Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 4
1 1 Einar B. /ngvarsson, aðstm. sjávarútvegsráðh. Þó segja megi sem svo, að ör- lög þjóðarinnar róðist ó hafinu að verulegu leyti, ræðst hluti vand- ans samt í stjórnarklaustrunum. Al- þingi og ríkisstjórn taka vanda okkar til úrlausnar, gefa og taka nauðsynjar okkar og munað eftir órferði. Nú eru vondir tímar ó íslandi, fiskur er bæði smór og vondur og hrikalegir erfiðleikar virðast fram- undan í fiskveiðum og vinnslu sjóv- arafla. Svo mikill er vandi útgerðarinn- ar, að rætt hefur verið í alvöru um að leggja stórum hluta fiskiflotans fyrir fullt og fast, þar eð fiskstofn- ar mega ekki við þessari miklu sókn. Til þess að gefa lesendum innsýn í þessi mál — vanda sjávarútvegs- ins og þá sérstaklega útgerðarinnar, hittum við að máli Einar B. Ingv- arsson, aðstoðarmann sjávarútvegs- ráðherra, en það kemur m.a. í hlut sjávarútvegsráðherra að fjalla um þessi mál, eða þann hluta vandans sem ræðst í ráðuneytinu. Einar B. Ingvarsson er þaulkunn- ugur sjávarútvegi okkar, og það er ekki nein tilviljun, að hann er valinn til þessa þýðingarmikla starfa. Hann var áður bankastjóri Landsbankans á ísafirði, en hefur þar að auki gegnt margvíslegum trúnaðarstörf- um fyrir Landsbankann, einkum er varðar útgerð og fiskveiðar, eða lánamál þessara atvinnuvega. Við hittum Einar að máli á dög- unum — í fyrstu viku eftir áramót, um það bil sem fyrstu loðnuskipin voru að láta úr höfn. Hann hafði þetta að segja; en fyrst höfðum við spurt um álit hans á stærð bátaflot- ans. OF MARGIR BÁTAR? — Það er mál manna, að báta- flotinn, eða fiskiskipaflotinn sé stærri nú en við höfum not fyrir við ríkjandi aðstæður á fiskimiðun- um. Það er talið af mönnum, sem skoðað hafa þessi mál ofan í grunn- Einar B. Ingvarsson. inn, að floti okkar sé afkastameiri en fiskistofnarnir, ef svo má að orði komast. Án þess að ég vilji ákvarða stærð- armörkin mjög nákvæmlega er því ekki að leyna, að þetta hefur orðið til þess að stjómvöld og útgerðar- menn verða að grípa til einhverra úrræða til þess að tryggja nauðsyn- lega friðun og gera útgerðinni og atvinnuvegunum kleift að starfa við þessi skilyrði. — Er rétt að grípa til fisk- skömmtunar, eða eigum við að lóta þó fiska sem róa, eins og verið hefur um aldir? — Yfirleitt eru menn fylgjandi frelsi á hafinu, frelsi til fiskveiða er þýðingarmikið. En fiskurinn er svo að segja eina auðlindin, sem nýtt er á íslandi í dag. Það hefur því verið nauðsynlegt að skipuleggja fiskveiðarnar og saga þeirrar skipu- lagningar er orðin mjög löng, þótt meiri stjórnun hafi verið á þessum málum á seinustu árum, en það er bágborið ástand fiskistofnana, sem er orsök margvíslegra hindrana, en ekki þörf á ráðsmennsku. — Gott dæmi um þetta eru t.d. rækjuveiðarnar. Rækja hefur verið skömmtuð um margra ára skeið t.d. á Vestfjörðum, á Húnaflóa og víðar. Þ.e.a.s. aðeins hefur verið leyft að veiða ákveðið magn af rækju á hverju ári 4 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.