Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Page 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Page 32
borð viðhafður. Á farskipum er farið að bera talsvert á drykkjuskap um borð í rúmsjó, þó aðallega um helg- ar hjá yngri mönnum sem gegna dagmannsstörfum. Það eru ekki mörg ár síðan það þótti hin mesta hneisa að drykkjuskapur væri við- hafður til sjós. Á togurum er drukk- ið í inniverunni og síðan látið stað- ar numið en þó eru undantekning- ar þar á. Togaramaður sagði: „Við erum taldir vera fyllibyttur vegna þess að við drekkum á virkum degi þegar landfólk er búið að vera í drykkju meira eða minna yfir helgi. Ef það væri gerður alvörusaman- burður á drykkjuskap togarasjó- manna og t.d. skrifstofufólks, kæmi eflaust dæmið þannig út að land- fólkið drykki meira en við.“ Þegar sjómaður er spurður að því hvað það sé sem honum líki svo vel í starfi sínu, er margt tínt til í svarinu. Má þar m.a. nefna fjár- hagsafkomuna, vellíðan til sjós, sam- félagið litla, þægindin sem í þvi felst að vinna, sofa og éta á vinnu- staðnum, fríin í heimahöfn og þá einkum á virkum dögum þegar landfólk þarf að vinna, svo nokkur dæmi um tilsvörin séu nefnd. Á sjónum ræða tnenn mikið sam- an um sín einkamál og fer svo oft að sá sem trausts er ekki verður er yfirleitt settur út í hom í þvi litla samfélagi sem ein skipshöfn er, eða hann hreinlega flæmist i land. Oft er það svo að skipshöfnin tekur rík- an þátt í.íélagslegu vandamáli sem einn skipsfélaginn getur átt við að glíma og hann studdur með ráðum og dáð. Sjómenn ræða oft um sín prívatmál sem landsmenn mundu aldrei ræða um nema kannski við sjálfan sig. Ef fjölskyldan er vel frísk ganga málin oftast eðlilega fyr- ir sig, fjölskyldusjómaðurinn tekur við stjóm heimilisins í flestum til- fellum þegar í land er komið, þó er það misjafnt og dæmi um það sem ég hefi rekið mig á er að menn láta kerlu um vandamálin áfram og þeir virðast vera furðulega kæru- lausir fyrir heimilismálum sínum. Gera sér erindi um borð í skip sitt á frídegi sínum, hitta skipsfélaga sína sem eru á vakt eða aðra félaga sína sem líkt er á komið með. Mér virðist sem þeir leiti um borð til fé- laga sinna eins og þeir séu að fá einhvern styrk, jafnvel eru einstök fjölskyldumál rædd, eða hreinlega þeir ætla ekki að fullorðnast. G. H. Útgerðarmenn Vélstjórar Önnumst allar raflagnir og viðgeröir í skipum og verksmiðjum Símar: 13309 og 19477 Elzta og stærsta skipaviðgerð- arstöð á íslandi. Tökum á land skip allt að 2500 smálesta þung. Fljót og góð vinna. SLIPPFÉLAGIÐ í REYKJAVlK Sími: 10123 (6 línur). Símnefni: Slippen. UROKO 100% NYLON Útvegum frá Japan fyrsta flokks veiðarfæri: Umboðsmenn fyrir: Mitusi & Co., Ltd. NYLON þorskanet og — slöngur, — þorsknætur, — herpinætur, — tauma, — kaðla. HIZEX tauma, — kaðla, — bólfæri, — teinatóg, — dragnótabálka. Nylon og Pylen ábót. Steinavör hf. Norðurstíg 7, Reykjavík. Sími 24123. 32 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.