Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Side 31
Guðmundur Hallvarðsson: ÞANKAR UM LÍF OG FJÖLSKYLDU SJÓMANNSINS Þegar ég lít til baka og horfi til uppvaxtarára minna, til sjómanns- heimilisins þar sem við vorum sex bræðurnir. faðir minn langtímum á sjó og óreglulegur hans komutími af hafi, minnist ég þess að móðir okkar gegndi foreldrahlutverkinu. í inniveru hans varð allt annað and- rúmsloft á heimilinu, við fögnuðum honum innilega í hvert sinn sem hann kom af sjónum og þó fór svo, sem eðlilegt var að hann þurfti að sýna sitt húsbóndavald í þessum ærslafulla strákahóp. Virkaði þetta oft þannig á okkur að við undruð- umst afskipti hans af þessum heim- ilismálum sem áður en hann kom í land, gengu snurðulaust fyrir sig. Það var líka stundum svo að við urðum fegnir þegar hann hélt á haf- ið á ný þótt söknuðurinn til hans stæði ekki á sér fljótlega aftur. Þegar eldri bræður mínir héldu svo á hafið og komu aftur erlendis frá, móttók ég frásagnir þeirra og fylltist skjótt áhuga á þessu fram- andi starfi. Og svo fór að 13 ára gamall réðist ég í mitt fyrsta skips- rúm sem messagutt á farskip og líkaði vistin vel. Ég minnist þess hvað það var góður félagsandi á þessu gufuskipi, hásetar og kynd- arar bjuggu frammi í skipinu í 4 og 6 manna klefum og líkaði þeim vist- in vel, enda þótt þeir sem í 6 manna klefunum bjuggu svæfu í nokkurs konar Sauna ef einhver ágjöf var. Þar um borð var enginn asi á mönn- um og öll störf virtust ganga snurðu- laust fyrir sig án nokkurs stress. Þeg- ar komið var til heimahafnar aftur tók losun nokkra daga og ég minn- ist þess að eiginkonur „eldri“ skips- manna sátu inni í borðsal, prjón- uðu og ræddu málin á meðan eigin- VÍKINGUR maðurinn stóð sína vakt í vél eða á þilfari. Því er mér þetta svo minnis- stætt að ég blótaði kerlingunum á laun vegna þess að þær borðuðu um borð líka og uppvaskið hjá mér varð helmingi meira fyrir bragðið. í gegnum minn sjómannsferil hef ég oft gert samanburð á fjölskyldu- lífi félaga minna, lífi mínu á upp- vaxtarárunum og eftir að ég stofn- aði heimili sjálfur. Þegar ég hef svo borið saman skipshafnimar á þeim skipum sem ég hef siglt á, hefur samanburðarpunkturinn ávallt verið sá sami, nefnilega gamli gufudall- urinn, hann er kannski umdeilan- legur og þó. Lifnaðarhættir og aðstaða sjó- mannsins hafa breytst geysilega á örskömmum tíma, frá því menn bjuggu margir í klefa, ferðir tóku lengri tíma og menn höfðu nægan tíma til að spjalla saman, þetta voru yfirleitt skip með mikilli á- höfn á nútímamælikvarða. 1 dag fer skipum einmanaleikans sífellt fjölgandi og er algengt að 7-11 manna áhafnir séu á flutningaskip- unum, vaktir svo stífar að menn rétt sjást á vaktaskiptum og hver einstaklingur heldur sig í sínu her- bergi á meðan hvíldartíminn varir. í kjarasamningum farmanna eru ákvæði um frídaga auk orlofsdaga, aukafrídagar þessir eiga að greiðast með miklu prósentuálagi ef menn taka ekki út frídagana sem slíka. Svo hagar málum til nú, að menn taka aðeins lögboðið orlof og knapt það, en aðra frídaga í peningum sjálfum sér og fjölskyldu sinni til mikillar armæðu en þó eru merki um hugarfarsbreytingu sem betur fer. Með gjörbyltingu á sviði losunar og lestunar hefur viðlegutími í höfn stytst mjög frá því sem áður var og er algengur 1-2 sólarhringar, jafn- vel áhafnir skipanna kallaðar til skips nokkrum sinnum til að færa skipið á milli bryggja, og þar með inniveran og frítíminn að engu gerður í raun. Þetta skapar mjög mikla streitu hjá sjómönnum, brott- farartíminn verður óheppilegasti tíminn sem skipstjórinn eða útgerð gat valið, fjölskyldan fer að keppa við tímann og út frá þessu skapast ergelsi og rifrildi (stress) á milli hjóna, sem endar svo þegar haldið er til hafs á ný er sálarástandið óbærilegt. Á fiskiskipum, t.d. togurum, virð- ist brottför ekki vera eins slæm fjöl- skyldunni og er það m.a. vegna þess að menn eiga frí alla inniveruna og vita að eftir hverja veiðiferð er þeim tryggt 30 klst. frí, fjölskyld- an veit það líka og við ráðningu í skipsrúm er gengið út frá þessu sjónarmiði. Það óvænta, t.d. ef skip bilar og brottför tefst um óákveðinn tíma virðist hafa slæm áhrif á fjöl- skylduna. Drykkjuskapur á fiski- og far- skipum er með nokkuð ólíkum hætti, þar sem hann er á annað 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.