Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Qupperneq 23
Sallafínn og safaríkur fiskur
Segir Kristján Ingibergsson skipstjóri á Baldri KE 97
umsólkolann
Slegiö úr pokanum fullum af sólkola.
Kristján Ingibergsson er
skipstjóri á Baldri KE-97, 40
tonna bát frá Keflavík. Hann
hefur verið á sólkolaveiðum
fyrir Suðurlandi að undan-
förnu og við röbbuðum lítillega
við hann um veiðarnar.
Fyrst varð okkur fyrir að
reyna að átta okkur á nöfnun-
um á tegundinni og þá kom á
daginn að þau eru að minnsta
kosti þrjú, sólkoli, þykkvalúra
og lemma, og svo spyrjum við
hvaða veiðarfæri séu notuð
við veiðarnar.
„Við notum dragnót með
120 mm. möskva, 32 faðma
langa, erum með 500 faðma
vír og 60 faðma skvertóg
hvoru megin eöa 120 faðma.
Við höfum aðallega verið við
Vestmannaeyjar, í álnum upp
af eyjunum og eins austan við
Elliðaeyna við Róuboðann,-
Þetta ererfiðslóð.
Svo prófuðum viö í bríaríi
vestan við Þorlákshöfnina,
útaf Keflavíkinni og það kom
þara vel út, en þegar fór að
líða á fór að safnast meira
drasl á og fór að bera meira á
rauðsprettu lika.
— Fáið þið ekkert nema
sólkolann i nótina?
„Jú, það hefur verið svolitið
steinbitsblandað. Þó held ég
aö megi segja aö gegnum-
sneitt sé um 80% af veiðinni
sólkoli."
— Hver heldurðu að meðal-
aflinn i ferð hafi verið?
„Við höfum yfirleitt verið úti í
tvo daga og landað i Þorláks-
höfn. Aflinn hefur yfirleitt verið
frá 12 og uppi 17 tonn.“
— Hvað um verðið?
„Verðið hefur veriö þokka-
legt, með þvi að setja aflann í
gáma og senda hann út. Þetta
er bara verðlagt eins og skit-
fiskur hérna, eins og raunar
allurfiskur."
— Viltu segja meira um
það?
„Það er full ástæða til að
vekja athygli á því að t.d. eins
og með skarkolann, þegar við
byrjuðum á þessu fyrir þrem
árum var kilóið af honum á kr.
1,30. Mönnum fannst þetta
ekki geta staðist. þegar svo
var farið að gramsa í verðinu,
sem fékkst fyrir hann, þegar
búið var að vinna hann hér, þá
fór aðeins að rofa til i þessu.
Það var hlegið að okkur, fyrir
að nenna aö standa i þessu
fyrir 1,30.
Og þaö er nákvæmlega það
sama með sólkolann, hann er
allt of lágt verðlagður, hann er
100% dýrari á erlendum
mörkuðum heldur en skarkoli
og hann er kolvitlaust verð-
lagðurhérna."
— Hvaö fáiö þiö fyrir kílóiö?
„Við sömdum um fast verð í
vor og fengum 12 krónur fyrir
Víkingur
23