Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 5
í þessar veiðar hefur sótt mikill fjöldi báta og að áliti margra eru þetta einhverjar óhagkvæmustu fiskveiðar sem stundaðar eru á ís- landi í dag. Allt of margir bátar stunda þessar veiðar og þess vegna verða veiðarnar óhagkvæmar. — Það er ef til vill andstætt hug- myndum manna um athafnafrelsi og jafnan rétt fiskimanna, að tak- marka bátaflotann, sem þessar veið- ar stunda, en ef við á hinn bóginn gerum okkur það ljóst að við gætum veitt sama magn með helmingi færri bátum — og sjómönnum, þá gefur það auga leið að það er hagkvæm- ara fyrir þjóðarbúið að takmarka bátafjöldann. — Þetta á ekki aðeins við um rækjuna. Ef við beitum of miklum flota á stofna sem hafa takmarkað veiðiþol, þá versnar afkoma sjó- manna og útgerðar. — Það hefur líka gert skipulags- málin áhugaverðari að olíuverð og útgerðarkostnaður hefur vaxið stór- lega. Gjaldeyrisnotkun fiskveiðiflot- ans, eða einstakra veiðiaðferða hlýt- ur að koma til nýrrar skoðunar og krefjast nýrra úrræða. NÝ LÖGGJÖF UM FISKVEIÐAR — Nú hefur verið rætt um nýja heildarlöggjöf um fiskveiðar. Hvað er að frétta af því máli? — Fiskveiðilaganefnd vinnur að nýjum reglum um takmörkun veiða og skipulag fiskveiða, svæðaskipt- ingu og öðru slíku. Þetta er kannski ekki neitt nýtt, því ýmsar friðunar- reglur hafa verið í gildi um all larigt skeið eins og við vitum. Nefndin starfar af fullum krafti og fyrirhug- að mun vera að leggja álit hennar eða frumvarp um þetta efni fyrir Alþingi er það kemur saman í lok þessa mánaðar. — Þetta skeður á sama tíma og verið er að Ijúka við endurnýjun togaraflotans? — Já, það má segja það. Hér var það sjónarmið ríkjandi að greiða Einn hinna nýju skuttogara. bæri sem mest fyrir kaupum og smíði á nýjum togaraflota, til þess að efla atvinnu í landinu. Mikið frjálsræði hefur verið ríkjandi í þessum efnum og ríkisvaldið hefur reynt að útvega nægjanlegt fjármagn til kaupa á fiskiskipum og togurum. Nú eru tog- ararnir taldir vera of margir og því er nauðsynlegt að gera ráðstafanir til friðunar. — Þetta vekur líka þá spurningu, hvort rétt sé að málum staðið frá upphafi. Á skal að ósi stemma. Við Islendingar erum því vanastir að gera allt í bylgjum. Skúturnar komu í bylgjum, togararnir, nýsköpunar- togararnir, nótaskipin og nú seinast skuttogaraflotinn. Þetta er í raun- inni vond aðferð við fjárfestingu í iðnaði eða atvinnugrein. Stöðug, markviss endurnýjun væri æskilegri, tryggði vissar framfarir í skrefum. Stóru stökkin valda miklum vanda. T.d. má segja að rekstrargrundvöll- ur heils togaraflota hafi verið óvið- unandi á sama tíma og fjárfesting- in í þessum skipum var í hámarki. — Svo vil ég minna á annað þýð- ingarmikið atriði. Ef fiskiskipin eru of mörg, þá höfum við bara ekki sjómenn til þess að manna þau for- svaranlega. Of mörg fiskiskip þýðir einfaldlega það, að afkoma útgerð- ar og sjómanna verður verri og þeg- ar ekki er hægt að borga sjómönn- um sómasamlega, þá kemur mann- eklan til sögunnar. Undirstaða góðra kjara sjómanna er fiskafli. Ef hann er ekki fyrir hendi þá er líklega sama hvað við eigum góð skip. Menn fara í land. VERÐUR HLUTA FLOTANS LAGT? — Verður einhverjum hluta fiskiflotans lagt á næstunni? — Um þau mál er fjallað, eða verður fjallað í nýskipaðri nefnd, sem er að taka til starfa. Eins og komið hefur fram í opinberri um- ræðu, hafa menn varpað þeirri hug- mynd fram að leggja beri stórum hluta fiskiskipaflotans, a.m.k. um tíma. Nefndin er skipuð af sjávarút- vegsráðuneytinu 22. desember 1975 og falið að gera tillögur um skipan og stjómun fiskveiða hér við land, með sérstöku tilliti til skýrslna fiski- fræðinga um ástand fiskistofnanna. Nefndina skipa Einar B. Ingvars- son, aðst.m. ráðherra, formaður, án tilnefningar, Ásgeir Sölvason, skip- stjóri, tilnefndur af FFSÍ, Bjöm Guðmundsson, útgerðarmaður, til- nefndur af LÍÚ, Eggert Jónsson, hagfræðingur, tilnefndur af Fiski- málaráði, Már Elíasson, fiskimála- stjóri, tilnefndur af Fiskifélagi ís- lands, Sigfús Schopka, fiskifræðing- ur, tilnefndur af Hafrannsóknastofn- uninni, Tryggvi Helgason, sjómað- ur, tilnefndur af Sjómannasambandi íslands, Vilhelm Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri, tilnefndur af LÍÚ. Varamenn: Jakob Magnússon, fiski- fræðingur, tilnefndur af Hafrann- sóknastofnuninni, Jónas Blöndal, skrifstofustjóri, tilnefndur af Fiski- félagi Islands, Magni Kristjánsson, skipstjóri, tilnefndur af FFSÍ, Ólaf- ur Björnsson, útgerðarmaður, til- nefndur af Fiskimálaráði, Pétur Sig- urðsson, framkvæmdastjóri, tilnefnd- ur af Sjómannasambandi íslands, Stefán Guðmundsson, framkvæmda- stjóri, tilnefndur af LÍÚ, Tómas Þorvaldsson, framkvæmdastjóri, til- nefndur af LÍÚ. Þessi nefnd, sem hefur nafnið FISKVEIÐINEFND mun fjalla um þessi mál, og mun þessi vinnu- hópur skoða málið og ræða þá val- kosti sem fyrir hendi eru og skila síðan áliti til ráðuneytisins. Þar á meðal verður það skoðað hvort rétt VÍKINGUR 5

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.