Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Síða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Síða 30
sóknir á heilsufari sjómanna sem kom fram í Norðurlandaráðinu fyrir nokkrum árum. A ráðstefnunni voru menn sam- mála um nauðsyn þess að bæta frumlæknisþjónustu við sjómenn á hafi úti og nauðsyn á að bæta kennsluna í heilsufræði við sjó- manna skólanna þannig að hægara yrði að veita hjálp í viðlögum um borð og að gefa upplýsingar og sækja ráð með fjarskiptum. Þá voru menn einnig ásáttir um nauðsyn þess að hafa góða skrásetningu á veikindum og dauðsföllum meðal sjómanna til þess að fá örugga þekkingu á hvaða sjúkdómar væru algengastir og hvar helst þyrfti að beita fyrirbyggjandi aðgerðum. Einnig urðu menn ásáttir um nauð- syn þess að samræma þyrfti heilsu- fræðikennsluna og heilbrigðisþjón- ustuna á milli Norðurlandanna að svo miklu leyti sem unnt væri og að nauðsynlegt væri að framkvæma sam-norrænar rannsóknir á ýmsu sem varðaði vinnuaðstöðu, félags- leg og heilsufarsleg vandamál sjó- Heilbrigði sjómanna og sjó- mannafjölskyldna er þýðingarmikið, bæði vegna einstaklinganna og vegna þjóðarbúskaparins. Verkefni lækna er að stuðla að því, að gera líf og heilbrigði sjómannsins eins gott og unnt er. í þessu tilliti hafa sjómenn og fjölskyldur þeirra ekki sérstöðu. Hins vegar vitum við, að starf þeirra og lífskjör hafa í för með sér ýmis vandamál og hættur. manna sjálfra og fjölskyldna þeirra. Var í þessu sambandi bent á ýmis verkefni sem taka þyrfti upp til nán- ari rannsóknar svo sem áhrif hávaða, titrings, veðurfars, vaktaskipta og liinna sérstöku félagslegu aðstæðna sem sjómannsstarfinu fylgja á heilsufar sjómanna og fjölskyldna þeirra. Af íslands hálfu tóku þátt í þess- ari ráðstefnu Olafur Bjarnason pró- fessor, Tómas Helgason prófessor, Þorbjörn Broddason lektor og Guð- mundur Hallvarðsson, fulltrúi Sjó- mannasambands íslands. Ætlunin var að Vilhelm Þorsteinsson fulltrúi FÍB tæki einnig þátt í ráðstefnunni en vegna starfa í samninganefnd gat hann ekki komið því við. Guðmundur Hallvarðsson og Tómas Helgason fluttu framsöguer- indi á ráðstefnunni um sjómanns- fjölskylduna og heiisufar sjómanna og sjómannafjölskyldna. Auk ofangreindra vinna Haraldur Ólafsson lektor og Gylfi Ásmunds- son dósent að þessum rannsóknum. Ef við viljum ná því takmarki, sem við höfum sett okkur sem læknar, verður að auka þjónustu við sjó- menn, til þess að þeir nái jafngóðu heilbrigði almennt og þjóðin í heild. Vegna hinnar miklu þýðingar, sem fiskveiðar og siglingar hafa fyrir þjóðarbúskapinn á Norðurlöndum er hér um að ræða sameiginlegt á- hugamál, læknisfræði, félagsvísinda og efnahagskerfis. Nauðsynlegt er að gera allt, sem unnt er, til þess að bæta heilbrigði sjómanna og sjó- mannafjölskyldna og félagslega að- stöðu þeirra. Til þess að svo megi verða þarf að finna hvað helst spilÞ ir heilbrigði þeirra og styttir starfs- ævi þeirra og reyna að bæta úr á þeim sviðum. Einnig er nauðsynlegt að kanna á hvem hátt er hægt að bæta þann vanda, sem sjómanns- starfið hefur í för með sér fyrir fjöl- skylduna. 1 stuttu máli, nauðsynlegt er að gera sjómannsstarfið eins að- laðandi og önnur störf, þannig, að menn fælist ekki frá því vegna þess að það sé skaðlegt fyrir heilsuna. Jafnframt verður að auka virðingu manna fyrir sjómannsstarfinu og draga úr hinum öru mannaskiptum. Þessu má ná með ýmsu móti, m.a. með fyrirbyggjandi læknisfræðileg- um og félagslæknisfræðilegum að- gerðum, og með aukinni menntun, þannig að allir á skipinu fái sérstaka menntun, t.d. svarandi til þeirrar menntunar, sem iðnaðarmenn fá. Þó að hugleiðingar þessar varði fyrst og fremst togarasjómenn, varða þær einnig aðra, sem fiskveiðar stunda og a.m.k. nokkuð af þeim, sem eru á verslunarflotanum. Vinna togarasjómanna eru verulega frá- brugðin vinnu þeirra sem á verslun- arflotanum eru, þar eð togarasjó- mennimir eru samtímis sæfarar og verksmiðjuverkamenn. Veiðarnar á stórum togurum hafa ýmislegt sam- eiginlegt með verksmiðjuvinnu við færiband. Nauðsynlegt er að kanna hvaða áhrif þetta tvöfalda hlutverk hefur á sjómennina. Ekki er ólík- legt að gera ráð fyrir, að það valdi auknum sjúkdómum og einnig auk- inni slysatíðni. ET.þ.b. 4,5% af sjó- mönnum, sem fiskveiðar stunda verða fyrir slysum árlega. Nærri 20% af öllum vinnuslysum, sem skráð voru hjá Tryggingastofnun ríkisins 1973 voru slys á sjómönn- um, þrátt fyrir það, að þeir em ekki nema 8% af þeim, sem eru starfandi í atvinnulífinu. Nærri 10% af öllum slysum á sjó eru banaslys. Tómas Helgason próf. dr. med.: HEILBRIGÐISJÓMANNA OG SJÓMA NNA FJÖL SK YL DNA Fyrirlestur á norrænni ráðstefnu um hei/sufar sjómanna og rannsóknir á því, 16. júní 1975 30 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.