Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Side 48
Gleymið kvótanum...
Takiö ekki alltof
mikiö affötum
meö aö heiman.
Þaö má alltaf
kaupa pilsræfil
eöa skyrtugopa á
staönum efá þarf
aö halda.
48 Víkingur
í Skotlandi eru frægar laxveiöiár. Þessi er í grennd við Glasgow.
dregur hins vegar úr vökva-
magni líkamans, þarf þvi
nauðsynlega á annarri vökvun
að halda — alla vega með.
Takið ekki alltof mikið af fötum
með að heiman. Það má alltaf
kaupa pilsræfil eða skyrtu-
gopa á staðnum ef á þarf að
halda. Svo er eitt sem enginn
má gleyma ef ferðin á að
heppnast vel, en það er góða
skapið. Hugsið um eitthvað
annað en kvótaskiptinguna,
vaxtaaukalánin og duglausa
pólitíkusa meðan á feröinni
stendur. Reynið að njóta lífs-
ins þessa daga sem liða alltof
fljótt.
Flogið og ekið
Ekki hafa allir áhuga á aö
fara i hefðbundnar hópferðir á
suörænar baðstrendur, alla
vega ekki á hverju ári. Sá
feröamáti sem gefur hvað
mest frelsi til að ráða sjálfur
hvert fariö er og með hvaða
hraða haldið er áfram er að
sjálfsögöu flug og bill. Þetta er
lika einhver ódýrasti ferða-
kostur sem völ er á. Út frá eig-
in reynslu get ég hiklaust
mælt með slíkum ferðum til
Luxemborgar og Englands,
hvort heldur flogið er til Lond-
on eða Glasgow.
Taka má dæmi um flug og
bil í tvær vikur til Luxemborg-
ar hjón með tvö börn á aldr-
inum 6 — 11 ára. Fargjaldiö
með Flugleiðum fram og til
baka, Ford Fiesta bilaleigubill i
tvær vikur með kilómetra-
gjaldi, söluskatti og kaskó-
tryggingu og kostar samtals
ekki nema 35 þúsund krónur.
Hægt er að gera ákveðna
ferðaáætlun áður en farið er
að heiman, panta hótel og svo
framvegis. En skemmtilegast
er að dóla sér um Rínarhéruð
og viðar um Þýskaland án
þess að hafa neglt niður
ákveðna feröaáætlun. Gista á
sveitahótelum fyrir lágt verð
og vafra um skemmtileg
sveitaþorp i sól og hita.
Bensínverð i Luxemborg er
það ódýrasta í Evrópu, eða
aðeins liðlega 14 krónur lítr-
inn og i Þýskalandi er veröið
aðeins liðlega 15 krónur. Þeir
sem vilja geta auðvitað ekið
um Frakkland eða Sviss, út frá