Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Page 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Page 33
Halldór Halldórsson stýrimaður: Athyglisverður togari Hér sést fram eftir stjórnborðssíðu skipsins. Ef vel er að gáð, sést í kraftblökk á endanum á láréttu bómunni til vinstri á myndinni. Þegar skipið er á togveiðum liggja togvírar í sérstökum „könulum" í gegnum yfirbyggingu skipsins. Nýlega fór ég ásamt nokkrum nemendum í fiskvinnsluskólanum til Rússlands, aðallega til að skoða Al- þjóðlegu sjávarútvegssýninguna í Leningrad, en hún var haldin dag- ana 6.-20. ágúst. Flogið var frá Keflavík að morgni 6. ágústs til Stokkhólms. Um kvöldið var svo haldið með ferju til Helsinki, höfuð- borgar Finnlands. Eftir það var ein- göngu ferðast með járnbrautarlest- um, bæði til Sovétríkjanna og innan þeirra. Það er ekki hægt að segja annað en að margt hafi verið að sjá á sýn- ingunni. En það sem ég hafði einna mest gaman af að sjá var lítill frysti- togari, en sýningarsvæðið var á hluta af hafnarsvæði Leningradborgar. Eftirfarandi upplýsingar voru gefnar um togarann, en hann er smíðaður í Rússlandi fyrir Rússa. „Moriak“ frystitogari af milli- stærð. Smíðaður til að veiða sjálf- stætt eða í flota, með botn- eða flottrolli og einnig nót og fullvinna aflann um borð og sigla síðan með hann til hafnar eða losa hann í frystiskip. Mesta lengd 54,80 m, breidd 9,80 m, djúprista 4,09 m, særými 1144 t, hraði 11,7 sjómílur. Helstu tæki í brúnni voru þessi: Gírókompás, sjálfstýring, radar, fisksjá, fiskritadýptarmælir, 2 dýpt- armælar, miðunarstöð. Spilum var stjórnað úr brúnni. Einnig var í brúnni neyðarstaðsetningarbauja. Mér skilst að sú bauja sé þannig að stillt sé inn á hana breidd og lengd skipsins hverju sinni. Þegar hættu ber svo að höndum er bauj- unni kastað fyrir borð og byrjar hún þá að senda út á morsi neyðarmerki, ásamt staðsetningu og kallmerki skipsins. Ég hef áður séð svona bauju í rússnesku olíuskipi á Skerja- firði. VlKINGUR 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.