Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Page 32
32
Víkingur
FRÍVAKTIN
☆
Jóhann gamli var í heim-
spekilegum vangaveltum og
tautaöi viö sjálfan sig.
— Brennivín á maöur bara
aö drekka edrú, annars leiöir
þaö bara til einhvers djöful-
skapar.
JÆJA STRÁKAR...
... þá eru það gellurnar
☆
Tveir Gaflarar stóöu undir
gafli og röbbuöu saman. Annar
sagöi viö hinn:
— Ég frétti aö þú heföir veriö
noröur í iandi i sumarfríinu.
Hvernig var þaö.
— Þaö varsvo andstyggilegt
aö ég sneri viö á Hreöavatni.
Á síðasta Farmanna- og
fiskimannasambandsþingi
urðu nokkrar umræður um
iesefni sjómanna, og einkum
þeirra sem eru félagar innan
fyrrgreinds sambands.
Þótti forráðamönnum Sjó-
mannablaðsins Víkings það
fyrir neðan allar hellur hve
smár lesendahópur blaðsins
var innan sambandsins. Ættu
félagar heldur að lesa og
styðja sitt eigið málgagn en
liggja í Samúel og öðrum
þessháttar blöðum eingöngu.
Ruddist þá í pontu vélstjóri
nokkur og sagði að vel gæti
það verið, að þeir stæðu sig
ekki sem skyldi, en ekkert
skaðaði það Víkinginn, þótt
hann reyndi að taka mið af
öðrum blöðum og birta af og
til efni sem vitað væri að félli
þeim vel í geð. T.d. með því að
birta af og til myndir af
huggulegum gellum.
Fátt er okkur kærkomnara
en verða við óskum lesenda
og því skelltum við okkur upp í
Nauthólsvík og smelltum
nokkrum myndum af gellum
sem þar flatmöguðu á steinum
í heita læknum.
Njótið vel drengir. . .