Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Síða 21
Sólkolinn
Öðru nafni þykkvalúra, er vinsæll matfiskur í
nágrannalöndunum
Flokkun
Þykkvalúra, Microstomus
kitt (Walbaum, 1792) telst til
flyröuættar, Pleuronectidea.
Hægri hliö flatfiska þessarar
ættar er dökk. I NA-Atlants-
hafi eru þekktar 9 tegundir
jafnmargra ættkvísla, en hér
við land finnast 7 þeirra. Auk
þykkvalúru teljast skarkoli,
sandkoli, langlúra, lúöa, grá-
lúöa og skrápflúra til þessarar
ættar.
Útbreiösla
Vesturmörk útþreiöslu
þykkvalúru i Atlantshafi eru
viö island, hún finnst hvorki viö
Grænland né N-Ameriku. Að
austanveröu nær hún frá
Hvítahafi, suður meö strönd
Noregs, inn í Skagerak og
dönsku sundin i Noröursjó,
Ermarsund og suöur i Biskaja-
flóa. Þá finnst hún einnig viö
Færeyjar.
Hér við land finnst þykkva-
lúra allt i kringum landið,
einkum á sand- og malarþotni
á 20—200 m dýpi. Hún er al-
gengust i hlýja sjónum S- og
SA-lands, en sjaldséö undan
NA- og A-landi.
Vöxtur, hrygning
Þykkvalúra getur náö allt aö
60 sm lengd og 2 kg þyngd.
Lengsta þykkvalúra, sem
fundist hefur hér viö land
mældist 55 sm. Mælingar á
lengdardreifingu i afla, geröar i
maí á þessu ári, sýna aö meg-
inhluti hennar er á bilinu
20—40 sm stærö. Vöxtur
hænganna er hraðari en
hrygnanna fyrstu æviárin eöa
fram aö hrygningaraldri þeirra
3—4 ára. Þá dregur úr vexti
hænganna. Hrygnur þykkva-
lúru ná kynþroska viö 4—6
ára aldur og vaxa meir og
hraöar en hængar eftir þaö.
Þær veröa einnig almennt
eldri en hængarnir, sem þýöir
aö mestur hluti stórrar
þykkvalúru eru hrygnur. Svip-
aö fyrirbæri er þekkt hjá
öörum flatfiskategundum, t.d.
skarkola. Hrygning fer fram á
50—70 m dýpi viö S- SV-
ströndina. Hún hefst venju-
lega seint i mai og lýkur ekki
fyrren í aigúst.
Stofnstærð
Litiö sem ekkert er vitað um
stofnstærö þykkvalúru hér viö
land, rannsóknir á því atriði
hafa ekki veriö stundaðar hér.
Mjög takmarkaöur áhugi hefur
veriö á veiðum á þykkvalúru
viö landiö siöustu áratugina,
þó sá áhugi hafi eitthvað
glæöst allra siöustu árin.
Reynslan sýnir, aö áhugi til
rannsókna er tengdur áhuga á
veiðum, þvi hefur þykkvalúran
oröið útundan, þegar rann-
sóknasviö eru ákveðin bæöi
meö tilliti til mannafla og fjár-
magns.
Veiðar
Þykkvalúra er eftirsótt mar-
vara í nágrannalöndum okkar,
einkum í löndum sem liggja aö
Noröursjó. Þykkvalúrustofn-
Þykkvalúra, — ööru
nafni sóikoli.
Víkingur 21