Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1978, Síða 48
getur lyft 2.5 tonni, en hún er
knúin af 3 tonna vindu. (hydro-
lik.)
Annað mastur er sambyggt
yfirbyggingu og skorsteini, en þar
er pláss fyrir tvö radartæki, loftnet
og ljóskastara, sem notaðir eru við
athafnir skipsins.
Línuveiðar undir þilfari
Öll vinna við línuveiðar fer
fram undir þilfari. Línan er dregin
á venjulegu línuspilí inn um lúgu,
en línan er lögð út um annað op
að aftan. Beiting fer fram inni í
síðugangi, þar sem vel fer um sjó-
mennina. Undir þilfari er einnig
aðstaða til hausunar og flatningar,
og því má bæta við, að sumir bát-
arnir eru vélvæddir, eru með
flatningsvél um borð.
Lestar eru tvær, íslest og lest
fyrir saltfisk, sem tekur um 200
tonn af fiski, en auk þess er frysti-
lest fyrir heilfrystan fisk, og tekur
hún um 70 tonn af fiski.
Skipið er knúið 700 hestafla
Callesen dísilvél (dönsk) og tvær
100 hestafla Mercedes Benz
hjálparvélar eru um borð.
Skipið er að sjálfsögðu búið
vönduðum siglinga- og fiskileitar-
tækjum og björgunarbúnaður
þess er nýr af nálinni. Lítill björg-
unarbátur á þilfari bakborðsmeg-
in, en gúmmíbátar á báðum síð-
um.
13 manna áhöfn verður á nýja
skipinu, og búa skipverjar í fimm
tveggja manna klefum og einum
þriggja manna klefa.
Mjög góð hreinlætisaðstaða er
um borð, þvottavél og tauþurrk-
ari, hljómtæki og fl. eins og á ný-
tísku heimilum.
Henta svona skip
hér á landi?
íslendingar voru heldur seinir
að taka við sér þegar skuttogar-
arnir voru að ryðja sér til rúms.
Yfirbyggðir línuveiðarar, eða úti-
legubáíar eru viðlíka bylting í
línuveiðum og skuttogararnir
voru í botnvörpuveiðum, þegar
þeir tóku við af síðutogurunum
gömlu.
Yfirbyggðir línuveiðarar eru
staðreynd og þeir hafa reynst
mjög hagkvæmir í rekstri miðað
við önnur þorskveiðiskip í Noregi.
Þessvegna ættu íslenskir út-
gerðarmenn og stjórnvöld að láta
smíða slíkt skip til tilraunaveiða
hið fyrsta.
Rísaflotkrani
Þessi myndarlegi krani, sem sést á myndinni, er smíðaður í
Japan af IHI Heavy Industries Co Ltd, fyrir Hollenska út-
hafsfélagið BV Delft.
Kraninn getur lyft 2000 tonna þunga og hann nær 10—12
hnúta hraða fyrir eigin vélarafli.
Þegar kraninn er á ferðalagi, ristir hann 7.5 metra, en síðan
dælir hann í sig sjó, ef lyfta þarf þungum stykkjum og þá
ristir hann 23.50 metra.
Helstu mál eru þessi:
Lengd............................ 145 metrar
Breidd .......................... 52 —
Hæð.............................. 36.5 metrar
Lyftikraftur .................... 2000 tonn
Pláss fyrir allt að 270 manna vinnuflokk um borð. Kraninn
hlaut nafnið Narwhal.
48
VÍKINGUR