línur). TRETORN SJÓSTÍGVÉLIN Fullhá, álímd, lág og með lausum svampgúmmísóla. TRETORN GÚMMÍVETLINGAR Einkaumboðsmenn: JÓN BERGSSON HF. Laugavegi 178, Reykjavík 5335. Ms. Laxá Ms. Rangá Ms. Selá Ms. Langá HAFSKIP HF. Skrifstofa Hafnarhúsinu Sími 21160 Simnefni: Hafskip. HAPPDRÆTTI DAS 60% af ágóða varið til bygg- ingar Dvalarheimilisins. SKRIFSTOFA AÐALSTRÆTI 6 Aðalumboð Vesturver. Símar: 17117 og 17757 Önnumst viðgerðir á rafvélum og raflögnum fyrir skip og í landi. Góðirfagmenn. Vönduð vinna. Rafvélaverkstæðið VOLTI Norðurstíg 3, slmar 16458 og 16368 VÍKINGUR 11

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.