Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 7
sé að leggja hreinlega þeim hluta fiskiskipaflotans, sem óarðbærastur er. — Það sem fyrir þessum starfs- hópi liggur nú þegar, er skýrsla fiskifræðinga um ástand fiskistofn- anna, svarta skýrslan, og svo eitt og annað frá fiskveiðilaganefndinni, sem hún mun láta okkur í té. Og svo auðvitað skoðanir þeirra er taka þátt í störfum nefndarinnar og viðhorf þeirra hópa, eða starfsgreina er þeir starfa fyrir. Þá má ekki gleyma athugun, sem Fiskifélagið hefur gert á afkasta- getu fiskiskipaflotans og skýrslu sem verið er að vinna um sama efni hjá Framkvæmdastofnun ríkisins. Þá mun Þjóðhagsstofnun gera út- tekt á því hvaða tegund fiskiskipa hefur hentað best hér á landi. Það er því von okkar hér í ráðuneytinu að eins vel sé að þessum málum staðið og völ er á. AÐ GERA ÚT Á SJÓÐAKERFIÐ — Nú er því stundum haldið fram að sumir menn geri úf ó sjóðakerfið. Hvað er ótt við með því? — Það er nú erfitt að svara því. Þetta eru orð, sem oft eru viðhorf. Þeim er slegið fram í tíma og ótíma, en nánari skýringu vantar. — Ég get ekki séð, hvernig menn geta gert út með þessu móti. Mis- notkun er ávallt erfitt að hindra með öllu. Menn reyna stundum að misnota sér aðstöðu sína, en ég get ekki skilið hvernig þetta er hægt. Menn fá olíu með niðurgreiddu verði. Menn verða að kaupa olíu til að fá þessar niðurgreiðslur. Kannski gætu þeir reynt að selja niðurgreidda olíu hærra verði í landi, en bágt á ég að trúa því, að það sé gert. Nú, og mjög áreiðan- legra gagna er krafist til þess að fá greiðslu, t.d. úr aflatryggingasjóði. Sjóðakerfið lætur sér ekki nægja yf- irlýsingar, heldur kannar úthalds- tíma skipanna og landanir þeirra. VÍKINGUR — Annars mega menn heldur ekki gleyma því hvers vegna t.d. var stofnað til olíusjóðsins. að var til þess a, mæta hrikalegum vanda, sem skall yfir á einni nóttu. Olíukrepp- unni. Þá var ákveðið að láta loðnu- flotann borga fyrstu niðurgreiðsluna fyrir alla. Menn áttu ekki von á að þessi kreppa stæði lengi. Það var því verið að bregðast við skyndileg- um vanda útgerðarinnar. Síðan hef- ur þetta haldið áfram og hefur að áliti margra gengið sér til húðar. Ég held, að engir verði fegnari en við hér ,og sjávarútvegsráðherra þar með talinn, ef hægt er að losa sig við þetta mál. Ég vil líka endur- taka það, að aðhald er mjög strangt með greiðslur úr sjóðakerf- inu. ANNARHVER FISKUR TIL AÐ GREIÐA OLÍUNA — Því er haldið fram að nú fari raunverulega annarhver fiskur hjó stóru togurunum í það að greiða olíuna- Er það rétt? — Ekki hef ég nú reiknað það dæmi þannig. Hinu er ekki að leyna, að hluti vandans — mikill hluti hans — er fólgin í hækkun á brennslu- olíu fiskiskipaflotans og þá ekki hvað síst stærri togaraflotans. Eins og fram kom hér að framan, þá er vandinn meðal annars skoðaður frá þessu sjónarmiði, að gjaldeyriseyðsla fiskiskipa hefur aukist, bæði vegna hækkunar á brennsluolíu og eins vegna tilkostnaðar, sem hækkað hefur svo að segja á öllum sviðum útgerðar og fiskveiða. Ráðuneytið setti á laggimar „svartolíunefnd“ nefnd sérfræðinga til þess að safna upplýsingum og veita ráð um notkun svartolíu í stað dieseloliu á togaraflotanum, eða hluta hans. Svartolíunefnd er nefnd sérfræðinga, sem leiðbeinir, en hef- ur ekki úrslitavald og við teljum að nefndin hafi náð umtalsverðum árangri og hafði þegar sparað þjóðinni stórfé. — Eftir því sem okkur er tjáð, virðist þetta ætla að ganga mjög vel og verulegur sparnaður hefur náðst. Rússneska svartolían hefur ýmsa góða eiginleika til brennslu og er líkari marine-dieselolíu en svart- olía frá öðrum heimshlutum að því að talið er. Flestallir japönsku skut- togararnir eru nú byrjaðir að brenna svartolíu og nú mun standa til að stóru pólsku togararnir taki að brenna svartolíu. Þetta er ekki gert með tilskipunum, heldur er málið unnið í samráði við útgerðirnar. — Við boðum ekki neina svart- olíustefnu. Við greiðum kostnaðinn við svartolíunefndina og viljum gjarnan komast að raun um, hvernig unnt er að lækka eldsneytiskostnað- inn og útgerðarkostnaðinn með þessum hætti og hvað mikið. Við liðsinnum nefndinni, en hvetjum þó enga sérstaklega til þess að breyta til. Það er skiljanlega viss hræðsla við svartolíuna, og hún hentar stórum vélum misvel, að sögn kunnáttumanna. Það er til lítils að brenna svartolíu ef ávinningurinn tapast í löngum vélarhreinsunum eða vélaskemmdum. NÝMÆLI f LÍNUVEIÐI — Aukast umsvif sjóvarútvegs- róðuneytisins? — Ekki skal ég segja um það, því ég hef ekki verið hér lengi. Hitt er annað mál, fiskveiðarnar og sjávar- útvegsmálin eru dálítið í sviðsljós- inu þessa dagana og við hrikalegan vanda er að fást. Minnkandi afli, lágt afurðaverð og aukinn tilkostn- aður við útgerð. Þetta kallar á auk- in umsvif stjórnvalda. Við getum líka orðað þetta á annan hátt. Það verður hreinlega að endurmeta sjávarútveginn til þess að ná hagkvæmni. — Eru nokkur nýmæli í útgerð? — eins og áður sagði stendur nú til að skoða alla þætti útgerðarinn- ar, og hinar ýmsu veiðiaðferðir. - Menn leita nýrra ráða. Það er til dæmis í gangi mjög athyglisverð til- raun hjá Magnúsi Þórarinssyni, 7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.