Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Síða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Síða 22
kvöldið á Landamerkinu með tré- smíðanemann á milli sín; hann átti ennþá peninga, hann hafði tvisvar sótt tvöþúsund krónur í sparisjóðinn. Hann gat varla staðið í lappirnar lengur, en við fórum samt með hann á búllu og á eftir tosuðum við honum heim til mín svo að ekkert okkar lenti á flækingi um nóttina. ,,Hvað voruð þér þá með mikið af peningum, Lukkuriddari", spurði dómarinn, ,, þegar þér hittuð stúlkurnar og manninn?“ „Nú, það get ég ekki vel sagt um; Það hefur náttúrlega ekki verið neitt til að berja í borðið með, herra dómari. En þá fékk ég tvöhundruð krónur hjá kær- ustunni minni“. „Það er að segja Valborgu?“ „Já, það er að segja Valborgu?" „Nú ljúgir þér, Jensen“. „Að hvaða leyti herra dómari?“ „Fyrir það fyrsta fenguð þér aðeins hundrað krónur hjá Val- borgu í tveimur fimmtíuköllum." „Það passar, herra dómari, al- veg hárrétt; það var úti á göt- unni; þar fékk ég hundrað krón- urnar, tvo fimmtíukalla, alveg rétt; en heima, á eftir fékk ég hinn hundraðkallinn". „Þá hlýtur stelpubjáninn að hafa látið þig fá alla peningana, sem hún hafði?“ „Já, auðvitað, herra dómari. Maður er ekki trúlofaður stelpu til að hún stingi af með hundrað- kall, og hafi mann svo að fífli á eftir“. Hann sat þarna og japlaði dá- lítið á þessu, dómarinn, en svo sagði hann: „Hvað var það lengi, sem þér sögðust hafa þekkt hana?“ Þá varð ég aftur að fara upp á fjórðu, með þrjá daga. Það var á þessu, sem allt málið valt, því að hefði maður verið trúlofaður stelpunni í alvöru, hefði ekki ver- ið um neitt röfl að ræða af hennar hálfu. Ef maður er trúlofaður stelpu, þá segir hún mitt er þitt, en hvað ég geri, það kerriur henni ekkert við. — Það var ákaflega hjartnæmt mót, þegar ég hitti hana Valborgu 22 aftur uppi í réttinum. Hún hafði verið sótt í Þrælkunina, hafði fengið þrjátíu daga, og Oda, hún hafði verið sótt í Vestra tugthús, hún hafði fengið tólf daga frítt uppihald, og svo var ein stelpu- gæs, sem hafði verið skipað að mæta í átta daga hjá Siðferðinu, hún hét Anný, og svo var ein tuskan til úr Þrælkuninni; Þarna stóðu þær bísperrtar allar fjórar. Valborg var trítilóð eins og háls- löngu gæsirnar úti á Amager, og augun stóðu á stilkum út úr hausnum á henni; en smeyk var hún samt. Og ég sagði líka við dómarann, að það þýddi ekki fyrir hana að láta svona við mig með fölskum áburði, en hún heldur auðvitað, að ég launi henni frekj- una, og þegar ég einu sinni er sloppinn út, getur vel verið að ég launi henni þetta. . . 0, hún hvæsti upp til dómarans: „Hvort ekki væri hægt að skipa mér, þegar ég losnaði út, að ég mætti ekki leita hana uppi. . . “ „Jæja þá, það ætti víst að veita mér áminningu, um að ég ætti að fara fyrir eitthvað annað horn ef ég mæti þér, eins og það stæði fyrirfram í ykkar bókum, að það væru einhverjar götur, sem þið mættuð ekki ganga. En við hinir, við eigum ekki neitt á hættu með siðferðisnefndina, svo að við göngum hvar sem okkur sýnist, skilurðu það. . . “ En þá sló dómarinn reglustrik- unni í borðið: „Og nú skuluð þið halda ykkur saman“. „Já, já, herra dómari, en manni getur nú hitnað í hamsi við svona baldagínu". „Baldagínu“, sagði hann, „hvað eigið þér við með því?“ „Eg meina að hún er fölsk gyðja frá þeim tíma, þegar voru falskir guðir, þá hafa líka verið til falskar gyðjur; þær gefa pen- ingana fyrst og taka þá svo aft- ur“. Nú hefðu þær sagt, þessar beinasleggjur, að fyrst hefði ég snasað peningana um nóttina úr kjólvasa Valborgar, þarna þegar trésmíðaneminn og hún og Oda lágu hjá mér og hún svaf; en svo vaknaði hún og fór að rífast, en svo sofnaði hún aftur í ölvímu sinni, og ég fór í burtu með tré- smíðasveininum, því að hann var kvæntur og vildi fara heim til konunnar, svo að hún gerði hon- um ekki helvítið alltof heitt. Eg kom aftur kl. níu og Valborg, hún muldraði eitthvað um þessa pen- inga og þá missti ég stjórn á mér, og ég gat vel fundið, að þær ætl- uðu að stinga mig af, báðar gæs- irnar, því að þær voru hræddar um að ég mundi rjúka á þær og tyfta þær dálítið; en ég fór með þeim út á götuna, báðum, og svo gaf ég umgang á einni búllu, sem við köllum Heyloftið, og þar var það, að Siðferðið kom og greip báðar gæsirnar. Nokkrum dögum seinna varð Valborg illskeytt úti í Þrælkuninni og meldaði mig. — Svo var það þarna þegar ég kom og hafði verið fyrir réttinum, og þar voru líka meðal annars nokkr- ar fegurðardísir, sem höfðu verið teknar sama dag og ég. 0g á ganginum, þegar ég var á leið- inni niður í vagninn, á ég að hafa sagt við hana Anný, að ef að hún sæi Valborgu úti í Þrælkuninni, skyldi hún segja, að ég skyldi nokk senda henni þennan hundr- aðkall, þegar hún kæmi út, ef hún bara vildi draga kæruna til baka og segja, að hún hefði verið svo full þetta kvöld, að það gæti vel verið, að hún hefði gefið mér þessa peninga. En Anný, það átti bara að straffa hana í fyrsta skipti, svo að hún gat reiknað út, að hún losnaði við Þrælkunina, svo að hún lét það ganga áfram til annarrar smámellu, sem var þar í þriðja skiptið og þær sátu saman frammi í vagninum, þegar þær voru keyrðar til Kristjáns- hafnar, og hún hafði verið með Valborgu í Þrælkuninni áður, svo að hún átti að koma platinu áfram. — Það voru þessar tvær, Anný og hin, sem voru mættar gegn mér með Valborgu og Odu. „Og hvað segði ég nú um allt þetta?“ spurði Dómarinn. „Já, herra dómari, mér finnst þetta sorglegt “ .. . „Já, það finnst mér líka“. VÍKIN GXJR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.