Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Side 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Side 25
Björgum Þorsteini — það væri mikill skaði, ef ekki væri til sýnishorn af þessum bátum og útbúnaði þeirra Fyrir tæpum tíu árum birtist í Dagblaöinu mynd af björgun- arbátnum Þorsteini, fyrsta björgunarbátnum sem S.V.F.Í. eignaöist. I grein sem fylgdi var þess getiö, ef ég man rétt, aö slysavarnadeildin í Sand- geröi heföi umsjón meö bátn- um og þegar hús þaö er deild- in haföi þá i þyggingu væri komið upp yröi þáturinn tekinn i hús og hafist handa viö að koma honum i upprunalegt horf. Um siðustu páska átti und- irritaður leió um Sandgeröi og var báturinn þá enn á sama staö sjáanlega i algeru hiróu- leysi og í rauninni merkilegt hvaö þó er eftir af honum. Nú vil ég beina þeirri spurn- ingu til stjórnar S.V.F.Í., sjó- minjasafns íslands, þjóö- minjavarðar og annarra sem hlut eiga aö máli: Er ekki ástæöa til aö varðveita þenn- an bát og ýmislegt fleira, sem tilheyrir björgunar- og sjó- slysasögu íslendinga? S.V.F.Í. kom á sinum tima upp viöa um land björgunarstöövum, sem voru eins vel búnar tækjum og kostur var á þeim tima. Á mörgum þessm stöövum voru til björgunarbátar. Flestir lik- lega róðrabátar, en á stöku staö vélbátar. Mun þaö sjálf- sagt hafa farið eftir efnum og ástæöum á hverjum staö hvor gerðin varö fyrir valinu. Þegar minnst er á vélbáta i þessu sambandi dettur mér i hug vél- in í bát Slysavarnadeildarinn- ar i Sandgerði. Ég hugsa aö mörgum þætti forvitnilegt aö skoöa hvernig var gengiö frá henni svo hún gæti örugglega gengið þótt bátinn fyllti og hvernig svinghjóliö var notaö til aö dæla sjó úr bátnum. Þaö væri mikill skaði, ef hvergi væri til sýnishorn af þessum bátum og útbúnaöi þeirra. Þvi vil ég skora á S.V.F.I. aö byrja á þvi aö koma þjörgunarbátnum Þorsteini i hús og foröa honum frá frekari skemmdum en orönar eru, og vinna aö þvi aö komiö veröi upp sérstakri deild viö Sjó- minjasafn íslands, þar sem varðveitt veröa sýnishorn af björgunartækjum Slysavarn- afélags íslands. Guðbjartur Gunnarsson Guðbjartur Gunnarsson skrifar Þannig er björgunarbáturinn Þorsteinn í dag, — í algjöru umhiröuleysi. Gaman væri aö gera hann upp og koma honum fyrir í Sjóminjasafni ísiands. Víkingur 25

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.