Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 1
EFNISYFIRLIT SJÓMANNABLAÐIÐ Guðmundur Jensson: Dökkt í álinn við áramót Jónas Guðmundsson: Rætt við Einar B. Ingvarsson aðst.m. sjávarútvegsráðh. H. Hermannss., skipstj. ísaf.: Er stefnt að stjómskipuðum fiskveiðum? Fréttir úr fjörðum og víkum á Vestfjörðum. Tómas Helgason próf. dr. med.: Frumathugun á heilsufari og fjölskyldulífi sjómanna . . . Guðm. Hallvarðsson: Þankar um líf og fjölskyldu sjómannsins. Halldór Halldórsson, stýrim.: Athyglisverður togari. Steindór Ámason, skipstj.: Leiðréttingar vegna sjónvarpsþáttar SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: F.F.S.Í. Ritstjórar: Guðm. Jensson (áb). og Jónas Guðmundsson. Ritnefnd: Guðm. Ibsen, Jón Wium, Ólafur Vignir Sigurðsson. Varamenn: Ásgrímur Björnsson, Guðm. Jónsson, Guðni Sigurjónsson. Ritstjórn og afgreiðsla er að Bárugötu 11, Reykjavík. Utanáskrift: Sjómannablaðið Víkingur, Pósthólf 425, Reykjavík. Sími 15653. Setning, umbrot, filmuvinna: Prentstofa G. Benediktssonar. Prentun: ísafoldarprentsm. h.f. VÍKINGUR VfKINGUR 38. ÁRGANGUR — 1. TÖLUBLAÐ 1976 Guðmundur Jensson: Dökkt í álinn við áramót Víkingurinn er nú a8 hefja 38. dr- ganginn í samfelldri útgáfu. Eins og að líkum lœtur hefir ekki ávallt blásið byrlega um framtíð blaðsins á þeim tímum byltinga- kenndra breytinga sem yfir þjóðina hafa riðið á þessu tímaskeiði, og ef satt skal segja voru lífsþræðirnir oft á tíðum grannt spunnir í samkeppni við þau ódœmi af tímaritaflóði, sem yfir þjóðina helltist upp úr síðustu heimsstyrjöld og siðan. En sterkir kraftar úr sjómanna- stétt hrintu þessu blaði sínu úr hlaði og þar var ekki tjaldað til einnar nætur. Og fullyrða má, að áhrif þeirra hugsjónamanna í sjómannastétt, sem báru blaðið uppi; studdu það með efni og útbreiðslu, þeirra áhrifa gæt- ir enn í dag, enda þótt flestir séu nú horfnir af sjónarsviðinu. Þess vegna mun Víkingurinn, þrátt fyrir allar þjóðlífssviptingar halda ótrauður áfram. Eru vinsœld- ir Víkingsins og útbreiðsla meðal landsmanna ennþá með þeim ágæt- um að óþarft virðist að kvíða fram- tíðinni. En það þýðir sannarlega ekki, að Víkingurinn sé nógu gott og fjöl- breytt tímarit. Síður en svo. Hann þarf að batna að efni og frágangi og ná til ennþá fleiri lesenda til þess að geta á sem áhrifaríkastan hátt þjónað því hlutverki, sem málgagn, 3 h 1 h 0 0 ekki aðeins sjómannastéttarinnar, sem er einn sterkasti burðarás þjóð- félagsins, heldur einnig og ekkert síður þeirra framsæknu einstaklinga og félagsafla, sem láta sig hag, heill og framsækni vakandi þjóðar miklu varða. Við slíka aðila vill Víkingurinn eiga samskipti og byggja framtíð sína á. Mörg eru vandamálin, sem fram- undan eru og mun sanni nær, að sjaldan eða aldrei höfum við staðið á krítískari tímamótum en í upphafi þessa árs. Agengar þjóðir leita fast á og krefja okkur um sinn „hefð- bundna“ skammt af lífsbjörg okkar, fiskinum. Leiða hjá sér og skella skollaeyr- um við þeirri augljósu staðreynd, að nú skal þeirra tímaskeiði á ís- lenzkum fiskimiður endanlega lok- ið. Og þótt fyrr hefði verið. Tíma- bil nýlendukúgunar er að renna. sitt skeið. Það þróunarhjól verður ekki stöðvað. Hvers virði er sjálfstœði einnar þjóðar, sem nœr ekki fullu eignar- haldi á sínum auðlindum. Verður sú þjóð ekki ávallt eins konar hjáleiga, með skattbyrðar sem getur orðið slíkur hemill á hennar athafnalífi, eða binda henni þá bagga, sem henni verður um megn að standa 1

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.